Monitor - 15.04.2010, Page 3
Rokkhundurinn og trommarinn Egill Örn
Rafnsson stendur á tímamótum í lífinu. Hann
eignaðist sitt fyrsta barn daginn sem gosið hófst
með Ölmu, konu sinni, og nýverið hætti hann
í rokksveitinni Sign eftir margra ára samstarf
við bróður sinn, Ragnar Sólberg, og aðra félaga í
sveitinni. Hann segist þó hvergi nærri vera búinn
að leggja kjuðana á hilluna.
„Þetta voru mál í Sign sem voru þannig að það
var ekki hægt að leysa þau nema með því að ann-
ar okkar myndi hætta,“ segir Egill um endalok
sín í hljómsveitinni en Ragnar bróðir hans hyggst
starfa áfram undir merkjum Sign. „Þetta var mjög
mikill ágreiningur. Hann var bæði tónlistarlegs og
viðskiptalegs eðlis. Það er mjög erfitt að útskýra
það en það að ég hætti var eina leiðin til að leysa
þessa mál,“ segir Egill en deilurnar voru ekki eina
ástæðan fyrir því að hann hætti í sveitinni.
„Svo var fjölskyldufílingurinn líka dottinn úr
þessu. Ég sá mig ekki lengur
sem hluta af fjölskyldu eins
og við höfðum alltaf verið. Það
var alltaf ákveðið bræðralag á
milli okkar en svo voru menn
einhvern veginn byrjaðir að
hugsa meira um sjálfa sig
en heildina og þá fannst
mér sjarminn vera farinn
af þessu,“ segir Egill sem er
kominn í ennþá stærra hlutverk
núna.
Vona að hann verði
bara lögfræðingur
„Föðurhlutverkið er ansi
ólíkt rokkarahlutverkinu en engu að síður mjög
skemmtilegt og spennandi og talsvert meira
krefjandi,“ segir Egill sem hefur þó sofið eins og
engill síðan strákurinn kom í heiminn. „Hann
er mjög góður og vaknar lítið á nóttunni. Svo
á ég góða konu sem passar að ég fái að sofa
svo ég geti unnið,“ en Egill hefur starfað sem
leiðsögumaður hjá Eskimos auk þess að spila
sem hljóðverstrommari, meðal
annars inn á plötu með Bjartmari
Guðlaugssyni.
En skyldi nýr trommusnillingur
vera á leiðinni?
„Ég vona ekki hans vegna,“ segir
Egill og hlær. „Það er ekkert grín
að vera tónlistarmaður á Íslandi.
Ég vona að hann verði bara
lögfræðingur eða viðskiptafræð-
ingur eða eitthvað,“ segir Egill en
þvertekur fyrir það að rokkarinn í
honum sé í bráðri lífshættu með
föðurhlutverkinu. „Rokkarinn
innra með mér fer með mér í
gröfina. Það hefur alltaf legið fyrir
mér að tromma og ekkert annað. Það er ekkert
sem hverfur með einni hljómsveit,“ segir Egill
og bætir við: „Það verður líklega erfitt að flétta
föðurhlutverkið saman við rokkið en engu að
síður mjög skemmtilegt.“
3
fyrst&fremst
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Allan Sigurðsson (allan@monitor.is), Haukur Harðarson (haukur@monitor.is) Forsíðumynd: Kjartan Þorbjörnsson (Golli)
Myndvinnsla: Hallmar Freyr Þorvaldsson Auglýsingar: auglysingar@monitor.is Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent
Vala Grand
omg er ekki
buin að fara a
facebook í 3
daga strax 66
friendrequest hvað á maður
að fara að gera með alla
þessa vini sem mar á wow AM
I THIS MUCH LOVED OHHH
LOVE U ALL
6. apríl 2010 kl. 06:21
Margret Kara
Sturludottir er
bikarastelpa:)
10. apríl 2010
kl. 19:02
Sigmar
Gudmunds-
son auglýsir
eftir góðum
status. Má vera
verulega súr.
11. apríl 2010 kl. 21:36
FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2010 Monitor
Mynd/Golli
Monitor
mælir með
Chatroulette er það
heitasta á netinu í dag. Það eina
sem þarf er vefmyndavél og maður
er samstundis
kominn í
samband við
ókunnuga
manneskju
einhvers
staðar í
heiminum.
Farið samt
varlega því
Chatroulette er gróðarstía furðu-
fugla. Ritstjórn Monitor er til dæmis
búin að sjá óþarflega mörg typpi á
stuttum ferli sínum á Chatroulette.
Breaking Bad er frá-
bær sjónvarpsþáttur um efnafræði-
kennara sem greinist
með krabbamein
og fer í kjölfarið
að framleiða
og selja
fíkniefni. Bryan
Cranston, sem
lék pabbann í
Malcolm in the
Middle, er magn-
aður í aðalhlutverkinu.
Þátturinn er ekki enn kominn í
sýningar hér á landi, en það mun
væntanlega ekki líða á löngu þar
til einhver sjónvarpsstöð stekkur á
þennan mikla fjársjóð.
Farðu í bíó
Á Bíódögum
Græna ljóss-
ins er fullt af
góðum mynd-
um og þá er
verið að frumsýna
Kick-Ass sem margir segja að
sé næsta Superbad, nema bara
betri. Monitor er einmitt að
gefa miða á Kick-Ass á Facebook.
Vikan á...
Feitast í blaðinu
Verzló og MS
mætast í úrslitum
MORFÍS. Ítarleg
úttekt á
keppninni. 4
Tobba úr Djúpu
lauginni um allt
sem fólk þarf að
vita fyrir
stefnumót.
8
Kristmundur
Axel sigraði í
söngvakeppninni
og er á toppi
tilverunnar.
10
Bíóhúsin iða af
lífi um helgina.
Bíódagar hefjast og
Kick-Ass er
frumsýnd. 16
FM Belfast er eitt
heitasta bandið
í dag, þrátt fyrir
hömlulaust
sprell. 12
Á NETINU
Í SJÓNVARPI
Annar okkar varð að fara
UM HELGINA
Magnús Valdimarsson, betur þekktur sem
Maggi Mix, er orðinn stórstjarna á Íslandi á
örfáum vikum. Það kemur kannski ekkert
sérstaklega á óvart, enda eru snillingar eins
og Maggi Mix ekki á hverju strái. Monitor er
búið að kortleggja feril Magga Mix síðustu
fjórar vikur og leið hans á toppinn.
17. mars 2010 Maggi Mix stofnar Facebook-
aðdáendasíðu og hleður inn lögum á borð við
Minningar af ballinu, Taktu elskan pilluna og
Það er bannað að vera vondur við kvenfólk.
24. mars 2010 Maggi Mix hleður inn fyrsta
matreiðslumyndbandinu, þar sem hann kennir
fólki að gera hollar franskar.
31. mars 2010 Klukkan 16:46 eru aðdáendur
Magga Mix orðnir 640.
4. apríl 2010 Maggi Mix hleður inn mat-
reiðslumyndbandinu þar sem hann kennir
fólki að gera pinnamat í partí. Hinn ódauðlegi
frasi: „Pinnamatur í partí, eitthvað til að nart’í“
heyrist í fyrsta skipti.
5. apríl 2010 Klukkan 14:45 eru aðdáendur
Magga Mix orðnir 1.255 og þar af er fólk frá
Argentínu, Indlandi, Nýja-Sjálandi og Taílandi.
8. apríl 2010 Aðdáendafjöldi Magga Mix
er yfir 5.000 manns. Maggi Mix kemur fram
í bæði Kastljósinu og Íslandi í dag.
13. apríl 2010 Aðdáendafjöldi Magga Mix
er yfir 16.000 manns.
Framtíðarspá
Monitor
30. júní 2012
Maggi Mix kjörinn
forseti Íslands.
Jóhanna Vala
Jónsdóttir
það er ALLT að
gerast heima
núna.. ohhhh er
á algjörum bömmer! :(
13. apríl 2010 kl. 13:08
Efst í huga Monitor
Magnaður Maggi Mix
Ívar Guð-
mundsson
Mér finnst að
eldgos ættu
alltaf að hefjast
á daginn, voðalegt vesen að
þetta sé að byrja um hánótt
hehe ;)
14. apríl 2010 kl. 09:54
Egill Örn Rafnsson
er hættur í Sign og
er orðinn pabbi. Egill Örn Rafnsson
Fyrstu sex: 29.03.82.
Helstu áhrifavaldar í tónlist:
Trent Reznor og Grafík.
Uppáhaldskvikmynd:
The Anchorman.
Uppáhaldstrommari:
Ringo Starr.
Lið í enska: Mér gæti
mögulega ekki verið meira
sama um enska boltann.
EGILL ÁSAMT
SPÚSU SINNI ÖLMU
OG NÝFÆDDUM SYNI
Vinsældir Magga Mix á Facebook
Svona stendur Maggi Mix í aðdáendafjölda á
Facebook samanborið við nokkra af stærstu
póstum þjóðarinnar. Þessar tölur eru teknar
saman klukkan 13 miðvikudaginn 14. apríl.
Monitor spáir því að aðdáendur Magga Mix verði
komnir yfir 20 þúsund áður en helgin er liðin.
Fjöldi
aðdáenda
á Facebook
Maggi Mix
16.455
Fangavaktin
15.908
Jón Gnarr
15.144
Dikta
15.048
Páll Óskar
13.308
Laddi
12.141
Logi Geirsson
11.118
FM957
9.613
Fóstbræður
8.638
Næturvaktin
8.160
Ólafur Stefánsson
7.787
Sálin
7.592
Dagvaktin
7.322
Eiður Smári
7.196
Hjaltalín
6.235
Veðurguðirnir
3.930
Hemmi Gunn
2.440