Monitor - 15.04.2010, Blaðsíða 19

Monitor - 15.04.2010, Blaðsíða 19
SÖNGLIST Borgarleikhúsið, litli salur 17:30 og 20:30 Sönglist er söng- ogleiklistarskóli sem starf- ræktur hefur verið síðan 1998 fyrir ungt fólk. Kennd eru undirstöðuatriði í söng og leiklist. DANSTVENNAN TAKA #2 Hafnarfjarðarleikhúsið 20:00 Á dagskrá eru verkin 900 02og SHAKE ME en bæði verkin voru sýnd við góðar viðtökur áhorfenda fyrr í vetur og því hefur verið ákveðið að efna til örfárra endursýninga. MARGRÉT EIR Í SÖNGLEIKJASTUÐI Menningarmiðstöðin, Eskifirði 20:00 Söngkonan Margrét Eir ferí ferð í kringum landið og syngur lög úr söngleikjum á borð við Cabaret, Les Misarables og Jesus Christ Superstar. Með Margréti verða þeir Matti Kallio sem spilar á píanó og harmónikku og Ágúst Ólafsson barítónsöngvari. HÆNUUNGARNIR Kassinn, Þjóðleikhúsinu 20:00 Nokkrir kjúklingar á tilboðs-verði hverfa úr frystikistu í fjölbýli sem á eftir að draga talsverðan dilk á eftir sér. Eggert Þorleifsson hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í hlutverki hins óútreiknanlega djassáhugamanns, Sigurhans. Hænuungarnir eru annað verk Braga Ólafssonar fyrir leiksvið. FAUST Borgarleikhúsið 20:00 Það eru liðin fjörutíu ár síðanFaust fór síðast á leiksvið á Íslandi en nú gefst áhugasömum tækifæri til að berja sýninguna augum í Borgarleik- húsinu. Í þetta skipti er leikstjórn í höndum Gísla Arnar Garðarssonar en það er enginn annar en Nick Cave sem sér um tónlistina í sýningunni ásamt Warren Ellis. FÓTBOLTA PUB QUIZ SAMMARANS English Pub 20:00 Vefsíðan sammarinn.comstendur fyrir pub quiz þar sem aðeins er spurt um efni sem tengist knattspyrnu. Að þessu sinni er gestaspyrill enginn annar en Valtýr Björn Valtýsson og þemað verður ítalski boltinn. HARÐKJARNATÓNLEIKAR Dillon 21:00 Það verður boðið upp áíslenskan harðkjarna í hæsta gæðaflokki þegar At Dodge City, Gordon Riots og Chino leiða saman hesta sína á dúndrandi háværum tónleikum. 19 fílófaxið FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2010 Monitor TÓNLEIKAR, LEIKHÚS, SÝNINGAR, ÍÞRÓTTIR, UPPISTAND, PUBQUIZ, TRÚBADORAR OG ALLT ANNAÐ fimmtudagur Íslenski landsliðsmaðurinn, Pavel Ermolinski, hefur komið eins og stormsveipur inn í lið KR-inga sem tekur á móti Snæfell í oddaleik í undanúrslitum Íslandsmótsins. Hann segist ekki geta kvartað undan viðtökunum í Vesturbænum. „Mér hefur verið tekið eins og ég sé uppalinn í KR, týndi sonurinn jafnvel. Það er frábært fólk í KR og langbesta umgjörðin í deildinni,“ segir Pavel sem var orðinn þreyttur á lífi atvinnumannsins eftir langa og erfiða dvöl á Spáni. „Ég hef verið mestmegnis einn og svo var ekkert búið að ganga frábærlega á vellinum þannig að það var frábært að geta komið heim og fengið leiðtogahlutverk í jafngóðu liði og KR, og ofan á það að geta eytt tíma með fjölskyldu, vinum og kærustu,“ segir Pavel og bætir við: „Ég hefði gengið af göflunum á einhverjum tímapunkti, þetta var bara orðið það leiðinlegt og erfitt. Ég var hættur að hafa gaman af körfubolta og kom heim til að brenna ekki út 23 ára. Hér líður mér frábærlega og ég hef sjaldan verið jafnglaður.“ Dómarinn talaði ensku við mig Einhverjir halda að Pavel sé þriðji erlendi leikmaðurinn í herbúðum KR- inga en þrátt fyrir að báðir foreldrar hans séu rússneskir, er hann sjálfur íslenskari en malt og appelsín, enda fæddur og uppalinn hér á landi. „Í fyrsta leiknum sem ég spilaði í janúar byrjaði einn dómarinn að tala við mig á ensku. Ég hló nú bara og benti honum á að ég talaði íslensku.“ Pavel er með nokkrar skrýtnar venjur sem hjálpa honum að komast í rétta gírinn andlega. „Ég þarf að reima skóna nokkrum sinnum fyrir leik, og það fer eftir því hvort ég byrja inni á eða út af hvenær ég geri það. Svo þarf ég að fá mér vatn ákveðið oft fyrir leik og stíg oftast með sama fæti inn á völlinn. Þetta er eiginlega hálfgerð geðveiki.“ Vildi ekki brenna út 23 ára ODDALEIKUR Í KÖRFUBOLTA DHL-höllin 19:15 15 apríl Ágúst Bent Sigbertsson, dagskrárgerðar- og tónlistarmaður Fimmtudagur: Les Monitor, ég er í því, monta mig. Spila á Borgóballi á Nasa. Fílaða. Föstudagur: Tökur fyrir Steindann okkar sem hefst 30. apríl á Stöð 2. Spennandi. Pöddur í maganum. Sjúss slær á taugarnar. Gemmér. Laugardagur: Klippi grín í þáttinn. Ég vil ekki vinna ég vil bara drekka drykk. Danni Deluxxx er á Prikinu. Sunnudagur: Sund, en bara í korter, lengur en það er lúðalegt. Kærastan mín hún Þórunn Antonía syngur Leonard Cohen lög á Rósenberg. Indælt. Frábær helgi, ef samt semi viljað vera bara heim að spila COD. Okei bæ. Helgin mín PAVEL ERMOLINSKI KANN VEL VIÐ SIG Í VESTURBÆNUM BENT HEFUR Í NÓGU AÐ SNÚAST UM HELGINA

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.