Monitor - 15.04.2010, Blaðsíða 8
8 Monitor FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2010
Franska
bölvunin
Það er ekkert nýmæli í
Eurovision að lönd sendi lög á
tungumálum, öðrum en ensku,
sem hafa ekkert með landið
sjálft að gera. Lettar hafa til
dæmis sungið á ítölsku og
Rúmeninn Mihai söng
lagið Tornero að
miklu leyti á ítölsku
árið 2006 með
eftirminnilegum
hætti. Þá hafa
Belgar og Hollend-
ingar þrisvar hreinlega
skáldað upp tungumál, enda
engum til framdráttar að syngja
á flæmsku.
Við Íslendingar grípum til þessa
ráðs í fyrsta sinn nú í ár og
sendum lag sem ber franskan
titil sem hefur verið nokk-
uð vinsælt í þessum
efnum. En þar tókum
við kannski óþarfa
áhættu því dæmin
sýna að franskan
er alls ekki ávísun á
velgengni. Nær öll lög
sem bera franskan titil
hafa nefnilega goldið afhroð
síðustu ár.
Nýjasta dæmið er óperusmell-
urinn La Voix sem Svíar sendu
í fyrra og bundu mikla vonir
við. Lagið komst reyndar í
úrslit en hafnaði í 21.
sæti, sem er versti
árangur Svía
frá árinu 1993
og næstversti
árangur þeirra frá
upphafi. Kýpverjar
hafa tvisvar brennt
sig á frönskunni. Fyrst
árið 2007 með hinu
stórgóða lagi Comme ci
comme ca, sungið á frönsku af
söngkonunni Evridiki sem hafði
keppt tvisvar áður með
ágætum árangri. Í
þetta sinn fór hún
þó heim hvekkt
með skottið á
milli lappanna
eftir forkeppnina.
Næsta framlag
Kýpverja hlaut
einmitt sömu örlög en
það bar titilinn Femme
fatale, sem er jú franska.
Eitt þekktasta dæmið í brans-
anum er þó sorgarsagan af
Kate Ryan sem fór fyrir Belgíu
árið 2006 með lagið Je t’adore,
sungið á frönsku og ensku.
Lagið þótti sigurstranglegt og
átti eftir að fá töluverða spilun
víða um Evrópu, meðal annars
á Íslandi. En öllum að óvörum
mistókst Kate að komast í
úrslit. Eurovision-heimurinn
fékk nett áfall og síðan þá er
sagt að það lag sem geldur
ósanngjarnasta afhroðið hafi
hlotið „Kate Ryan-verðlaunin“.
Þessar upplýsingar hefðu því
kannski komið sér vel áður
en við kusum okkar ágæta
framlag. Það eru þó undantekn-
ingar á öllum reglum og óþarfi
að vera of svartsýnn. En það er
ágætt að vita að ef við lendum
illa í því í Ósló þá er það ekki
okkur eða laginu að kenna,
heldur helvítis frönskunni.
haukurjohnson@monitor.is
7
vikur
í EurovisionStílhreint
og snyrtilegt
EMIL GUNNAR
GUNNARSSON
Nemi á fjórða ári í Verzló.
Fyrstu sex: 19.10.90.
Hvað fílar þú mest í tísku um
þessar mundir?
Ég fíla mikið svona gamaldags og
stílhreint. Að vera frekar snyrtilegur
í tauinu.
Hvaða flík keyptir þú síðast?
Ég keypti bláa slaufu í Sautján
fyrir úrslitin í Gettu betur. Hún var
greinilega ekki til happs, því Verzló
tapaði.
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
Ég verð eiginlega að segja
nærbuxurnar, sérstaklega Björn
Borg-nærbuxurnar mínar. Einfaldlega
af því að það er ekkert betra en að
vera heima hjá sér á nærbuxunum.
Uppáhaldsmerki?
Segjum Cheap Monday. Ég held að
ég eigi alveg fernar svoleiðis buxur.
Notar þú snyrtivörur?
Bara hefðbundnar, rakspíra og
rakakrem og slíkt.
Hverju myndir þú aldrei klæðast?
Hermannabuxum.
Hvaða tónlist hlustar þú mest á?
Allt frá ljúfum tónum Kings of
Convenience til Justice. Um þessar
mundir er ég helst að hlusta á
nýjasta diskinn með Gorillaz, Plastic
Beach. Ég er búinn að vera með
hann í bílnum viðstöðulaust í viku.
Hver er uppáhaldskvikmyndin þín?
Það er klárlega Forrest Gump. Hún
verður betri með hverju árinu,
eftir því sem maður lærir meira um
söguna og áttar sig betur á því
hversu mikil snilld þessi mynd er.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Ég er að fara í útskriftarferð til
Costa del Sol. Svo ætla ég bara að
slappa af. Ég er ekki kominn með
vinnu ennþá, en það er eitthvað í
spilunum.
Myndir/Allan
Sálin er í hljóðveri og vinnur að nýrri plötu
Sálin hans Jens
míns á Nasa
„Við ætlum að reyna að gera það sem við
höfum oft gert, að reyna að finna nýja fleti
á þessari popptónlist okkar. Við ætlum að
vinna með Stórsveit Reykjavíkur þannig að
það verður mikill lúðrablástur, líkt og verið
hefur, en núna förum við vonandi langt yfir
strikið,“ segir Guðmundur Jónsson gítarleikari
Sálarinnar um væntanlega plötu sveitarinnar
sem kemur út í haust.
„Þetta er svolítið flókin tónlist og við erum
að takast á við mjög skemmtilega hluti,“
segir Guðmundur sem telur mikilvægt að
hljómsveitin sé sífellt að gera ferska hluti.
„Það er að minnsta kosti ein af ástæðunum
fyrir því að ég er í þessari hljómsveit. Við
erum að finna upp hjólið aftur og aftur og
erum duglegir að fara í allskonar áttir með
tónlistina okkar. Við erum samt með okkar
einkenni sem við losnum ekkert við og viljum
ekkert losa okkur við,“ segir Guðmundur.
Sálin heldur tónleika á Nasa á laugardags-
kvöldið og mun sveitin fá nýtt nafn þetta
kvöld sem er tileinkað liðsmanni bandsins.
„Jens er í miklu uppáhaldi hjá okkur í Sálinni.
Hann er okkar Ringo Starr og hefur verið
endalaus uppspretta skemmtilegheita alveg
frá því hann byrjaði í bandinu. Af því tilefni
viljum við tileinka honum þetta kvöld og
skýra hljómsveitina Sálin hans Jens míns
þetta eina kvöld.“
RAKAKREM
„Græðandi og sneisafullt
af vítamínum.“
2.290 kr.
Body Shop
DUNLOP
TASKA
„Rúmgóð og svöl.“
1.490 kr.
Sautján
BOBBIE BURNS
SKÓR
„Léttir og þægilegir.“
8.990 kr.
Gallerí Sautján
SOLID BUXUR
„Drapplitað kemur
sterkt inn í sumar.“
12.990 kr.
Gallerí Sautján
SVITAEYÐIR
„Maca root sem
inniheldur
aloe vera-gel.“
1.290 kr.
Body Shop
DIESEL
BELTI
„Töff belti gerir
góðar buxur
betri.“
8.990 kr.
Gallerí Sautján
STURTUSÁPA
„Fyrir húð og hár
frá Of A Man.“
1.490 kr.
Body Shop
SÓLGLERAUGU
„Ekki bara fyrir Stevie
Wonder.“
1.990 kr.
Gallerí Sautján
SOLID SKYRTA
„Fyrir bæði
hversdagsleg og
fínni tilefni.“
7.990 kr.
Gallerí Sautján
SOLID V-
BOLUR
„Klassík undir
hvaða flík sem er.“
2.990 kr.
Gallerí Sautján
EURO-HAUKUR ER DÓSENT Í EUROVISION
Emil Gunnar fílar gamaldags lúkk
og er tilbúinn fyrir sumarið.
GUMMA OG STEBBA ÞYKIR VÆNT UM JENS
OG TILEINKA HONUM NÆSTU TÓNLEIKA