Monitor - 15.04.2010, Side 14
Hvort er meira kúl, 80’s eða 90’s?
L Ég á erfitt með að gera upp á milli þannig að ég ætla að bara að
svara spurningunni eins og árið sé 1995 og ég hafi verið að labba út af
Kids í Regnboganum og ég sé að spá í hvort fólk sem hlustar á Oasis
eigi eitthvað bágt. Með það í huga þá hljómar svarið einhvern veginn
svona: „Auðvitað 90´s, maður, ertu eitthvað vangefinn?“
Hver er besta power-ballaða allra tíma?
L Nothing Else Matters með Metallica er eina power-ballaðan í lífi
mínu. Það er eflaust hægt að finna margt athugavert við unitardana í
Metallica en ég stend fast á þessu.
Hvað er það ógeðslegasta sem þú hefur séð á netinu?
L Ég gekk vissulega í gegnum Rotten.com-tímabil en ekkert þar inni
náði að toppa sítrónuklúbbinn eða rúllettuna sem ég mæli ekki með
fyrir þá sem eiga erfitt með að viðhalda trú á mannkyninu.
Hver myndi vinna Survivor: FM Belfast og af hverju?
L Ok, þetta er besta spurning sem ég hef verið spurð að fyrir utan
spurninguna: „Viltu byrja með mér?“ Sko, þar sem Árni Vil og Örvar
eru alltaf að hreyfa sig þá held ég að þeir myndu sigra í líkamlegu
þrautunum. Ég myndi vera með sálrænan skæruhernað og undirferli
en fengi að lokum samviskubit og myndi koma upp um plottið mitt,
Árni Rúnar væri búinn að finna upp eitthvert pottþétt kerfi og myndi
á endanum sigra með því að leysa allar skrýtnu þrautirnar og svo
myndi fólk enda með því að kjósa hann af því að hann er bara svo
góður gæi. Ég veit samt ekki með öflun matar, ekkert okkar gæti
það. Kannski myndum við bara öll deyja úr hungri og sólbrúnir og
skorpnir líkamar okkar myndu smám saman eyðast og verða að
fíngerðum sandi.
Hver yrði kosinn fyrstur af eyjunni?
L Árni Vil því hann er svo stríðinn.
Hvern myndir þú éta úr FM Belfast (til að bjarga þér frá hungur-
dauða) og hvaða líkamshluta?
L Ætli ég myndi ekki bara enda með því að
borða upphandlegginn á sjálfri mér.
Strákarnir eru allir orðnir svo horaðir
eða búnir að hlaupa sig seiga og
óæta.
Hvort myndirðu kela við
Michael Moore eða Roger
Moore?
L Roger Moore ef ég
mætti setja á hann
hárkollu og sminka yfir
lifrarblettina á honum.
Æi, þetta var nú ekki
fallega sagt.
Hvort er meira kúl, 80’s eða 90’s?
Á Ég veit það ekki, ég er mest fyrir framtíð´s.
Hver er besta powerballaða allra tíma?
Á Baker Street með Gerry Rafferty. Hvað er skemmtilegra en að gera „lúft saxófón“ þegar maður
dansar?
Hvað er það ógeðslegasta sem þú hefur séð á internetinu?
Á Einu sinni bauð vinkona mín mér að horfa á „ótrúlega fyndið“ myndband. Ég settist við tölvuna
og eftir nokkrar sekúndur var ég að horfa á prest gera eitthvað sem maður myndi aldrei sjá nokkurn
mann gera við nunnu. Ég er með sár á sálinni eftir þennan atburð.
Hver myndi vinna Survivor: FM Belfast og af hverju?
Á Örvar myndi vinna Survivor af því að hann er manískastur af okkur og með besta keppnisskapið, á
mjög góðan hátt samt. Sálfræðihernaðurinn hans væri að planta inn samviskubiti hjá okkur daglega
þar til við myndum bugast sálfræðilega. Hann væri hæfastur í þrautum þar sem hann er í líkamlega
besta forminu og svo sé ég fyrir mér að hann væri skuggalega góður í að veiða fisk þar sem hann er
mikil fiskæta. Einnig myndi hann vita hvar ætti að finna bestu berin.
Hver yrði kosinn fyrstur af eyjunni?
Á Árni Rúnar yrði kosinn fyrstur af eyjunni þar sem að allir væru hræddastir við hann. Ekki af því
að hann er ógnandi heldur af því að hann yrði fyrstur til þess að byggja besta kofann. Svo væri hann
sennilega líka útsjónasamastur og tæknilegastur. Hann myndi á skömmum tíma búa sér til vélmenni
sem aðstoðarmann. Við myndum þó ekki kjósa hann burt fyrr en hann væri búinn að byggja kofann.
Hvern myndir þú éta úr FM Belfast (til að bjarga þér frá hungurdauða) og hvaða líkamshluta?
Á Það væri ekki hægt að borða Árna Rúnar þar sem að það er
ekkert kjöt á utan á honum. Ég myndi að sjálfsögðu borða
sætu handleggina á Lóu. Þeir eru örugglega mjög
meyrir og yndislegir á bragðið. Ég þyrfti enga
marineringu - aðeins salt og pipar og bara
litla steikingu. Eða innra lærið á Lóu.
Namm, léttsteikt Lóulæri með salti og
pipar. Ég þyrfti ekki einu sinni sósu!
Hvort myndirðu kela við Michael
Moore eða Roger Moore?
Er Roger Moore ekki
dáinn? Nei, ég myndi
að sjálfsögðu vilja
kela við Michael
Keaton en
hann yrði
þá að vera
í Batman-
búningn-
um.
Árni og Lóa um allt sem skiptir máli
14 Monitor FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2010