Monitor - 15.04.2010, Qupperneq 17
17FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2010 Monitor
Crazy Heart
Leikstjóri: Scott Cooper
Byggð á samnefndri bók frá
árinu 1987 um kántrítón-
listarmanninn Bad Blake,
sem reynir að umturna lífi
sínu eftir að hann byrjar
með ungri fjölmiðlakonu. Jeff Bridges
hlaut Óskarsverðlaunin fyrir
frammistöðu sína sem Bad
Blake.
Un Prophéte
Leikstjóri: Jacques Audiard
Ungur arabi er sendur
í franskt fangelsi þar
sem hann kemst fljótt til
mikilla valda. Var tilnefnd til
Óskarsverðlauna
sem besta erlenda
myndin.
Das Weisse Band
Leikstjóri: Michael Haneke
Undarlegir atburðir eiga sér
stað í smáþorpi í Norður-
Þýskalandi á árunum fyrir
fyrri heimsstyrj-
öldina og líta
út fyrir að vera
einhvers konar trúarbragðahegningar.
Illa farin og bæld börnin í þorpinu virðast
vera lykilinn að lausn ráðgátunnar.
Black Dynamite
Leikstjóri: Scott Sanders
Bráðfyndin mynd sem gerir
grín að gömlu
blaxploitation-
myndunum, en
er ekkert annað en einmitt
svoleiðis mynd.
The Last Station
Leikstjóri: Michael Hoffman
Fjallar um Leo Tolstoy og
baráttu hans við að finna
jafnvægið milli
frægðar og
ríkidæmis annars
vegar og andúðar hans á
efnisgæðum hins vegar. Myndin var
tilnefnd til tvennra Óskarsverðlauna. Í
aðahlutverkum eru Christopher Plummer,
Helen Mirren og Paul Giamatti.
The Messenger
Leikstjóri: Oren Moverman
Kröftug mynd um hermenn-
ina sem hafa það hlutverk að
færa ættingjum
fallinna hermanna
slæmu fréttirnar.
Woody Harrelson var
tilnefndur til Óskarsverðlauna og vann
Golden Globe fyrir frammistöðu sína.
Myndin hlaut einnig óskarstilnefningu
fyrir besta frumsamda handrit.
Moon
Leikstjóri: Duncan Jones
Sam Bell (Sam Rockwell)
hefur verið einn og yfirgefinn
í geimstöð nokkurri í hátt
í þrjú ár. Einu
samskiptin sem
hann á í eru við
GERTY (Kevin Spacey). Sam er farinn að
sjá ofsjónir og eftir að hann lendir í slysi
fer hann að efast um GERTY og allt sem
því tengist.
Nowhere Boy
Leikstjóri: Sam Taylor-Wood
Bresk mynd sem
fjallar um æsku
Johns Lennons og
var tilnefnd til fernra BAFTA-
verðlauna. Með hlutverk
Lennons fer hinn bráðefnilegi
Aaron Johnson og Kristin Scott Thomas
fer með hlutverk Mimi frænku hans.
Triage
Leikstjóri: Danis Tanovic
Eiginkona stríðs-
fréttaljósmyndara
reynir að komast
að því af hverju eiginmaður
hennar sneri heim frá síðasta
verkefni án kollega síns.
The Young Victoria
Leikstjóri: Jean-Marc Valiée
Kvikmynd um fyrstu árin
í drottningartíð
Victoriu, en
hún var aðeins
18 ára er hún var krýnd. Í
aðahlutverkum eru Emily
Blunt, Paul Bettany, Miranda Richardson,
Jim Broadbent og Rupert Friend.
Videocracy
Leikstjóri: Erik Gandini
Sláandi heimildarmynd
um Silvio Berlusconi,
fjölmiðlaveldi hans og áhrif á
ítalska menningu.
Lágmenningin
tröllríður öllu og
það er stærsti draumur ítalskra kvenna
að komast að í sjónvarpinu sem fáklædd-
ar hjálparhellur, því þá geta þær kannski
gifst knattspyrnumanni.
Burma VJ
Leikstjóri: Anders Østergaard
Margverðlaunuð heim-
ildarmynd um
ógnarstjórnina í
Búrma. Myndin
veitir einstaka innsýn í
hættulegustu tegund blaðamennsku sem
fyrirfinnst auk þess að skrásetja í þaula
þá örlagaríku daga í september 2007
þegar munkarnir í Búrma hófu mótmæli
sín.
Rudo Y Cursi
Leikstjóri: Carlos Cuarón
Teymið á bak við Y tu mamá
tambien sameinast í mynd
um bræður sem
berjast á knatt-
spyrnuvellinum.
Carols Cuaroón bæði leikstýrir og skrifar
handritið og í aðalhlutverkum eru Gael
García Bernal og Diego Luna.
The End of the Line
Leikstjóri: Rupert Murray
Sláandi heimildarmynd
um áhrif ofveiði
samtímans á höf
heimsins. Hér er
sýnt fram á að á næstu 50
árum gætu fiskistofnarnir
þurrkast út. Myndin var
tekin á tveimur árum víða um veröld og á
mikið erindi við Íslendinga.
Fantastic Mr. Fox
Leikstjóri: Wes Anderson
Brúðumynd sem tilnefnd
var til tvennra
Óskarsverðlauna.
George Clooney
talar fyrir Mr. Fox og á meðal
annarra sem talsetja eru
stórleikararnir Meryl Streep, Bill Murray
og Willem Dafoe.
The Imaginarium
of Doctor Parnassus
Leikstjóri: Terry Gilliam
Ferðaleikhús gefur
áhorfendum sínum mun
meira en þeir áttu von á.
Þetta er síðasta
kvikmyndin sem Heath Ledger
lék í en í öðrum aðahlutverk-
um eru Johnny Depp, Colin Farrell, Jude
Law og Christopher Plummer. Myndin var
tilnefnd til tvennra Óskarsverðlauna, fyrir
búninga og leikmynd.
Hachiko: A Dog’s Story
Leikstjóri: Lasse Hallström
Hjartnæm mynd byggð á
sannri sögu um
vináttu háskóla-
prófessors og
hunds sem hann tekur að
sér. Richard Gere fer með
aðalhlutverkið.
Ondine
Leikstjóri: Neil Jordan
Colin Farrell leikur írskan
sjómann sem bjargar konu
á reki í sjónum.
Hún kallar sig
Ondine og virðist
minnislaus. Ástir takast með þeim en
dóttur sjómannsins fer að gruna að hér
sé á ferðinni lauslát hafmeyja.
Dialog
Leikstjóri: Cezary Iber
Heimildarmynd um tvo unga
vini frá Póllandi,
Fiann og Önnu,
sem ferðast um
Ísland, heimsækja leikskóla,
taka myndir og leita að
draumi.
The Cove
Leikstjóri: Louie Psihoios
Afbragðs góð
heimildarmynd
um dráp á
höfrungum í Japan. Myndin
hlaut Óskarsverðlaunin í ár
sem besta heimildarmynd.
The Living Matrix
Leikstjóri: Greg Becker
Hér eru afhjúpaðar nýstár-
legar hugmyndir um þann
flókna vef ólíkra
þátta sem ákvarða
heilsu okkar. Rætt
er við fjölda sérfræðinga úr ýmsum áttum
sem hafa rannsakað málið og komist
að því að orku- og upplýsingasvið ráða
heilsu og velferð manna.
Food, Inc.
Leikstjóri: Robert Kenner
Sláandi heim-
ildarmynd um
matvælaiðnaðinn
í Bandaríkjunum. Eftir að
hafa séð þessa mynd mun
fólk aldrei líta matinn sömu augum.
Trash Humpers
Leikstjóri: Harmony Korine
Vel súr mynd
um gamalt fólk
sem riðlast á
ruslagámum. Myndin er
tekin upp og unnin á VHS
sem er eingöngu til þess að
auka á það hversu steikt hún er.
Until The Light Takes Us
Leikstjórar: Aaron Aites og
Audrey Ewell
Heimildarmynd um hug-
myndafræði og
ansi sjokkerandi
sögu svartþunga-
rokksins (black metal) í
Noregi þar sem keppinautar
drepa hvorn annan.
7,5
8,1
8,1
7,5
7,3
7,5
8,0
7,3
6,8
7,1
6,5
8,0
6,9
6,9
8,1
7,3
8,1
7,8
8,6
7,4
7,9
5,9
7,4
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4000
Námsstyrkir fyrir
félaga í Námsvild
Árlega veitir Íslandsbanki tíu félögum í Námsvild námsstyrk
2 styrkir til framhaldsskólanáms kr. 100.000 hver
4 styrkir til háskólanáms (BA/ BS/ B.Ed) kr. 300.000 hver
4 styrkir til framhaldsnáms á háskólastigi kr. 500.000 hver
Umsóknarfrestur er til 1. maí 2010.
Sótt er um á vef Íslandsbanka, www.islandsbanki.is.
Ókeypis debetkort
150 fríar debetkortafærslur á ári
Styrkir til náms og bókakaupa
Stúdentakort hlaðið fríðindum
Framfærslulán í erlendri mynt
... og margt fleira
Helstu kostir Námsvildar
Græna ljósið stendur fyrir þriggja
vikna kvikmyndaveislu í Regnbog-
anum, sem hefst föstudagskvöldið
16. apríl. „Við tökum alveg gjörsam-
lega yfir Regnbogann og verðum
með eitthvað í gangi í öllum sölun-
um. Við sýnum flestar myndirnar
nokkuð mörgum sinnum þannig að
fólk hefur gott tækifæri til þess að
sjá þær,“ segir Ísleifur Þórhallsson,
framkvæmdastjóri Græna ljóssins.
Sýndar verða 24 kvikmyndir
á hátíðinni og eru þar á meðal
nokkrar sem lofa virkilega góðu.
„Við erum með alveg sérstaklega
sterkar myndir í ár. Við höfum
reynt að passa okkur vel að hleypa
engu inn sem ekki er mikið varið
í,“ segir Ísleifur og heldur áfram:
„Við gerum þetta með Senu og
Myndformi. Setjumst yfir hvað við
eigum og erum duglegir að horfa á
og meta. Við fylgjumst líka vel með
því sem er áhugavert úti í heimi og
kippum til okkar því sem okkur líst
áberandi vel á. Við sóttum sérstak-
lega nokkrar myndir fyrir hátíðina,
eins og til dæmis Cove, End of the
Line og The Living Matrix,“ segir
Ísleifur.
Nokkrar draga vagninn
Ísleifur segir aðsókn á Bíódaga
hafa verið nokkuð breytilega
eftir árum, en í fyrra var aðsóknin
fremur dræm. „Þetta fer mikið eftir
úrvalinu. Það eru alltaf einhverjar
myndir sem slá í gegn og draga
svolítið vagninn. Það er svo alltaf
spurning hversu stórar þær verða,“
segir Ísleifur.
Hann kveðst sjálfur vera búinn að
sjá flestar myndirnar á hátíðinni,
en segir erfitt að nefna nokkrar sem
standi upp úr. „Crazy Heart, Prophet
og Weisse Band eru allar frábærar.
Black Dynamite er mjög skemmtileg
og heimildarmyndirnar finnst mér
líka mjög áhugaverðar. En þetta
eru allt alveg hörkumyndir,“ segir
Ísleifur.
24 flottar myndir á Bíódögum sem
hefjast í Regnboganum um helgina.
Sérstaklega
sterkar
myndir í ár
Mynd/Ernir