Morgunblaðið - 25.03.2010, Síða 10
Þessi réttur í anda Indónesíu er fljótlegur og tilvalinn sem
forréttur. Það sem þarf fyrir fjóra er:
400-500 g risarækjur, skelhreinsaðar
fínt rifinn sítrónubörkur af hálfri sítrónu
1 dós kókoshnetumjólk
1 dl vatn
½ teskeið rifin múskathneta eða múskatkrydd
5 negulnaglar, muldir
1 tsk. salt
3 dl hrísgrjón, long grain eða jasmín
3 msk. ólívuolía eða sólblómaolía
chiliflögur úr kvörn
Hellið kókósmjólkinni á pönnu ásamt sítrónuberkinum
og kryddinu. Látið suðuna koma upp og bætið þá grjón-
unum saman við. Lækkið hitann og látið grjónin sjóða
undir loki í mjólkinni í 10-15 mínútur. Hrærið þá kókós-
mjólkinni saman við grjónin ef þarf og bætið við örlitlu
meira vatni ef þörf er á. Geymið grjónin undir loki þegar
þau eru tilbúin.
Skolið rækjurnar og blandið saman við olíuna. Kryddið
með chiliflögunum, salti og pipar. Það er einnig til tilbúið
krydd sem hentar ágætlega t.d. „hot chili seasoning“ frá
Cape Herb þar sem allt þetta er að finna, chili, salt og pip-
ar.
Steikið rækjurnar á pönnu í fjórar til fimm mínútur.
Berið fram með grjónunum.
Steingrímur Sigurgeirsson
Uppskriftin
Indónesísk kókosgrjón
með chili-krydduðum
risarækjum
Fleiri uppskriftir má finna á Matur og vín – vef Morgunblaðsins: www.mbl.is/matur/
kynntu þjónustu sína voru frá Laug-
arvatni, Gullfossi, Geysi, Reykholti,
Skálholti, Grímsnesi og Flúðum.
„Við erum að kynna gististaði,
veitingahús og fjölbreytta afþrey-
ingu. Þjónusta við ferðamenn er
vaxandi atvinnugrein á þessu svæði
og Íslendingar eru ekki síður dug-
legir en útlendingar að nýta sér það
sem er í boði, sérstaklega vinnu-
staðahópar og hinir ýmsu klúbbar.“
Ásborg segir að í þeim mat sem
boðið sé upp á leggi allir áherslu á
að nota hráefni úr heimabyggð.
„Hvort sem það er silungur, lamb,
naut, grænmeti eða annað. Þetta
fólk vinnur allt saman sem einn klasi
og þau leggja áherslu á sérstöðuna.“
Þegar gengið er um kynning-
arsvæðið kemur margt áhugavert í
ljós. Til dæmis felst vetrarheimsókn
í Friðheima Reykholti í því að fá
innsýn í vistvæna tómataræktun
inni í hlýjum gróðurhúsum og auð-
vitað að smakka. Þá er líka hægt að
fá að kíkja á hrossin í hesthúsinu og
fræðast um íslenska hestakynið. Á
sumrin eru þau svo með glæsilegar
hestasýningar úti við. Í Reykholti er
líka að finna notalega veitingastað-
inn Kaffi Klett og gistiheimilið Hús-
ið.
Heimsins besta súkkulaðimús
Húfa er fyrirtæki á Laugarvatni í
eigu Ann-Helen Odberg, lektors við
Íþróttaháskólann á Laug-
arvatni, en hún býður upp á
heilsubætandi upplifun í
gegnum sögu, menningu
og náttúru staðarins. Heilsu-
ganga í fjallshlíð, glímusýning,
ratleikur og kennsla í notkun hand-
klæðis er aðeins brot af því sem
Húfa hefur á sinni könnu.
Nokkrir hraustir garpar frá
Laugarvatn Adventure kynntu æv-
intýraferðir, en þeir fara með fólk í
hellaskoðunarferðir í Gjábakkahelli,
Litla-Björn og Trinton, sem allir eru
ofan í jörðinni. En einnig bjóða þeir
upp á gönguferð í Stóragil þar sem
Stórihellir er heimsóttur í leiðinni.
Veitingahúsið Lindin á Laug-
arvatni bauð upp á bestu súkku-
Eftir Kristínu Heiðu
Kristinsdóttur
khk@mbl.is
„VOR, haust og hávetur er ekki
síður góður tími en hásumar til
að koma í sveitina og njóta þess
sem þar er boðið upp á,“ segir
Ásborg Arnþórsdóttir ferða-
málafulltrúi, en á þriðjudag
komu fjórtán fyrirtæki frá
uppsveitum Árnessýslu og
kynntu starfsemi sína í Ráðhúsi
Reykjavíkur, undir nafninu
Velkomin á stefnumót við
Gullna hringinn.
„Svæðið er vel aðgengi-
legt allt árið og kjörið til
vetrarferðamennsku. Við
viljum vekja athygli á
að „Gullni hringurinn“ er
mun stærri og
fjölbreyttari en menn
halda.“
Fyrirtækin sem
Grafin kýr, hella-
skoðun og veiði
Ofantalið er aðeins brot af öllu því fjölbreytta sem boðið er upp á fyrir þá sem
sækja heim uppsveitir Árnessýslu á vetrum, ekki síður en sumrum. Siglingar,
hestasýningar og ratleikir eru líka meðal þess sem hægt er að nýta til afþreyingar.
Stúlka í mið-
aldabúningi bauð
upp á fjallagrasaparta
frá miðaldamatborði í
Skálholti en þar má
finna menningartengda
ferðaþjónustu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
10 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2010
Heimsmeistaramótið í brús verður
háð á Rimum í Svarfaðardal kl. 20.30
annað kvöld, föstudagskvöld. Brús
hefur lengi verið spilað í Svarf-
aðardalnum en spilareglur í brúsi eru
ólíkar öðrum spilum og spilagildi eru
önnur. Þeir sem hafa áhuga á að
kynna sér brús geta lesið spilaregl-
urnar á vefslóðinni: www.dalvik.is/
Stjornsysla/Fraedslu--og-menning-
arsvid/Svarfdaelskur-Mars/Spilum-
brus/.
Heimsmeistaramótið í brúsi er
haldið í tengslum við menningarhá-
tíðina Svarfdælskur mars sem fer
fram í Dalvíkurbyggð um helgina, 26.
til 28. mars.
Í tilefni af því að nú munu vera
1.100 ár síðan þeir Þorsteinn svörf-
uður og Karl rauði námu hér land
verður dagskrá tengd landnámi og
Íslendingasögum í Menningarhúsinu
Bergi á laugardag og hefst hún kl. 14.
Þar flytja erindi: Sigtryggur
Magnason, Ingibjörg Hjartardóttir,
Atli Rafn Kristinsson og Einar Kára-
son. Karlakór Dalvíkur flytur líka
dagskrá um Svarfdælu í tali og tón-
um.
Kl. 21 á laugardagskvöldinu verður
svo marsinn tekinn á Rimum. Pörin
verða númeruð kl. 21.30 og hljóm-
sveit Hafliða spilar.
Á sunnudeginum kl. 13 verður
kirkjuferð um Svarfaðardal með fróð-
leik og tónlist.
Endilega …
Morgunblaðið/Jim Smart
Spil Ætli þessi hendi myndi færa einhverjum heimsmeistaratitilinn í Brús?
… spilið brús í Svarfaðardal
SPRINT
KSO
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Faxafeni 8 // 108 Reykjavík // Sími 534 2727
VINSÆLU KOMINR AFTUR
Samtök kvenna af erlendum uppruna
á Íslandi og Kvenréttindafélag Ís-
lands bjóða til viðburðar í kvöld undir
yfirskriftinni „þjóðlegt eldhús“.
Eldaður verður saman góður, fram-
andi og freistandi matur frá mismun-
andi heimshornum. Kynnt verður ný
matargerð, farið í notkun á framandi
kryddjurtum og sagt frá matarmenn-
ingu ýmissa þjóða. Konur úr samtök-
unum kynna landið sitt og menningu
í gegnum mat, sögur og myndir.
Þjóðlega eldhúsið fer fram í kvöld
kl. 19.30 á Hallveigarstöðum. Skrá
þarf þátttöku með tölvupósti á mar-
ia@womeniniceland.is. Þátttökugjald
er 800 kr. og greiðist á staðnum.
Matargerð
Þjóðlegt
eldhús í kvöld
Morgunblaðið/ÞÖK
Margskonar Matur verður eldaður.