Morgunblaðið - 25.03.2010, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 25.03.2010, Qupperneq 17
Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2010 Eftir Ingibjörgu Rósu Björnsdóttur ingibjorgrosa@mbl.is JÓN Pétursson, göngugarpur á Akranesi, man ekki jafnsnjólétta tíð og í vetur og telur að einhver hætta sé á vatnsskorti á Skaganum í sum- ar ef þurrkatíð verður mikil. Akrafjall hefur verið nánast snjó- laust í allan vetur og segir Jón að fjallið líti svipað út og það væri miður maí „í gamla daga“ þegar hann var strákur. Jón er orðinn 75 ára og þekkir Akrafjallið betur en margir enda farið margar ferðir á fjallið. Um áramótin 1997-98 hafði Jón forgöngu um að koma gesta- bókum fyrir í járnkassa við Háa- hnjúk, næsthæsta tind Akrafjalls. Gönguferðir þangað hafa orðið sí- vinsælli og samkvæmt gestabók- unum fara á bilinu 1700-2000 manns á Háahnjúk árlega. Sjálfur hefur Jón ekki gengið á Akrafjall í hálft annað ár, vegna veikinda en er kominn til heilsu aftur og stefnir að því að fara fljótlega í göngu á fjallið. Gætu orðið vandræði í sumar Fyrir veikindin fór Jón fimmtíu ferðir á fjallið á einu ári þegar mest var og gjörþekkir því fjallið. Eins og áður sagði man hann ekki til þess fyrr að Akrafjall hafi verið nánast snjólaust heilan vetur. „Það er enginn snjór á fjallinu fyrir utan nokkra skafla sem komu í kulda- kastinu um daginn, sem varði nú bara í þrjá daga. En þetta gæti orðið til vandræða í sumar ef það verður þurrt, þá verðum við senni- lega vatnslaus hérna á Skaganum,“ segir Jón en í vatnsból Akurnes- inga safnast yfirborðsvatn úr Akra- fjalli. „Ef við fáum jafngott sumar og undanfarin ár er ég hræddur um að verulega minnki í vatnsbólinu okkar.“ Vinsælar gönguleiðir Upp á Akrafjall eru tvær vinsæl- ar gönguleiðir, annars vegar upp á Háahnjúk sem er í sunnanverðu fjallinu og hins vegar á Geirmund- artind norðanmegin, hæsta tind fjallsins. Jón segir útsýnið af Akra- fjalli geysifagurt og hvetur fólk til að ganga á fjallið sér til skemmt- unar og til að fá hreyfingu. „Það er aðeins erfiðari leið, enda er Geir- mundurinn nærri hundrað metrum hærri og verra að ganga þá leið en útsýnið er ekkert síðra en af Háa- hnjúk,“ en þegar Jón var í sínu besta formi gekk hann stundum upp að Geirmundartindi og svo suð- ur yfir á Háahnjúk. Sú ganga tekur um 5-6 klukkutíma og mælir Jón eindregið með því að fólk gangi á Akrafjall, því fylgi mikil sálarró auk útsýnisfegurðar. „Ég hef nú ekki farið á Esjuna en þeir sem hafa gengið á bæði fjöllin segja að það sé miklu skemmtilegra að ganga á Akrafjall.“ Morgunblaðið/Ómar Eins og fjólubláir draumar Eins og sjá má eru einungis nokkrir snjóskaflar í Akrafjallinu. Akrafjall nær snjó- laust í allan vetur  Áratugir síðan jafnlítill snjór hefur sést í fjallinu  Heimamaður hefur áhyggjur af vatnsskorti í sumar Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga- fulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur seg- ir menn þar á bæ ekki hafa áhyggj- ur af mögulegum vatnsskorti á Skaganum, þrátt fyrir óvenju þurra tíð í vetur. „Öll okkar forðabúr þarna á leiðinni eru full af vatni. Það er stífla ofarlega í Akrafjalli og þar flæðir vel út á yfirfallinu svo svæðisstjórinn okkar hefur ekki áhyggjur af vatnsskorti á næst- unni. Það þyrfti langvarandi þurrk til að vatnsbólið þornaði og meðan það koma úrkomudagar inn á milli á þetta ekki að verða vandamál. Svo við sjáum ekki tilefni til að hafa áhyggjur á þessum tíma- punkti.“ Fari allt á versta veg og mikið þurrkasumar fylgi á eftir þessum snjólétta vetri segir Eirík- ur að Orkuveitan myndi grípa til hefðbundinna aðgerða á borð við að biðja íbúa svæðisins að fara sparlega með vatn. „En við sjáum ekki fram á að þurfa að grípa til slíkra úrræða á þessari stundu.“ Engar áhyggjur enn EDDA útgáfa hlaut fyrr í vikunni al- þjóðlega viðurkenningu Disney Worldwide Publishing fyrir einstakan árangur í markaðssetningu og kynn- ingu á vörumerkjum Disney hér- lendis. Viðurkenningin var afhent í Bologna á Ítalíu af Russel Hamton, forstjóra útgáfusviðs Disney World- wide, að viðstöddum fulltrúum frá mörgum af helstu útgáfufyrirtækjum heims. Jón Axel Ólafsson tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd starfsfólks Eddu útgáfu. Edda útgáfa hlaut viðurkenninguna ekki síst fyrir framúrskarandi góðan árangur við að auka útbreiðslu og áskrift að Andrési Önd. Í þeim efnum var sérstakri at- hygli beint að kynningu Eddu útgáfu á Andrési Önd í Smáralind og að Disneyblaðinu, sem fyrirtækið fram- leiðir ásamt Morgunblaðinu í samvinnu við Disney. Á útgáfuhátíð Disney Worldwide Publishing í Bologna voru alþjóðlegar viðurkenningar veittar í þremur öðrum flokkum. sbs@mbl.is Fá viðurkenningu fyrir Andrés Andrés Árangur Eddu útgáfu við að auka útbreiðslu á Andrési Önd og Disneyblaðinu þykir vera mjög góður. Framúrskarandi árangur hjá Eddu, að mati Disney Jón Axel Ólafsson HANNA Birna Kristjánsdóttir borg- arstjóri úthlutaði níu námsstyrkjum úr Guðrúnarsjóði í Höfða í gær. Hver styrkur er að upphæð 74 þús- und kr. en styrkirnir eru veittir full- orðnum einstaklingum sem hafa sýnt dugnað og elju í námi. Þeir sem hlutu styrkinn eru: Árni Geir Árna- son, Guðbjörg Birgisdóttir, Guðlaug Ragnarsdóttir, Halina Leonsdóttir, Íris Björk Ingadóttir, Jennifer Geti- al, Mary Luz Suarez Ortiz, Zija Krrutaj og Þórleif Lúthersdóttir. Sjóðurinn var stofnaður fyrir fimm árum í samstarfi við Eflingu – stéttarfélag en hann er nefndur eftir Guðrúnu Halldórsdóttur, fyrrver- andi forstöðumanni Námsflokka Reykjavíkur og brautryðjanda á sviði fullorðinsfræðslu. Níu námsstyrkir úr Guðrúnarsjóði Guðrúnarsjóður Styrkhafar ásamt borgarstjóra fyrir utan Höfða í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.