Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.04.1968, Page 18

Skólablaðið - 01.04.1968, Page 18
INNI 1 myrkum helli standa tvær ófreskjur og horfa hvor á aðra. Þær eru alveg eins. Ég er báöar þessar é- freskjur, og eg horfi a hvora um sig með augum hinnar. 1" kringum migheyr- ast öskur. Mer er sagt að ég sé geðveikur. Það getur svo sem vel verið, en að minnsta kosti íþyngir geðveikin mérekki mjög mikið. Ég sé stundum hluti, sem mér er sagt að séu ekki raunverulegir, en þeir eru yfirleitt fallegri en veru- leikinn. Það raunverulejga sé ég líka öðruvisi en aðrir. Ég a svo erfitt með að gera upp á milli raunveruleika og ímyndar. Það læt ég mig raunar litlu skipta. Mér líður vel hérna á hælinu. Áður en ég var sendur hingað, éttað- ist ég það. Ég hélt að ég yrði lokaður inni í gluggalausum klefa. En ég fæ oft að fara ut. Og hérna í" klefanum mínum fæ ég að hafa ritvél. Við hana sit ég stundum og skrifa niður hugsanir mínar og sýnir. Mér líður oftast betur á eftir. Stafirnir á vélinni hlaupa til og frá með ognarhraða. Inni í" herberginu er aðeins eitt ljos, o^ það myndast skuggar af bókastöflunum a skrifborðinu. 1" þess- um skuggum byr folk, og einnig það á sínar hugsanir og tilfinningar. Og svnir. Það er mitt félk. Við gengum eftir veginum og öskuð- um í" gegnum pollana. I” fjarska heyrðurn við sturtað niður en hvað verðar mig um þjoðlega bygg- ingarlist, og það verður enginn maður a að svívirða landbunaðinn. Þeir sitja vásl á þaki turnsins. já. vel á minnst, ég hef aldrei skilið af hverju þeir byggðu svona haan turn. Þeir sögðu hann vera tákn. Ég held að hann gæti aðeins verið tákn ljétleikans. Þetta er það ljétasta mannvirki, sem ég hef augum litið. En hann var þé skárri á meðan stillansarnir voru enn. Það gat þá verið gaman að ganga fram hja í snjékomu og roki og heyra hvininn ur turninum. Svo rifu smiðirnir utan af hon- um. Og það var þetta með mennina tvo, þeir gleymdust ví"st uppi á þaki. Þakið er bratt sitt hvoru megin við mæninn á því miðju. Það er klætt é- máluðu blikki. Á því" er einn gluggi og steinsteyptur strompur. Upp að honum hallar annar maðurinn sér, en hinn sit- ur a mæninum. Þeir sitja þarna og virðast ekki gefa umheiminum neinn gaum, né heldur hafa hugmynd um hvar þeir eru staddir. Þannig missir annar maðurinn spil og

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.