Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 23

Skólablaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 23
153 á eftir skoðun sinni á hörundsdökkum : "ÞÓ vil eg á engan hátt kenna mig við menntasnobba eða aðra menningarafglapa" Kveðst hann þar eiga við sextíumenning- ana, og er ut af fyrir sig fróðlegt að kynn- ast svo "þjóðernissinnuðu" áliti á mörgum merkustu mönnum íslenzks þjóðfélags. Þannig segir Geir nánast berum orðum, að forsendur þess að við varðveitum þjóð- erni vort, seu ekki menningarlegar heldur kynþáttalegar. Við höfum semsé aðeins uppáferðir einhverra kalla 1 fornöld til að mikla okkur af sem þjóð. Þessi fordæming á öllu sem menning heitir, var vinsæl mjög í Hitlers-Þyzka- landi, þar voru lítillækkuð verk Goethes og Schillers og mjög haldið á lofti slagorð- um um "urkynjaða list". f anda þess eru lítillækkanir Fjörnismanna á atómskáld- verkum, sem að þvi er virðist er sam- heiti yfir allan þann skáldskap, sem ekki þýðist rammasta afturhald. Fyllsta á- stæða er því fyrir tilgátu óskars um stjórnmálaskoðun þeirra, þegar þeir lcggja meiri áherzlu á kjaftæði um blóð- blöndun og kynbætur heldur en sókn fyrir menningarlegu sjálfstæði þjóðarinnar, og þeir sem það gera stimplaðir kommunist- ar. Slík speki dugar aðeins hönum, svíh- um og hrútum. VÍsa Vilhjálms Andrésson- ar "Frómi njólinn" (úr Kompásnum ) lýsir glögglega fylgjendum hennar : Frómi njólinn fnásaði, froðufelldi og ragnaði, og hagræddi þeim hagnaði sem af halanegra tók. Að endingu vill Inspirasjón mæla með innflutningi þeldökkra manna hingað, þ. e. a. s. ef þeir taka upp tungu vora og hætti, og getur þá myndazt vúsir að þeim samein- aða kynþætti, er óhjákvæmilega erfir heiminn eftir fáar aldir. Inspiristar. Frá Sjónarhóli Alkóhólistans r upphafi máls mins vil ég sýna fram á, að sá hópur, sem ég er fulltrúi fyrir, er stór, og málsstaður minn á viða fylgjendur. Jafnvel 1 ofstækisfullum bindindisfélög- um eins og Uno Ore er samherja að finna. Dæmið er nærtækt. r 4. tbl. 43. árg. Skólabl. í 1. ,2. , 3. og 1/3 af 4. lánu 128. bls. standa þessi orð : "Það hefur löngum þótt aðalsmerki góðra baráttumanna að hafa þá váðsýni til að bera, að meta og skilja sjónarmið hins aðilans, þótt hann fallist ekki á þau sjálfur" Höf. þessarar klausu hefur bersynilega ekki verið allsgáður. Ef svo hefði verið, hefði honum aldrei dottið í hug, að "hinn aðilinn" féllist ekki á eigin sjónarmið. Þvá ef hann gerir það ekki, þá eru þetta ekki hans sjónarmið, heldur einhvers annars. En ef höf. hefur aftur á móti verið að reyna að þvogla útúr sér, að "góðu baráttu- mennirnir" fallist ekki á sjónarmið "hins aðilans", hefur hann hrasað heldur hrapal- lega um tungu sjálfs sín, eins og mönnum, sem eru ekki að fullu með sjálfum sér sak- ir ölvunar, verður oft á. t jpvá tilfelli hefði klausan, eins og öllum edru mönnumer ljóst, átt að vera þannig : "Það hefur löngum þótt aðalsmerki góðra baráttumanna að hafa þá víðsýni til að bera, að meta og skilja sjónarmið hins aðilans, þótt þeir ( þ. e. baráttumennirnir) fallist ekki á þau sjálfir. " En svo að fólk haldi ekki, að nýr Pétur Kjartansson sé risinn upp í skolanum, þá sny eg mer nú að hagsmunamali okkar alkanna. Það er alveg ófært, að ekkert sterkara en kakó er selt í CasaNova, þótt maður þurfi nauðsynlega að rétta sig af eftirblauta nótt. Þetta mál þarf að ræða á skólafundi, kennarafundi, Alþingisfundi o. fl. fundum. Eftir að það hefur verið samþykkt á öll- um þessum fundum, að leyfa vínsölu í Casa Nova, skal hafist handa og selt á ráðherra- verði whisky, kóniak, séníver, vodka, romm, svartidauði, lfkjör, kampavín, Egill sterki, Túleöl, hóstasaft, spári, kogari, borðvín og annað það, sem seinna kann að vera lagt til, auk einhvers til að blanda með. - Ennfremur væri æskilegt að selja L. S. D. , ópíúm, hamp, morfín, marihuana, kókain, þurrkuð bananahýði o. fl. þess háttar Banna skal allsgáðum mönnum aðgang að skólaböllum. Fámennri klíku abnorm- alla masókista skal ekki takast að spilla heildarsvipnum. Laumualkar í" Uno Ore og hvar annars- staðar sem þið leynist ! Skriðið úr fylgsn- um ykkar og sameinist drykkjubræðrum ykkar og -systrum i hinni voldugu alheims- hreyfingu alkohólista ! kristjana pé magnussdottir. L

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.