Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.04.1968, Page 29

Skólablaðið - 01.04.1968, Page 29
159 una sína. Að lokinni ræðunni kemur að því" sem menn eru einkum komnir til að sja, nefnilega buslkeppni atvinnuhópa. Hun er þannig að tveir og tveir ganga frama planka sem skagar utyfir laugina. Þeir halda a netakulum og eiga að lemja hvor 1 annan þartil annar dettur 1 vatnið. Kepp- endur eru frá slippnum kaupfélaginu og plönunum og það er mjög gaman. Sa vinn- ur sem einn stendur uppi og þar með við- komandi fyrirtæki. Að þessu loknu stígur Sijgga 1 efnalauginni uppa pall og lýgur að hun sé fjallkona. Svo fer folkið heim 1 kaffi og tekur að bua sig undir næsta og stærsta þátt, nefnilega þegar Bæjarstjorn- in býður öllum fermdum a ball 1 Félags- heimilinu og borgar aðgangseyri. Klukkan tíu fer að komast mynd á ballið. Margir hafa verið að drekka heimahjasér eða 1 bröggunum, og koma slompaðir með pela. Klæðskerinn stendur 1 innganginum við hliðina á útkastaranum. Hann biður engan vífillengjulaust um vín, en tekur þéttings- fast í handlegginn a mönnum og vill heyra þá um orð eða tvö. Eða þá hann lætur nægja að kalla til þeirra til dæmis : það er aldeilis að hann er finn/ eða : bara með brill í hausnum/ eða : ja a bara að skella sér í það. Sumir leiða hann ekki augum, aðrir segja honum að halda kjafti og enn aðrir slá hann 1 magann. En klæð- skerinn missir ekki kjarkinn og tínir ekki brosinu, en heldur áfram vonglaður, vit- andi að 1 kvöld er einn af hverjum tíu líkn- samur. Inni er hljómsveitin byrjuð að spila en karlpeningur er ekki orðinn nógu drukkinn til að dansa. Fólkið situr við borð alltíkringum dansgolfið og drekkur og talar og hlær. Sumir og aðallega drukknir aðkomustrákar ráfa á milli borðanna og horfa stíft eftir tilkippilegum stelpum. Hopur stulkna stendur fyrir endanum á dansgólfinu og talar saman eða horfir, bíð- andi eftir að verða boðið upp. Ballið er sumsé byrjað. Hér er hvað innanum annað börn unglingar fullorðnir og gamalmenni, enda þorpið sem býður. Með einum hring- dansi setur svo hljómsveitin hringras i gang sem mun vara ballið á enda, og hér- eftir mun golfið ekki sjást autt, enda karl- peningur orðinn drukkinn. Nú eru hafnar stórkostlegar veiðar, þarsem verður sótt og varizt með ófyrirsjáanlegum afleiðing- um. Á bakvið allar þessar smábaráttur liggja rniklar vonir um fullnægðar tilfinn- ingar, en reynslan hefur sannað að su verður sjaldnast raunin og að lengst verður komizt með ofullnægjandi vangadansi og vandræðum á eftir. Hinsvegar bregst ekki að maður geti drukkið sig fullan og það gera margir og slettast um með sinar o- fullnægðu tilfinningar og ódrepandi vilja. Klukkan tólf byrja þeir sem hafa orðið fyr- ir vonbrigðum að æla deyja og slást. Um þetta leyti er venjulega brotinn kloset- kassi inná herraklóseti og vatnið flóir um gólfið niðri. Þá nær ballið hamarki og nu gengur annaðhvort saman með folki eða sundur. Það sem eftir lifir af ballinu not- ast til að vinna úr því" sem unnist hefur eða drekkja í víni því" sem hefur tapast. Svo er ballið búið. Niðrí" anddyrinu stendur fólkið 1 klósetvatni og leitar að yfirhöfnum. Saklausar sálir sem náð hafa saman í rökkri og vangadansi, standa nu alltieinu í klósetvatni og birtu. Ef þetta fólk er ekki þvú drukknara, þá er það mjög feimið og þekkir ekki næsta leik í þessu undarlega manntafli, og það er lítið um staði þar sem tvö sona hjörtu geta sameinast a divan. Fyrir utan Félagsheimilið er hafin önnur skemmtun. Það eru margir sem sætta sig ekki við að fara strax heim, og bíða átekta við Félagsheimilið ekki ennþá úrkula vonar um að eitthvað gerist. Það er óspart klæmst og sumir eru enn að slást. Einnig þetta tekur enda og einhverntíma i morguns- árið getur nýr dagur horft á sofandi þorp. tiN Fyrir utan þorpið er flugvöllurinn. Við enda flugvallarins er nýsmúðað flugskýli og fyrir framan flugskýlið stendur flugvél, albúin að fljúga til borgarinnar. í flug- skýlinu er reytingur af farþegum sem bí"ð- ur brottfarar. Fyrir aftan flugskýlið standa piltur og stúlka og haldast í hendur. Pilturinn er lítill og dökkur á hár og hör- und. Hann er spánskur. Stúlkan er Berg- ljót í Gulusjoppunni. Það er annað yfir- bragð yfir Bergljótu nú en í vor. í fljótu bragði fær maður ekki séð ( hverju það liggur. HÚn er jafn falleg nú og þá, en

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.