SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Blaðsíða 2
2 20. febrúar 2011 Við mælum með Hljómsveitin Ensími mun í febrúar og mars fylgja eftir geisladisk sínum Gæludýr með tónleikahaldi víða um land. Þeir ríða á vaðið á Nasa laugardags- kvöldið 26. febrúar. Gæludýr er fjórða plata Ensími og hefur hlotið mikið lof hlustenda. Lagið Aldanna ró af plötunni fór á toppinn á vinsældalista X977 og inn á topp 10 á vinsældalista Rásar 2. Útgáfutónleikar Ensími 13 Jens Urup minnst Danski listmálarinn féll frá nýverið, níræður að aldri. 28 Verið að afvegaleiða almenning Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélagsins, segir að menn séu farnir að setja pólitíska hugmyndafræði og eigið réttlæti ofar lög- um. 36 Mín önnur fjölskylda Berglind Rós Karlsdóttir starfar sem sjálfboðaliði á athvarfi fyrir stúlkur í borginni Cochabamba í Bólívíu. 34 Komdu nú að hnusa, kusa! Það hlaut eitthvað að vera á seyði þegar kýrnar við Kópsvatn ruku skyndilega af stað svo júgrin sveifluðust í allar áttir. 40 Sveitaró og friður Gott er að komast öðru hvoru úr skarkala borgarinnar og hlaða batteríin. Enda mikilvægt að hvíla sig á milli anna. Lesbók 42 Viður og vistvæn hönnun Húsgagnamessan í Stokkhólmi hefur aldrei verið umfangsmeiri. 44 Ástin sigrar Franska skáldkonan Anna Gavalda skrifar ekki flóknar bækur en það kemur ekki að sök – hún nýtur gríðarlegra vinsælda. Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Kjartan Þorbjörnsson af Láru Jóhönnu Jónsdóttur. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirs- dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson. 38 31 Augnablikið S temningin á Alþingi þegar Icesave kom til afgreiðslu í vikunni minnti á Gúlagið, þrælkunarbúðir sem starfræktar voru í 60 ár í Sovétríkjunum, en þar voru 30 milljónir fanga um lengri eða skemmri tíma. Ástæðan var ekki sú að Gúlag- ið kæmi til tals í umræðunum í þinginu, heldur vakti það at- hygli árvökuls ljósmyndara að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra var nið- ursokkinn í lestur á bókinni „Gulag: A History“ eða Sögu Gúlagsins eftir Anne Apple- baum. „Kristján Guy Burgess, að- stoðarmaður minn, gaf mér hana í Varsjá þegar við komum af merkilegu safni um uppreisn- ina í Varsjá 1944,“ sagði Össur er þetta var borið undir hann. „Ég hafði þá fyrr um daginn hitt eig- inmann höfundarins, Radosław Sikorski, utanríkisráðherra Pól- lands. Þetta er ofboðslega vel skrifuð bók, sú allra besta af þeim sem ég hef lesið um Gúlag- ið.“ – Eitthvað sem kom á óvart? „Þetta er saga af ólýsanlegum hörmungum og ég hafði ekki gert mér grein fyrir því, að á sínum tíma voru næstum 500 slíkar vinnubúðir og að þar var framleiddur þriðjungur af öllu gulli og helmingur af kolum í Sovétríkjunum. Þeir sem þrælað var út og oft til dauðs í þessum búðum voru greinilega mik- ilvægari í efnahagslífi Sovétríkj- anna en ég hafði gert mér í hug- arlund. Og það flökraði að mér að mönnum hefði verið hrúgað af þessu miskunnarleysi í Gú- lagið af Stalín, beinlínis til þess að vera notaðir sem vinnudýr. Það er sláandi að í sömu viku og hann dó, árið 1953, var byrj- að að leggja niður Gúlögin. Þó að þau væru opnuð aftur í sama til- gangi á sjöunda og áttunda ára- tugnum til að brjóta niður mót- stöðuafl frelsisbaráttunnar.“ – Er eitthvað næði til að lesa þarna í þinginu? „Það er sagt um mig að eng- inn ráðherra sé eins mikið í þinginu og ég. Það er rétt, því ég hef fyrir löngu komið mér upp þeim vinnumáta að geta unnið undir ræðum og þegar ég þarf að lesa skýrslur og setja mig inn í efni, þá fer ég oft í þingið – hið uppbyggilega skvaldur þing- manna veitir mér skjól og næði til að lesa. Ég er ekki eins og einn fyrrverandi forseta Banda- ríkjanna, sem sagt var að gæti ekki gert tvo hluti í einu. Ég get bæði lesið og hlustað.“ Pétur Blöndal pebl@mbl.is Össur Skarphéðinsson les og Jóhanna Sigurðardóttir hefur hægt um sig. Morgunblaðið/Ómar Með hugann við Gúlagið Það var eyðilegt um að litast eftir atkvæðagreiðsluna um Icesave. Morgunblaðið/Ómar 19. febrúar Háskóladag- urinn, lands- mönnum boðið á opið hús í Háskólanum. Í boði verða ótal viðburðir, kynningar og uppá- komur sem sýna vísindin í lit- ríku og lifandi ljósi. 24. febrúar Bergen - Reykjavík - Nuuk tveggja kvölda tónlistarhátíð á Norðurpólnum á Seltjarnarnesi. Sameinuð verður tónlist úr ólíkum áttum. 25. febrúar Klassík í há- deginu í Gerðubergi, flytjendur eru Áshildur Haraldsdóttir flautu- leikari og Nína Margrét Gríms- dóttir píanóleikari. www.noatun.is Hafðu það gott með Nóatúni LAMBALÆRI FYLLT MEÐ SVEPPUM OG CAMEMBERT KR./KG 2198 ÍSLENSKT KJÖT BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.