SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Blaðsíða 30
30 20. febrúar 2011 ar ekki til að fullar sættir hafi orðið. Í stórum flokki eins og Sjálfstæð- isflokknum er endalaust hægt að deila um það í svona málum, hvort fleiri eða færri séu á þessari skoðun eða hinni. Svo er að þessu sinni. Forystumenn Sjálf- stæðisflokksins hafa sagt að þeir hafi fundið fyrir miklum stuðningi við sína afstöðu og skal það ekki dregið í efa. Andstaðan verður heldur ekki dregin í efa. En í Sjálfstæðisflokknum eru á milli fjörutíu og fimmtíu þúsund flokksmenn. Skoðanakönnun, sem MMR gerði fyrir vefritið Andríki, segir töluverða sögu um það hvernig línur liggja í landinu. Þar kemur fram að fylgi við þjóðaratkvæða- greislu við Icesave III er mest meðal yngra fólks en hlutfallið lækkar eftir því sem fólk verður eldra. Þar kemur líka fram, að tveir hópar hafa minnstan áhuga á þjóðaratkvæðagreiðslu um málið, en það eru sérfræðingar og hálaunamenn. Ekki er ósennilegt að skiptingin sé eitt- hvað svipuð innan Sjálfstæðisflokksins. Andstaða ungs fólks innan flokksins vegna ákvörðunar þingflokksins hefur verið áberandi en líklegt er að stuðningur sé mestur á meðal stjórnenda í viðskipta- lífinu. Það er umhugsunarefni fyrir for- ystumenn Sjálfstæðisflokksins, miðstjórn og þingflokk, hvort tímabært sé orðið að nota nútíma samskiptatækni til þess að hafa meira samráð við almenna flokks- menn en tíðkazt hefur til þessa. Nú er hægt, með skömmum fyrirvara, að efna til skoðanakönnunar eða atkvæða- greiðslu í hópi þess mikla fjölda, sem á aðild að Sjálfstæðisflokknum, til þess að kanna viðhorf flokksmanna til einstakra mála. Slík vinnubrögð eru lýð- ræðisleg, líkleg til að að efla samstöðu meðal flokksmanna og gætu átt heima í skipulagsreglum þessa stóra flokks. Stjórnmálaflokkar þurfa að laga starfsemi sína að breyttum aðstæðum og tíðaranda ekkert síður en aðrir. Aðgerðir á vett- vangi almannatengsla duga ekki einar og sér. Sennilega er þó ein aðgerð umfram aðrar, sem mundi verða til þess að þeir sjálfstæðismenn, sem eru óglaðir eftir at- burði síðustu tveggja vikna, tækju gleði sína á ný. Hún er sú, að forystumenn og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins tækju afgerandi pólitíska forystu í baráttunni gegn aðild Íslands að Evrópusamband- inu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki tekið slíka pólitíska forystu, þótt afstaða síðasta landsfundar flokksins hafi verið alveg skýr. Slíka pólitíska forystu tók Sjálfstæð- isflokkurinn á sínum tíma fyrir stofnun lýðveldis á Íslandi. Slíka pólitíska forystu tók hann fyrir inngöngu Íslands í Atl- antshafsbandalagið og hélt henni til loka kalda stríðsins. Slíka pólitíska forystu tók flokkurinn í baráttunni fyrir veru banda- ríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og hélt henni til loka. Þetta hefur flokkurinn ekki gert í bar- áttunni um aðild Íslands að Evrópusam- bandinu. Einstakir þingmenn Sjálfstæð- isflokksins hafa gengið fram fyrir skjöldu í þeirri baráttu. Það hafa Pétur Blöndal og Sigurður Kári Kristjánsson gert og einörð og kjarkmikil afstaða eins yngsta þing- manns Sjálfstæðisflokksins, Unnar Brár Konráðsdóttur, bæði í afstöðu til Icesave III, þjóðaratkvæðagreiðslu um þann samning og aðildarmálsins, hefur vakið sérstaka athygli en Unnur Brá er nú vara- formaður Heimssýnar, þverpólitískra samtaka, sem berjast gegn aðild Íslands að ESB. Þar er greinilega á ferðinni ung kona með ákveðnar skoðanir, sem hún er tilbúin til að berjast fyrir. Á annarri hlið þessarar baráttu á hin- um pólitíska vettvangi er ríkisstjórnin með embættismannakerfið á bak við sig en mótvægið vantar. Í ljósi samþykkta landsfundar Sjálfstæðisflokksins og sögu flokksins er eðlilegt að Sjálfstæðisflokk- urinn taki þessa pólitísku forystu á Al- þingi. Vel má vera að það hafi haldið aftur af þingflokki sjálfstæðismanna að taka af- gerandi pólitíska forystu í þessari baráttu að skoðanir eru skiptar innan flokksins í þessu máli sem mörgum öðrum. Stað- reynd er hins vegar að svo yfirgnæfandi meirihluti flokksmanna er andvígur aðild að önnur skoðun einhvers hóps innan flokksins og jafnvel einstakra þingmanna getur ekki haft þau áhrif að Sjálfstæð- isflokkurinn sem slíkur leiði þessa bar- áttu hjá sér. Hafi einhverjir aðra skoðun á því hvernig línur liggja innan flokksins í þessu stóra máli er auðvelt að ganga úr skugga um það með atkvæðagreiðslu meðal flokksmanna allra. Þetta sjónarmið er sett hér fram flokksforystu og þingflokki Sjálfstæð- isflokksins til umhugsunar. Sviptingar innan Sjálfstæðisflokksins Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is L angþráður draumur bandarísku geim- ferðastofnunarinnar, NASA, varð að veruleika á þessum degi fyrir 49 árum þegar bandarískur geimfari var í fyrsta skipti sendur á sporbraut um jörðu. John Glenn hét maðurinn og varð hann á augabragði þjóðhetja og tákngervingur óbifandi metn- aðar stórveldisins í vestri. Glenn, sem var fertugur að aldri, prílaði inn í geim- hylkið Friendship 7 áður en hann lagði upp í langferð sem á þessum tíma átti sér engin fordæmi. Fjórir menn höfðu áður farið út í geiminn, þar af tveir á sporbraut um jörðu, en enginn hafði í annan tíma rennt sér þrisvar sinnum kringum hnöttinn. Ferðin tók fjórar klukku- stundir, 55 mínútur og 23 sekúndur. Allt gekk vel til að byrja með en eftir fyrsta hringinn bilaði sjálfstýringin um borð með þeim afleiðingum að Glenn þurfti að stjórna farinu handvirkt. Um tíma leit einnig út fyrir að hitavörn farsins hefði losnað sem hefði getað þýtt að farið fuðraði upp um leið og það kæmi aft- ur inn í lofthjúp jarðar. Þær áhyggjur voru sem betur fer ástæðulausar, skynjarinn sem gaf þetta til kynna reynd- ist bilaður. Glenn lenti heilu og höldnu í Atlantshafinu, 800 mílur suðaustur af Bermúda. Bandaríska þjóðin, með John F. Kennedy forseta í broddi fylkingar, bar Glenn á höndum sér í kjölfarið. Af- rek hans var borið saman við afrek Charles Lindberghs, sem flaug fyrstur manna yfir Atlantsála árið 1927, og var Glenn sæmdur sambærilegum heiðursmerkjum og efnt til skrúðgöngu honum til heiðurs. Skólar og stræti út um allt land voru nefnd eftir hinni nýju þjóðhetju. Glenn vingaðist í kjölfarið við Kennedy-fjölskylduna og var á staðnum þegar Robert F. Kennedy, bróðir forsetans, var myrtur í Los Angeles árið 1968. John Glenn hoppaði ekki sísona út í geiminn. Að baki lá margra ára undirbúningur. Það orð fór af Glenn að hann væri einn besti tilraunaflugmaður landsins en sumarið 1957 setti hann hraðamet þegar hann flaug þvert yfir Bandaríkin, frá Los Angeles til New York, á þremur klukkustundum og 23 mínútum. Það var fyrsta flug sinnar tegundar yfir hljóðhraða. Fyrir vikið blasti við að Glenn tæki þátt í prófunum þegar NASA valdi fyrstu geimfara sína árið 1958. Þeir þurftu að uppfylla sjö skilyrði: Að vera brautskráðir tilraunaflugmenn; í topp- formi; yngri en fertugir; lægri en 180 sentímetrar á hæð; með leyfi til að fljúga þotum; hafa flogið að minnsta kosti 1.500 tíma um dagana og hafa háskólagráðu í verk- fræði. Glenn uppfyllti öll þessi skilyrði og varð einn af sjö fyrstu geimförum þjóðar sinnar vorið 1957. Hinir voru Scott Carpenter, Gordon Cooper, Gus Grissom, Wally Schirra, Alan Shepard og Deke Slayton. Snemma kom fram krafa um að konur fengju líka að gerast geimfarar en ýmsir lögðust gegn henni, þeirra á meðal John Glenn. Erfitt er að meta hvaða áhrif orð þjóðhetjunnar höfðu á framvindu þess máls en alltént fór ekki kona út í geiminn á vegum NASA fyrr en 1983, Sally Ride. Tólf árum síðar var kona í fyrsta sinn leið- angursstjóri, Eileen Collins. Glenn lagði geimbúninginn á hilluna árið 1964 til að bjóða sig fram af hálfu Demókrataflokksins til öld- ungadeildar Bandaríkjaþings. Þau áform urðu að engu þegar hann rann í baðkerinu heima hjá sér og meiddist á höfði. Fyrir vikið gat hann ekki háð kosningabaráttu af neinum krafti. Glenn bauð sig aftur fram árið 1970 en tapaði í prófkjöri. Hann komst loksins á þing fyrir Ohio- ríki árið 1974 og sat þar óslitið í aldarfjórðung. Geimurinn freistaði Glenns áfram og árið 1998, þegar hann var orðinn 77 ára gamall, lagði gamli geimfarinn leið sína þangað aftur. Uppátækið var umdeilt en til- gangurinn var að kanna áhrif geimferða á eldri borgara. Ekki virðist seinni geimferðin hafa verið til ills, alltént er John Glenn enn meðal vor, orðinn 89 ára. orri@mbl.is Glenn fer á sporbraut um jörðu John Glenn geimfari og síðar öldungardeildarþingmaður. ’ Geimurinn freistaði Glenns áfram og árið 1998, þegar hann var orðinn 77 ára gamall, lagði gamli geimfarinn leið sína þangað aftur. Glenn kemur sér vandlega fyrir í geimhylkinu Friendship 7. Á þessum degi 20. febrúar 1962 L iðin vika og raunar síðustu tvær vikur hafa verið svipt- ingasamar innan Sjálfstæð- isflokksins ekki síður en á Al- þingi. Ákvörðun meirihluta þingflokks um að styðja Icesave III kom flestum flokksmönnum í opna skjöldu og ekki allir á eitt sáttir eftir þær útskýringar og röksemdir fyrir þeirri afstöðu, sem fram hafa komið. Skoðanir hafa verið skiptar. Sumir flokksmenn hafa stutt afstöðu for- ystu flokksins og meirihluta þingflokks, aðrir verið henni mjög andsnúnir eins og m.a. hefur mátt sjá á samþykktum ein- stakra flokksfélaga og auglýsingu frá ungum sjálfstæðismönnum, sem birtist hér í Morgunblaðinu sl. miðvikudag. Hins vegar var þungu fargi létt af mörgum flokksmönnum í Sjálfstæð- isflokknum, þegar ljóst var, að þing- flokkurinn mundi styðja tillögu á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave III, þótt þeir hinir sömu hefðu gjarnan óskað að sú skýra afstaða hefði legið fyrir strax í upphafi. Með þeirri ákvörðun tókst þingflokknum að milda nokkuð þá þungu gagnrýni, sem beindist að þing- mönnum úr ýmsum hornum innan flokksins. Þó er ljóst að sú ákvörðun dug-

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.