SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Page 10

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Page 10
10 20. febrúar 2011 F annst ekki fleirum en mér það bæði hallærislegt og pínlegt þegar við ræðuhöld og lúðrablástur var greint frá því á fimmtudag að skrifað hefði verið undir samn- ing um kísilver í Helguvík og næmi heildarfjárfestingin 110 milljónum evra, eða um 17,6 milljörðum króna? Undirbúningur verkefnisins mun hafa staðið í fjögur ár og halda menn virkilega að það sé einhver tilviljun að þau Stein- grímur J. og Katrín Júlíusdóttir mæta í Reykjanesbæ á fimmtu- dag, daginn eftir að Icesave var samþykkt á Alþingi, til þess að undirrita samning um er- lenda fjárfestingu á Íslandi? Staðreyndin er sögð vera sú að þessir samningar hafi um hríð verið frágengnir og til- búnir til undirskriftar, en Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra hafi talið að það þjónaði ekki málstaðnum að skrifa undir fyrr en Alþingi hefði samþykkt Icesave. Þetta kallast ekkert annað en skrípalæti fjármálaráðherra, eða hvað? Hann hefur sagt að engin erlend fjárfesting fáist til landsins nema Icesave sé út af borðinu og því var fimmtudagurinn svo góður í áróðursskyni. Ekkert í máli oddvita rík- isstjórnarinnar kom á óvart á Alþingi á miðvikudag; allt gamlar og útjaskaðar klisjur sem enn hafa ekki orðið að áhrínsorðum, þrátt fyrir hótanir í garð þjóðarinnar í langan tíma. Fjármálaráðherrann sagði m.a.: „Menn verða stórir af því (að semja – innsk. AB) en ekki því að halda tilgangslausu stríði áfram stríðsins vegna.“ Og forsætisráðherrann hljómaði vita- skuld eins og gamalrispuð vínilplata þegar hún sagði að þeir sem höfnuðu Icesave-samningnum sem fyrir lægi tefldu þjóðarhag í mikla tvísýnu. Kannast menn við klisjuna? Ekki verður annað sagt en forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hafi úr töluverðu safni góðra röksemda að velja, nú þegar hann íhugar hvort hann eigi að vísa lögunum um Icesave til þjóðarinnar, eins og hann gerði í ársbyrjun í fyrra. Hann hefur 41 þúsund undirskriftir, sem þeir sem stóðu að kjósum.is söfnuðu á örfáum dögum. Þetta eru tæplega 10 þúsund fleiri undirskriftir en ábúandinn á Bessastöðum hafði úr að moða þegar hann ákvað á sínum tíma að vísa fjölmiðlalögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu, sumarið 2004, á þeim forsendum að gjá hefði myndast milli þings og þjóðar. Þá getur forseti Íslands horft til þess að atkvæði um tvær til- lögur um þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave féllu þannig á Al- þingi á miðvikudaginn að 30 þingmenn sögðu já við báðum til- lögunum og 33 þingmenn sögðu nei. Því verður ekki sagt að mikill munur sé á þeim inni á Alþingi sem vilja vísa málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu og hinum sem vilja upp á sitt eindæmi fá að ákveða skuldbindingar og áhættu langt fram í tímann fyrir okkur sjálf, börn okkar, barnabörn og ófædd börn. Loks getur forsetinn litið til þeirrar staðreyndar að í atkvæða- greiðslunni um sjálft Icesave-frumvarpið féllu atkvæði þannig að 44 sögðu já, 16 sögðu nei og þrír sátu hjá. Við ígrundun á þeirri niðurstöðu hlýtur forsetinn að líta til þess að þótt hluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins hafi greitt atkvæði með samn- ingnum, vegna þess að þingmennirnir töldu, samkvæmt eigin útskýringum, að ekki yrði komist lengra ef á annað borð ætti að semja um málið, höfðu hinir sömu þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins áður greitt atkvæði með því að málinu yrði vísað í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Því hygg ég, þegar upp verður staðið, að ekki þurfi að setja svo mikinn valkvíða að forsetanum og þetta verði honum eftir allt fremur einfalt úrlausnarefni. Að sjálfsögðu ákveður hann að vísa Icesave-lögunum til þjóðarinnar. Svo fær forsetinn vitanlega beinan aðgang að kastljósi heimspressunnar, eina ferðina enn, sem hann getur litið á sem sérstaka bónusgreiðslu fyrir rétta ákvörðun. Ekki leiðist forsetanum það! Sjónarspil ráðherrans Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ólafur Ragnar Grímsson Steingrímur J. Sigfússon ’ Svo fær forset- inn vitanlega beinan aðgang að kastljósi heims- pressunnar, eina ferðina enn. Ekki leiðist forset- anum það! 7.15 Klukkan hringir. Freist- ast til að lúra 15 mín í viðbót. 7.30 Laga sterkt ilmandi kaffi og Stefán Franz, yngri sonur minn, vaknar og verður glaður að sjá að afmælisboðskortin sem hann bjó til daginn áður hafa verið prentuð út samkvæmt fyr- irmælum hans. Hann verður sjö ára 23. febrúar. 7.45 Góð sturta með skrúbb- hanskanum sem keyptur var í S- Kóreu ekki alls fyrir löngu í sýn- ingarferðalagi með dansverkið Systur. Pars Pro Toto sýndi þar á SIDance festival. Fór yfir helstu verk dagsins í sturtunni. Mjög gott að fá hugmyndir í flæðandi vatni. 8.25 Fastur liður að veifa Stebba Franz mínum út um gluggann á leið í Melaskólann. Vekur hjá mér góðar kenndir að sjá hann labba sáttan og ham- ingjusaman í skólann enda er Melaskóli góður skóli og hann elskar kennarann sinn. 8.35 Búin að borða AB-mjólk með múslí og drekk hina ómiss- andi forvörn gegn flensu og kvefi sem er GSE-greipkjarnaolía, hvannardropar og sólhatt- sdropar hrært saman í vatn. Omega-lýsispillur eru einnig nauðsynleg inntaka í morguns- árið. 9.00 Geri pilates-æfingar til að auka styrk og úthald í lífsins önn. Heildræn vinna líkama, huga og sálar þar sem styrk- leikur og mýkt vinna saman. 10.00 Kenni einkatíma í pilates og er sátt við árangur kúnnans. 11.00 Íslenska óperan hring- ir og staðfestir að Svanasöngur Schuberts í dansi, tóni og söng verði endursýndur í Íslensku óp- erunni sunnudaginn 27. febrúar en sýningin fékk sérdeilis góða umfjöllun ekki alls fyrir löngu. Ég hlakka til að taka upp þráðinn með frábærum listamönnum, Gerrit og Ágústi, og með ein- dæmum góðu starfsfólki Ís- lensku óperunnar. 11.15 Komin í Listdansskóla Íslands (LÍ) en þar er allt komið á fullt. Nemendur í framhaldsdeild LÍ á listdansbraut standa í ströngu þessa dagana. Fyrir utan mikla daglega tæknilega vinnu í dansinum æfa mörg þeirra fyrir Klassísku sólódanskeppnina sem verður í Íslensku óperunni 1. mars kl. 20.00. Þá standa yfir lagningardagar í MH og verða þau með sýningu í hátíðarsal skólans. 13.15 Búin að æfa í tvo tíma með nokkrum sterkum og efni- legum nemendum sem taka þátt í sólókeppninni. Hlakka til að sjá þau öll dansa í keppninni. 13.30 Gefst stuttur tími í há- degismat þannig að súpa í bolla og ristað brauð verða að duga að þessu sinni. Þuríður skólaritari drekkur lífrænt kaffi með mér úr nýju skærgrænu kaffivél skólans og við förum yfir mætingar nemenda og spáum í MySchool- kerfið o.fl. 14.30 Er enn á kósí kaffistofu Listdansskóla Íslands á gagn- legum fundi með fagstjórum skólans, meðal annars er rætt um framgang nemenda og hvað mætti betur fara. Búningamál fyrir sólókeppnina þurfa að komast á hreint en um 15 nem- endur LÍ taka þátt í keppninni. 15.15 Endanleg ákvörðun tekin um hvaða verk eiga að vera á vorsýningu skólans í Þjóðleik- húsinu 13. apríl en þá taka allir nemendur skólans þátt. Nem- endasýningar LÍ hafa alltaf verið mjög veglegar og mikið lagt í þær. 15.30 Tek á móti nýjum pí- anista sem prófar undirspil hjá yngstu nemendunum. Stendur sig vel. Olga hefur séð um undir- leik í skólanum í áratugi, ennþá sterk í faginu og einstök. 15.45 Næ í 10 tútú, ball- erínupils, í hreinsun. Antikpilsin orðin eins og ný. Hvarflar að mér að það þurfi kannski að fara að hreinsa fleiri búninga sem skól- inn á en búningageymslan er troðfull. 16.45 Næ í litla minn í Selið í Melaskóla. Búin að vera mikil tilhlökkun fyrir bekkjar- skemmtun sem hefst klukkan fimm. Allir koma með eitthvað til að borða. Hef ekki getað sinnt mömmuhlutverkinu sem skyldi síðustu vikurnar, vegna mikilla anna, og er því ánægð að geta verið með honum í rólegheitum. 17.00 Eigum frábæra bingó- stund með 1.A og mikið snakk borðað. Gaman að kynnast for- eldrum barnanna sem eru í sama bekk og Stefán Franz. 18.30 Komin heim og ætla að leggja mig. Áður en ég veit af eru allir svangir og eitthvað þarf að borða. Steiki kjúklingabringur í olíu með töfrakryddi og kebab- kryddi. Sker niður salat, gúrkur og hita pítubrauð. 19.45 Fer upp á Grensás, endurhæfingarstöðina, en þar liggur systir mín ástkæra, hún Magga. Hún er í endurhæfingu eftir mjög slæmt hjólreiðaslys sem hún varð fyrir 13. maí 2010. Hún var á glænýju hjóli með allt- of öflugum bremsum og ekki með hjálminn í þetta skiptið. Hef hvatt alla síðan þetta gerðist til að nota HJÁLMINN. Þetta atvik minnir mig stöðugt á að hlutirnir geta breyst á einni sekúndu og allt er breytingum háð. 21.30 Er á leið heim eftir að hafa nuddað og gefið Möggu minni ljósorku með nýja Quant- um Wave-leysinum mínum. 22.00 Fæ mér pítu og rauð- vínsglas í hornsófanum en þar er minn staður á heimilinu. Sofna seint en sátt. Dagur í lífi Láru Stefánsdóttur dansara og skólastjóra LÍ Lára er dansari, dansahöfundur, pilateskennari og skólastjóri Listdans- skóla Íslands og því nóg um að vera hjá henni. Morgunblaðið/Sigurgeir S Gott að fá hugmyndir í flæðandi vatni

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.