SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Síða 16

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Síða 16
16 20. febrúar 2011 Það er skammt stórra högga á milli hjá Láru Jóhönnu hvað hlutverkin varðar. Frá höfuðskáldinu Shakespeare liggur leiðin í farsann Nei, ráðherra!, sem frumsýndur verður á föstudag. Þar fer Lára með hlutverk hjákonu ráðherra nokkurs en turtildúfurnar lenda í nokkuð óvæntum og flóknum aðstæðum, svo ekki sé meira sagt. „Farsinn já,“ segir Lára og hlær. „Við fengum engan kúrs í því að leika farsa í skólanum svo ég renndi alveg blint í sjóinn. Við erum tvö í sýningunni sem erum nýútskrifuð og við kyssum hreinlega skóna hans Sigga Sigurjóns [Sig- urðar Sigurjónssonar] sem er auðvitað mikill grínmeist- ari. Það er frábært að vera með svona reynda leikara sem kunna þetta og gauka stundum að manni góðum punkt- um. Sömuleiðis er mjög gott að vinna með Magnúsi Geir [Þórðarsyni] sem leikstýrir. Hann segir aldrei „af því bara“, heldur leitast alltaf við að útskýra málin og kom- ast að sameiginlegri niðurstöðu. Það er mjög þægilegt þegar maður er að reyna að fóta sig í þessu.“ Hún segist því læra mikið þessa dagana. „Þetta er svakalega góður skóli. Stundum er svo mikill hamagang- ur og læti á sama tíma og maður er með hjartað úti að lifa sig inn í leikinn að ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera næst. Maður þarf líka að hafa stjórn sem leikari og það riðlast stundum aðeins, en þetta er allt að koma.“ Eins og Lára Jóhanna nefnir hefur hún ekki verið eini nýliðinn á sviðinu í Borgarleikhúsinu þetta leikárið. Auk hennar var ráðinn til leikfélagsins Hilmar Guðjónsson sem var með henni í bekk í Leiklistarskólanum og er kærasti hennar og sambýlismaður. Hilmar hefur verið með í öllum sýningunum sem Lára hefur farið með hlut- verk í hjá leikhúsinu, svo þau eru meira og minna saman allan sólarhringinn. „Við erum vön því og erum bara dá- lítið góð í því að vinna saman. Eiginlega hefur það aldrei verið öðruvísi svo ég hef engan samanburð. Vissulega tölum við mikið um leiklist heima en hjálpumst líka að við það sem við erum að gera. Það er alveg frábært að hafa einhvern sem maður veit að er alltaf hreinskilinn.“ Að velja sprek í bálið Ekki bíða minni áskoranir Láru eftir að búið verður að frumsýna Nei, ráðherra! því ákveðið hefur verið að hún fari með hlutverk Dórótheu í söngleiknum Galdrakarlinn í Oz sem fer á fjalirnar í haust. „Það verður bara gaman að fá að leika og syngja og jafnvel dansa svolítið. Ég er byrjuð að skoða lögin og Bergur [Þór Ingólfsson] leik- stjóri er að leggja lokahönd á þýðingu sem ég hef fengið að kíkja aðeins á og er rosa skemmtileg.“ Það er ekki hjá því komist að spyrja Láru hvort hún sé ekkert hrædd við að feta í fótspor Judy Garland, sem gerði Dórótheu ógleymanlega í þekktri kvikmynd um Galdrakarlinn í Oz. „Jesús minn, jú þegar þú segir það,“ svarar Lára. „Ég er ég skíthrædd við það. Það er auðvitað Dóróthean sem allir sjá fyrir sér enda var hún æðisleg í kvikmyndinni. En þetta er bara annað – þetta er leikritið og ég held að það kunni ekki góðri lukku að stýra að reyna að herma eftir henni eða að feta í einhver ákveðin fótspor. Ég held ég verði bara að gera þetta eins og hlut- verkið kemur og ég hlakka mikið til að leika í barna- leikriti. Það er örugglega gott fyrir sálina og hjartað að leika í svona sýningu.“ Næstu frumsýningu þarf þó að klára áður en að því kemur og aðspurð segir Lára frumsýningarnar vissulega stressandi. „En það er líka einhver kraftur sem fylgir því að frumsýna og það er ofboðslega gaman og hátíðlegt. Ég veit ekki hvort frumsýningarstressið sé nauðsynlegt því ég hef aldrei upplifað að sleppa því. En það er örugglega gott að vissu marki því það er merki um að maður geri kröfur til sín og allir eru á tánum.“ Kannski er það einmitt það sem heillar við starf leik- arans. „Það er einhver spennufíkill í manni, en það er líka eitthvað við það að skapa saman – að reiða sig á mótleik- arann á sviðinu og öfugt,“ segir Lára. „Áhorfendur eru líka stór þáttur. Það er eitthvað svo fallegt við það að leiklistin er ekki til án áhorfenda. Maður má aldrei gleyma áhorfendunum og verður alltaf að hugsa um hvernig hægt er að miðla efninu til þeirra á bestan hátt.“ Þar liggur óvissan, eins og Lára útskýrir. „Stundum smellur allt saman; leikarar, ljós, hljóð og áhorfendur, en það kemur ekki í ljós fyrr en áhorfendurnir eru komnir. Einn leikstjóri sagði að það að setja upp leiksýningu væri eins og að búa til bál. Maður reynir að velja bestu sprekin og gera aðstæður eins góðar og hægt er en það er ekki fyrr en áhorfendur koma sem maður veit hvort það hefur tek- ist – annaðhvort kviknar bál eða ekki. Mér finnst einhver falleg auðmýkt í þessari hugsun.“ Og auðmýktin er mikilvæg í leikhúsinu, segir Lára. „Fólkið sem er komið til að horfa valdi að eyða kvöldinu eða þessari stund í að njóta þess sem leikhópurinn hefur verið að gera og fyrir því þarf að bera virðingu. Þá gerir maður sitt besta.“ Lára fjögurra ára að lita á jólunum ásamt bræðrum sínum Skúla Birni og Barða Má. Fjögurra ára ásamt bræðr- unum tilbúin að fara að leika á sum- arhátíð. Upprennandi leikkona með dúkku í ævintýrinu um Rumputuska ásamt Rannveigu Jónsdóttur. Hópmynd af sumarhátíðarkrökkum á sviðinu. Fremst í flokki er Lára sjö ára, nýbúin að leika Fóu Feykirófu. „Ég var svo heppin að ég lenti í frábærum bekk,“ segir Lára um Leiklistarskólann. ’ Það er einhver spennufíkill í manni, en það er líka eitthvað við það að skapa saman – að reiða sig á mótleikarann á sviðinu og öfugt. Áhorfendur eru líka stór þáttur. Það er eitthvað svo fallegt við það að leiklistin er ekki til án áhorfenda. Ásamt kærast- anum Hilmari Guðjónssyni. „Geirþrúður eða Gógó er við fyrstu kynni nokkuð ákveðin og örugg ung kona, en þegar til kastanna kemur stendur hún ekki nægi- lega vel með sjálfri sér. Hún er óttalegur vingull og agaleg fyrirmynd fyrir aðrar ungar konur,“ segir Lára um hlutverk sitt í farsanum. Systkinin á páskadagsmorgun 1987.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.