SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Page 20

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Page 20
20 20. febrúar 2011 segir Sigurður. „Ég veit ekki hvort þeir átta sig á því, að við tölum saman bændur. En þeir klína á okkur vöxtum og kostnaði við lánið í eitt ár, en hinir bændurnir þurfa ekki að bera þann kostnað. Hvers vegna skyldi það vera? Er það kannski af því að við fengum okkur lögfræðing og stefndum bankanum út af erlendu lánunum?“ Hann þagnar. „Það hringdu allir gemsar á meðan gos- ið stóð yfir: „Þið verðið að skrifa undir.“ Við sögðum erfitt að skrifa undir skuld- bindingar á meðan óvissan væri algjör, en þeir sögðu: „Skrifið undir og við skoðum þetta seinna, bara skrifið undir.“ „Við þekkjum fullt af bændum fyrir ut- an Markarfljót,“ segir Poula. „Við spurð- um þá, hvort bankarnir lægju í þeim. „Nei, þeir vilja ekkert við okkur tala,“ sögðu þeir. En þeir vildu að við skrifuðum undir.“ Tilboðið til þeirra fól í sér að greiðslur næstu þrjú árin miðuðust við hverju ná mætti út úr rekstrinum, en önnur lán yrðu sett í bið í þrjú ár og þá yrði staðan metin að nýju. „En hvað ætti svo sem að breytast á þessum þremur árum?“ spyr Sigurður. „Við höfum enga tryggingu fyrir því, ef við berjumst í þessu næstu þrjú árin, að það verði hlustað á okkur þá!“ Stjórnvöld stóðu ekki með fólkinu Og þau eru ekki ánægð með úrræðaleysi stjórnvalda. „Síðasta sumar féll dómur í Hæstarétti um að tenging við erlenda gjaldmiðla væri ólögleg,“ segir Sigurður. „Og nú féll annar dómur í vikunni, sem tók undir það. Bankarnir vissu vel að lánin væru ólögleg þegar við tókum erlent lán árið 2007 en á sama tíma voru þeir að vinna að því á annarri hæð í húsinu að fella gengi krónunnar – að vinna gegn þeim kjörum sem okkur var lánað á. Það finnst mér vera stóri glæpurinn.“ Og Poula tekur undir með honum. „Þá átti ríkisstjórnin að stíga fram og segja að dómur Hæstaréttar stæði, hann ætti við um öll lán. En hvað gera þau? Þau siga Seðlabankanum á okkur og um leið urðu lánin okkar óhagstæð aftur. Bankarnir voru verðlaunaðir. Hvað hefði gerst ef ég hefði gert þetta, svikið einhvern svona eins og þeir hafa svikið okkur. Get ég vé- fengt hæstaréttardóma, bara venjulegur Jón Jónsson?“ Sigurður fær ekki orða bundist. „Það er gríðarleg óvirðing að gera lítið úr hæstaréttardómum þegar þessu fólki hentar. Nú hafa þessir prelátar gert lítið úr þremur hæstaréttardómum. Svo hugsa þeir bara um stjórnlagaþing! Í stað þess að taka pólitíska ákvörðun byggða á hæsta- réttardómunum, var snúið út úr þeim og gert lítið úr fólkinu sem þar vinnur.“ Það er dagatal í glugganum á eldhúsinu með myndum af sólblómum og heil- ræðum: „Haltu þig við vinnuna þó illa gangi. Þegar þú átt sem erfiðast máttu ekki gefast upp.“ Á veggnum hangir margföldunartaflan sem ein af fjórum dætrum hefur skrifað með bláum og rauðum lit. Þar eru tvisvar tveir fjórir, en svo reyndist ekki vera í raunheimum. „Þetta er svona heim- ilismargföldun, ekki banka,“ segir Sig- urður. „Það koma að minnsta kosti réttar tölur út.“ „Okkur líður vel þegar það eru góðir dagar,“ segir Poula. „Rigning og bylur, það eru góðir dag- ar,“ segir hann og hlær. „Þetta er fjór- tánda árið okkar, uppbyggingin hefur verið markviss, engin galgopastökk. Við keyrum ekki um á dýrum bílum eða kaupum flatskjá. Allt hefur ferið í upp- bygginguna og við berjumst áfram. En ef erlenda lánið fellur, þá erum við farin á hausinn, af því að það stökkbreyttist við fall krónunnar. Annað sem gerðist þegar krónan féll, er að öll aðföng snarhækk- uðu.“ Það þyngist brúnin. „Og af hverju féll krónan?!“ „Ég hef lesið sagnir um eldgos í gegnum tíðina, að bæir detti úr byggð árum saman, og hugsað með mérSvaðbælisá var ekki frýnileg í vatnavöxtunum í fyrra. Ófagurt yfir að líta eftir leirburðinn úr Svaðbælisá. ’ Hvað hefði gerst ef ég hefði gert þetta, svik- ið einhvern svona eins og þeir hafa svikið okkur? Get ég vefengt hæstaréttardóma, bara venjulegur Jón Jónsson? Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Ómar

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.