SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Blaðsíða 40

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Blaðsíða 40
40 20. febrúar 2011 Lífsstíll Æ tli ég sé ekki bara algjört borgarbarn þótt ég reyni stundum að telja mér trú um annað. Mér finnst samt ótrúlega gott að komast stundum út úr skarkalanum og flýja höfuðborgina. Þetta hefur víst eitthvað með það að gera í hvaða stjörnumerki ég er fædd. Svo ku nefnilega vera að krabbar sæki í náttúruna, sjálfsagt til að hlaða batterí krabbasjálfsins sem stundum vill bogna og krumpast. Við erum svo viðkvæm sko, vatnsmerkin. En hvað um það. Ég er svo heppin að hafa aðgang að athvarfi úti í sveit. Það er reyndar strangt til tekið ekk- ert í sveit en mér finnst það samt. Komandi úr borginni er þar nefni- lega ótrúlegur friður og ró. Hvergi nokkurs staðar sef ég betur og dreymir jafnmikið og oftast vel. Svo er ekki til neinn betri staður til að sökkva sér ofan í lærdóminn. Enda er varla nokkur umferð um götuna og því mikil ró og spekt allt um kring. Ekki skemmir fyrir að amma og afi eru í næsta nágrenni svo það er stutt að skreppa í mat til þeirra og gott að fá sér frískandi göngutúr í leiðinni. Ég var einmitt að hugsa um þetta allt þegar ég keyrði heim á dögunum í fínasta vetrarveðri. End- urnærð og afslöppuð og hefði alveg verið til í að staldra lengur við en vinnan kallaði. Einhver þarf jú að skrifa þetta sem þú ert hér að lesa kæri lesandi. Mér finnst alltaf orðið dálítið erfitt að fara heim. Það kemur yfir mig hálfgerður tregi og óráð. Bara ef ég gæti nú verið dálítið lengur. Eins og þegar ég var lítil og vildi ekki fara heim frá ömmu og afa. Mig minnir að í eitt skiptið hafi mér verið mút- að með Barbiedúkku til að ég myndi hætta að orga og setjast inn í bílinn. Nú er Barbiedúkkan hætt að virka en þess í stað hugsa ég um það sem er jú í borginni. Restin af familí- unni, vinirnir, kaffihúsin og já sushi. Það er það eina matarkyns sem ég sakna í sveitinni. Kem oft heim með alvarlega sushiþörf og get gúffað í mig helling af því í kjölfar heimkomu. Þannig að best er eig- inlega að skipta þessu niður. Eyða dágóðum tíma í sveitinni, sérstaklega þegar próf og ritgerðir eru framundan, en hins vegar í borginni þegar mikið er um að vera þar. Svo er ég strax farin að hlakka til að njóta sumarhelga í sveitinni. Enda er þar afar góð sólbaðsaðstaða og hægt að fara í pottinn. Eftir að hafa steikt sig um daginn má svo steikja hammara á grill- inu og sitja úti á palli fram eftir kvöldi. Já sveitin er sannarlega góð, jafnt að vetri sem sumri. Sveitaró og friður Gott er að komast öðru hvoru úr skarkala borgarinnar og hlaða batteríin. Enda mikilvægt að hvíla sig vel inn á milli anna. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Börnin hafa gaman af því að fara í heimsókn í sveitina, upplifa nýtt umhverfi og skoða dýrin. Morgunblaðið/Golli ’ Mig minnir að í eitt skiptið hafi mér verið mútað með Barbiedúkku til að ég myndi hætta að orga og setjast inn í bílinn. Eftir að hafa prófað að dvelja í einhvern tíma í sveitheld ég svei mér þá að ég sé orðin meiri dýravinur fyrir vikið. Misskiljið mig ekki, ég hef ekkert á móti dýrum en hef lítið verið í kringum þau. Nú meina ég í alvöru- sveit sem ég prófaði ekki fyrr en á gamalsaldri. Þar voru á bænum hundur og tveir kettir, já og fullt af roll- um. Annar kötturinn var ekki sérlega mannblendinn en hinn tók mér vel og saman horfðum við á náttúrulífs- þátt í sjónvarpinu. Hann átti erfitt með sig þegar hrúga af fuglum birtist á skjánum, stökk af stað og reisti sig upp við sjónvarpið, hélt sjálfsagt að hann kæmist þar inn. Örsaga af ketti Kisi vildi inn í sjónvarpið til að hitta fuglana. Morgunblaðið/Ómar Á öldum áður má segja að borgarastéttin hafi að vissu leyti óttast sveita- fólkið. Það er að segja það óttaðist óhreinindi þess og hið frjálslega líf sem hlyti að tíðkast í sveitum. Það væri jú allt svo náttúrulegt og óbeisl- að í sveitinni. Það er að segja, sveitafólkið fjölg- aði sér eins og dýrin, kunni ekki að þrífa sig né umhverfi sitt og mataðist fremur ópent. Borg- arastéttin naut engu að síður sveitasælunnar og sótti þangað til að fara í laut- arferð með glæsilegt nesti. Sat pent á grænum bala og skemmti sér á réttan hátt. Öllu verra var ef í kringum það var sveitafólk sem söng og hló og var með hin örg- ustu læti. Að þeim fannst. Ýmislegt forvitnilegt af þessu tagi má lesa í bókinni Culture Builders: A Hi- storical Anthropology of Middle Class Life eftir þá Jo- nas Frykman og Orvar Löfgren. Þar segir frá myndun borgarastéttarinnar í Svíþjóð og hennar helstu hugðar- efnum eins og sveitinni, uppeldi barna, hreinlæti og fleira álíka. Hið óhreina sveitafólk Góð lesning fyrir þjóð- fræðinga sem og annað áhugafólk. Það er afar mismunandi hvort hentar fólki betur að búa í sveit eða borg. Í dag á þó ef til vill betur við að segja í litlum bæ eða borg. Ný hverfi sem sprottið hafa upp gefa líka möguleika á því að búa eiginlega í sveit í borg. Það er að segja stutt er að fara í borgina ef eitthvað þarf að sækja þangað en nátt- úran og rólegheitin eru rétt við þrösk- uldinn. Af eða á Ef þig langar að breyta til en ert ekki viss hvort rólegaheitalíf í minni bæ eða sveit hentar þér getur verið gott að gera fyrst smá prufu. Kannski þekkir þú einhvern sem býr á staðnum sem þig langar að prófa að búa á. Þá getur verið sniðugt að fá að dvelja þar í nokkra daga og kanna aðstæður. Það getur líka vel verið að viðkomandi vilji prófa að skipta á húsnæði við þig í ein- hvern tíma. Þannig geta báðir aðilar prófað nýtt umhverfi. Svo er ágætt að skrifa niður kosti og galla staðanna tveggja. Hafa í huga samgöngur, tóm- stundir og skóla barnanna, lífsgildin og hvernig flutningur myndi almennt hafa áhrif á hið daglega líf. Oftast segir fólk að það sé meiri ró og friður í afskekkt- ari hverfum eða minni bæjum. Það er kannski eitthvað sem þú vilt hafa í huga ef erillinn í dagsins önn er að verða of mikill. Dýravinir eiga líka oft auðveldara með að búa þar sem frjáls- ræði dýranna er meira. Slíkt getur oft haft áhrif á ákvörðun um búsetu. Val um sveit eða borg Dýrin una sér oftast best þar sem þau geta verið frjáls ferða sinna. Morgunblaðið/Ómar

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.