SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Blaðsíða 4
4 31. júlí 2011
Það er ekki bara í Kína sem finna má eftirlíkingar af
merkjavöru á góðu verði sem oft eru ekkert svo ólíkar
þeim ekta í útliti. Þeir sem hafa ferðast til Tyrklands
hafa kannski komið heim með eitt „Gucci“-veski eða
„Levis“-buxur, en þar ytra úir og grúir af slíkum versl-
unum. Í New York fer slík sala ekki jafn opinberlega
fram en þeir sem rölta eftir Canal Street mega vera við-
búnir því að heyra hvíslað laumulega „Fendi, Fendi, Ro-
lex, Rolex“ af götusölum sem þar raða sér upp og leiða
viðskiptavini sína svo jafnvel um þrönga ganga og bak-
stiga að góssinu. Í Bangkok mega viðskiptavinir sem
láta sauma á sig skó líka búast við því að vera spurðir
hvaða vörumerki þeir vilji fá saumað í skóna? Svona
ganga nú kaupin fyrir sig á eyrinni sums staðar en víða
eru viðurlög gegn slíku hörð. Til að mynda segir í ítölsk-
um lögum að hver sá sem dreifi falsaðri vöru, undir því
yfirskini að um raunverulega útgáfu sé að ræða, geti
hlotið allt að 20.000 evra sekt, sem samsvarar rúmlega
þremur milljónum íslenskra króna, eða tveggja ára fang-
elsisvist.
Hvaða vörumerki
má bjóða þér að fá
saumað í skóna?
Ætli þessi sé ekta eður ei. Getur þú séð muninn?
Y
firvöld í kínversku borginni Kunming
hafa gert tveimur Apple-verslunum að
loka. Þar voru vissulega til sölu ekta
Apple-vörur en verslunin sjálf var hins
vegar eftirlíking af Apple-verslun. Rannsókn á
ólöglegum verslunum ku hafa verið hrundið af
stað eftir að bandarískur bloggari komst á snoðir
um einstaklega vandaða eftirgerð af „Apple-
verslun“. Virtist verslunin svo ekta að starfsfólkið
var þess fullvisst að það ynni í alvöru fyrir Apple-
fyrirtækið. Rannsóknin leiddi hins vegar í ljós að
fimm „Apple-verslanir“ í borginni seldu Apple-
vörur án leyfis frá höfuðstöðvum fyrirtækisins í
Kaliforníu. Aðeins tveimur var þó gert að loka.
Apple-vörumerkið er eitt það verðmætasta í
heiminum en mikið er um að ólögmætir milliliðir
selji áfram ekta Apple-vörur sem þeir hafa
smyglað til Kína til að sleppa við skatta. Í raun
eru aðeins fjórar ósviknar Apple-verslanir í Kína
og er þær að finna í Peking og Shanghai. Frá
þessu segir á fréttavef Reuters.
Reglum ekki framfylgt
Kínversk yfirvöld hafa hingað til ekki verið þekkt
fyrir að fylgja fast eftir lögum um höfundarrétt.
Kínversk lög miða þó að því að vernda vörumerki
og einnig segir í reglum að ólöglegt sé að herma
eftir útliti verslana. Kvartað hefur verið yfir því
bæði í Bandaríkjunum og öðrum vestrænum
löndum hve langt Kína sé á eftir í baráttunni gegn
höfundarréttarstuldi. Í maí síðastliðnum var Kína
til að mynda í sjöunda sæti bandaríska viðskipta-
ráðsins yfir þau lönd sem síst koma í veg fyrir
slíkan stuld.
Eftirlíking eða fölsun
Apple-vörur eru ekki það eina sem þarf að hafa
eftirlit með í Kína en landið hefur löngum verið
þekkt fyrir að framleiða ógrynni eftirlíkinga af
fatnaði og varningi af ýmsu tagi. Bandaríska vef-
síðan cbsnews.com segir frá því að fyrir nokkrum
árum hafi útsendarar bandaríska fréttaskýr-
ingaþáttarins 60 mínútna fundið litla verslun í
kínversku borginni Donguan. Þar var hægt að
kaupa Callaway-golfsett á rétt rúmlega 30.000
krónur. En í Bandaríkjunum kostar slíkt sett um
350.000 krónur. Þetta lága verð viðurkenndi
verslunareigandinn fúslega að væri vegna þess að
settið væri eftirlíking. Eða fölsun eins og for-
svarsmenn Callaway myndu kalla það. Verk-
smiðja í Donguan framleiðir ein 500 slík sett á
viku og hafa starfsmenn verksmiðjunnar ekki
hugmynd um að þeir séu að vinna ólöglegt starf.
Vörur eru búnar til samkvæmt móti og það mót
gengur síðan gjarnan mann fram af manni. Þann-
ig verður vörufölsun fjölskylduiðja, ef svo má
segja. Víða um Kína má finna slíkar verslanir og
jafnvel heilu verslunarmiðstöðvarnar sem eru
ekkert nema eftirlíkingar af öllu því fínasta og
flottasta sem finnst í fatamerkjum. Ef til vill eru
Kínverjar nú eitthvað að taka sig á í þessum mál-
um. Í það minnsta ef marka má nýjustu rannsókn
en auk þess hafa falsaðar vörur reglulega verið
gerðar upptækar í skipulögðum áhlaupum lög-
reglu síðastliðin ár.
Fáa hefði grunað að þessi kínverska Apple verslun væri ekki ósvikin.
Reuter
Fölsuðu eplin
kramin í Kína
Yfirvöld gera rannsókn
á ólöglegum verslunum
Vikuspegill
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Sumar eftirlíkingar eru vel gerðar og erfitt að
greina muninn nema maður þekki vel til.
Reuters
Sex and the City-skvísan Samantha
Jones gafst upp á biðinni eftir að eign-
ast Birkin-tösku. Hún keypti
sér því gervitösku úr bílskotti
töskusala. Skömmu síðar
sakaði hún stúlku eina í sam-
kvæmi um að hafa stolið
gervitöskunni. Kom þá í ljós
að umrædd taska var stúlk-
unnar og ekta í þokkabót.
Birkin-taskan
var ekki gervi