SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Blaðsíða 23

SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Blaðsíða 23
31. júlí 2011 23 nægja sínar þjáningar. Jú, reyndar dreymdi mig um að verða mikill barnasöngvari eins og Robert- ino. Var sannfærður um að ég hefði jafn góða rödd og hann. Við Arnþór fórum að spila saman sem krakkar á píanó og blokkflautu og þegar við fermdumst keyptum við Farfisa-rafmagnsorgel. Árið 1966, fjórtán ára gamlir, vorum við beðnir um að fara hringferð í kringum landið til að safna peningum fyrir hjálparsjóð æskufólks og á sum- armánuðum 1966-67 komum við fram á 130 tón- leikum. Við vöktum feikilega athygli um allt land, ekki síst vegna þess að við vorum báðir sjón- daprir. Arnþór sá nánast ekki neitt og ég sá eitt- hvað, með annað augað brúnt og hitt grátt. Það má segja að við höfum orðið landsfrægir á þessum árum. Við vorum hálfgerðar barnastjörnur, sem ég er svosem ekkert kátur yfir að hafa orðið.“ Var ekki ágætt að vera þekktur? Það gerir margt þægilegra. „Jú jú, svosem. En hvað gerir það þægilegra?“ Það er auðveldara að fá verkefni og er fólk ekki yfirleitt almennilegt við mann? „Stundum. En ef maður á við fötlun að etja þá þarf maður að sýna að maður sé miklu betri en sá ófatlaði. Ég hef oft haldið því fram að barátta fatl- aðra fyrir mannréttindum sé ekki ósvipuð baráttu kvenna. Konur eru oft vanmetnar af því að þær eru konur og fatlaðir eru vanmetnir af því að þeir eru fatlaðir. Ég er svo heppinn að ég hef yfirleitt getað aflað mér verkefna og ég stofnaði eigið fyr- irtæki með konunni af því að enginn vill hafa mig í vinnu.“ Ertu mjög ákveðinn? „Ég er hrútur og ef ég þarf á því að halda get ég sett út hornin en mér finnst alltaf vont að þurfa að gera það.“ Eyjapistlar urðu sameiningartákn Svo fóruð þið bræður í menntaskóla, var ekkert erfitt að verða sér úti um lesefni á blindraletri? „Við bræðurnir fórum í Menntaskólann í Reykjavík. Við fengum mikið efni á blindraletri og ættingjar lásu svo ýmsar skólabækur inn á segul- bandsspólur fyrir okkur. Björn Sigfússon há- skólabókavörður og kona hans, Kristín, lásu líka fyrir okkur efni á spólur. Björn var óskaplega skemmtilegur og hafði ákaflega gott minni. Þegar hann var að lesa Íslandssöguna inn á band þá átti hann til að romsa upp úr sér ýmsum staðreyndum sem ekki var getið í skólabókum, eins og til dæm- is um það hversu margar brennur hefðu verið á Sturlungaöld. Hann las líka Brennu-Njáls sögu inn á band fyrir okkur. Eitt sinn mætti hann heim til okkar í vesturbæinn á sunnudegi. Systir okkar bjó þar með okkur bræðrunum og hún pikkaði í mig og spurði hvort ég vildi ekki bjóða Birni kaffi. Þegar Björn gerði hlé á lestrinum sagði ég: „Systir mín, Guðrún, er að bjóða upp á kaffi og meðlæti.“ Björn svaraði: „Það er vani minn, þá er eg hef les- ið, að drekka eigi kaffi og vil eg eigi að eg sé van- inn á þann ósið hér.“ Ég lauk svo stúdentsprófi og fór í lögfræði og á fyrsta árinu mínu þar varð eldgos í Vestmanna- eyjum. Þá fór ég ásamt Arnþóri að sjá um þátt á Ríkisútvarpinu sem hét Eyjapistill. Stefán Jónsson fréttamaður fékk þá hugmynd að við ættum að sjá um Eyjapistlana. Hann sagði að umsjónarmenn þessara þátta yrðu að vera menn sem allir Vest- mannaeyingar þekktu og gætu talað við. Okkur var tilkynnt með tveggja daga fyrirvara að við ættum að gera þessa þætti og svo var okkur hent í djúpu laugina. Eyjapistill var nokkurs konar sameiningartákn Vestmannaeyinga því þar gat fólk sent inn alls kyns tilkynningar, til dæmis um týnda muni. Heilu fjölskyldurnar dreifðust og vinir og kunn- ingjar voru um allt land. Fólk auglýsti hvað eftir öðru og þá voru engir gemsar og ekkert net, held- ur náði fólk saman í gegnum Eyjapistil. Lands- frægar urðu auglýsingar okkar um svarta plast- poka sem fóru með tilteknu skipi til Þorlákshafnar og var saknað. Kona auglýsti meðal annars eftir postulínslampa og skipstjórinn hringdi til okkar og sagðist hafa reynt að verja lampann eins og hann gat en brotsjór hefði komið yfir skipið og lampinn splundraðist. Hann sagðist geyma brotin ef konan vildi fá þau. Margt í þess- um þáttum fjallaði um það hversdagslega sem skiptir fólk samt svo miklu máli, eins og postu- línslampinn. Okkur var sagt að vinna við þennan þátt myndi taka tvo tíma á dag en við þurftum að sækja efni víða. Bróðir minn var á kafi í háskólanámi en ég hætti námi því ég sá fram á það að vera ekki af- burðanemandi og klúðra náminu með stæl. Ég hélt áfram vinnu við útvarpið. Svo fór ég reyndar í heimspekideild og var í íslenskum fræðum, sögu og norsku en lauk aldrei prófi því háskólanám átti ekki við mig. Ég fór á bólakaf í fjölmiðlun og starfaði líka mikið í tónlist á þessum árum, sem ég geri reyndar enn. Nýt þess meðal annars að spila með góðum vinum á mínu reki úr Eyjum og víð- ar.“ Orð sem skiptu máli Þú áttir þátt í stofnun Blindrabókasafns Íslands, varst um tíma forstöðumaður Hljóðbókagerðar Blindrafélagsins og frumkvöðull í því að dagblöð yrðu gerð aðgengileg sjónskertu fólki. Hvernig gerðist þetta? „Það er saga á bak við það að ég fór að skipta mér af hljóðbókum. Þegar ég var ungur maður í námi í Menntaskólanum í Reykjavík frétti ég að Eiríkur Hreinn Finnbogason borgarbókavörður væri byrjaður að lána út hljóðbækur. Ég hafði samband við hann til að fá slíkar bækur lánaðar. Hann bauð mér inn á skrifstofu til sín og sagði: „Þú sem sjóndapur námsmaður hefur áhuga á bókmenntum. Þér ber skylda til að sjá til þess að bókum verði miðlað til sjónskerts fólks með þeim hætti sem því hentar.“ Þessi orð hans brenndu sig inn í mig. Ég fór að vinna að þessum málum innan Blindrafélagsins og þar var síðan stofnað Hljóð- bókasafn í samvinnu við Borgarbókasafnið og það varð svo grunnurinn að Blindrabókasafni Íslands. Mér fannst líka nauðsynlegt að blindir og sjón- skertir hefðu aðgang að dagblöðum. Ég fór ásamt félögum mínum á fund Morgunblaðsmanna og áskriftir hófust í október 1995. Morgunblaðið er eina aðgengilega dagblaðið í tölvutæku formi fyrir blint og sjónskert fólk því aðrir blaðaútgefendur hafa ekki sinnt margítrekaðri beiðni um slíkt.“ Við hvað starfarðu dagsdaglega? „Í dag rek ég ásamt konu minni hljóðbóka- útgáfuna hljodbok.is, sem gefur út hljóðbækur á almennum markaði og nýja diskinn minn, og við rekum einnig ásamt félaga okkar fyrirtækið Fimmund sem sér um tónlistarútgáfu.“ Konan þín er Herdís Hallvarðsdóttir tónlistarmaður, en hún var í Grýlunum á sínum tíma. Hvernig kynntust þið? „Við kynntumst þegar ég var í hljómsveitinni Hálft í hvoru. Hún var ráðin sem bassaleikari hljómsveitarinnar en ég var alfarið á móti því að fá Grýlurokkhund eins og hana í hljómsveitina. Hún sagði seinna að þegar hún sá mig fyrst hefði hún haldið að það væri hræðilegt að vera með svo sjóndapran mann í hljómsveit. Okkar samskipti þróuðust þannig að við fórum að vera saman og giftum okkur árið 1985. Það hefur gengið á ýmsu, eins og í öllum samböndum, en maður gleymir því vegna þess að það er alltaf svo mikið sólskin.“ Morgunblaðið/Eggert ’ Ef maður á við fötlun að etja þá þarf maður að sýna að maður sé miklu betri en sá ófatlaði. Ég hef oft haldið því fram að barátta fatlaðra fyrir mannréttindum sé ekki ósvipuð baráttu kvenna. Konur eru oft vanmetnar af því að þær eru konur og fatlaðir eru vanmetnir af því að þeir eru fatlaðir. Ég er svo heppinn að ég hef yfirleitt getað aflað mér verkefna og ég stofnaði eigið fyrirtæki með konunni af því að enginn vill hafa mig í vinnu.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.