SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Blaðsíða 18

SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Blaðsíða 18
18 31. júlí 2011 Kapphlaupið hafið um „besta“ staðinn fyrir tjöldin á þjóðhátíðinni. Hvítt þorp á þjóðhátíð H vítt þorp rís í Vestmannaeyjum á ári hverju. Það er fastur liður að heima- menn reisa hvít tjöld og eiga sér samastað þar meðan á þjóðhátíð stendur. Hælarnir eru settir niður á miðvikudegi og úthlutunin minnir á aðferð- ina sem viðhöfð var við landnámið í Ameríku – haldið kapphlaup og hver hleypur að sinni þúfu. Menn eru vanafastir í þeim efnum, eins og öðrum á þessari hátíð eyjarskeggja. Tjaldbúðunum er skipt eftir götum og setja nokkrar götur í einu upp sínar grindur daginn eftir. Síðan mætir fólk með tjalddúkana fyrir hádegi á föstudeginum og innanstokksmunina. Kennir þar ýmissa grasa. „Svo eru menn að tínast í tjöldin fram eftir degi, það fer eftir hvað menn hafa fengið sér mikið af hóstasaft deginum áður,“ segir Bjarni Ólafur Guðmundsson, sem fyrir utan að vera einn tjaldeigenda í þorpinu hefur það ábyrgðarmikla hlutverk að vera kynnir þjóðhátíðar. Og honum leist vel á eftir setninguna á föstudag. „Í svona hæglætisveðri og rigningu magnast stemningin í tjöldunum.“ Það verður því líf í tuskunum í hvíta þorpinu um helgina. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Þrjár blómarósir í þjóðhátíðarskapi, enda kunna þær að klæða sig eftir veðri. Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.