SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Qupperneq 19

SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Qupperneq 19
31. júlí 2011 19 F fyrsta þjóðhátíðin þar sem fjölskyldan tjaldaði hvítu tjaldi var árið 1970,“ segir Kristjana Þórey Ólafsdóttir. „Ég man eftir þeim á Breiðabakka eftir eldgosið, þá var ekki hægt að halda þjóðhátíðina í dalnum. Einstaka sinnum höfum við ekki verið með tjald, en þá hef ég líka komið í dalinn og fundist ég hvergi eiga heima.“ Eyjamenn sem talað er við eru sammála um að einna mest sé sungið í tjaldi Kristjönu og fjölskyldu hennar. „Það er mikið sungið,“ segir hún og hlær. „Við er- um líka með flotta gítarleikara sem skiptir máli þegar fólk er ekki tilbúið að syngja í hvaða tóntegund sem er. Sum lögin eru samin í strákaröddum og við erum ekki alltaf til í það stelpurnar. Og við erum frekari! Svo erum við raddfíklar, syngjum bakraddir og milliraddir í öllum lögum, og það er lítið um billegar útsetningar.“ Syngjum bara í myrkrinu Þegar spurt er út í lagavalið dæsir hún, enda ófá lög sungin þessa helgi. „Við þró- uðum okkar eigin söngbók, vorum orðin leið á að syngja alltaf sömu gömlu lögin, Gamla Jón og hvað þetta heitir. Eftir að við unglingarnir komumst til áhrifa bættist eitt og eitt lag í sarpinn og nú tökum við saman söngbók fyrir hverja hátíð með lögum sem skemmtilegast er að radda. Þar er sett inn nýja þjóðhátíðarlagið og sitt lítið af hverju.“ Og auðvitað er hugsað um innréttingar. „Þetta hefur þróast með tímanum,“ segir Kristjana. „Fyrst vorum við með borð, bekk og stóla, og einn skenk til að leggja frá sér kökurnar og hóstasaftið. En svo er fólk farið að punta aðeins meira hjá sér, setja upp smámyndir og fá sér dúk og efni fyrir skenkinn í stíl. Það má segja að allt sé ósköp gamaldags, en samt nýtískulegt og kósí. Og það má ekki vera of mikið af þægindum í tjaldinu. Við höfum til dæmis ekki vatn eða rafmagn og þegar batteríið er búið á luktinni, þá syngjum við bara í myrkrinu. Yfirleitt er tjaldið þéttsetið, færri komast að en vilja, og þeir sem vilja bara spjalla eru vinsam- legast beðnir að fara út. Í rigningu er alltaf fullt af fólki, en þegar sólin skín þarf stundum að hinkra örlítið eftir passlegum kór.“ Margt er eftirminnilegt úr tjaldinu. „Í vondu veðri tekur strengurinn í dalnum svakalega í tjöldin,“ segir Kristjana. „Eitt árið kom svakahvellur og fauk þvílíkt af tjöldum, sem hurfu út í buskann. Þá fórum við í tjaldið, lögðum stól og bekki á hælana, og sátum bara sem fastast. Ég held það hefði annars farið – ég hélt alltaf það færi í næstu hviðu!“ Það segir sitt um hversu söngbækurnar eru eftirsóttar að þær áttu það til að hverfa þegar leið á hátíðina. „Við gátum ekki fylgst með öllum og settum því teygjur í þær, sem voru bundnar í súluna. Ef einhvern vantaði bók, þá varð hann að vera með hana strekkta. En það var einn og einn sem klippti á teygjuna, þannig að söngbókin er held ég helv … góð!“ Allir sætir og fínir á föstudeginum Á föstudögum segir Kristjana að í hverju tjaldi séu veitingar sem jafnist á við meðal fermingarveislu, hver fjölskylda komi með rjómatertur, salöt, skinkusnúða og alls kyns bakkelsi. „Yfirleitt er það flottast fyrsta daginn,“ segir hún. „Þá koma allir fínir og sætir í dalinn og þar sem þetta er föstudagurinn, þá er lystin góð.“ Hún hlær. „Þetta er það sem ég hlakka mest til á hverju ári, að setjast með fólkinu mínu og syngja. Þetta er eitt það besta í mínu lífi.“ Gamaldags en samt nýtískulegt og kósí Birgir Freyr, Lalli og Sigurrós spila á gítar. Tónlistin er hjartað í tjaldinu. Helga, Anna Lilja og Jói með textagleraugun góðu. Alltaf er einn nýr texti sem enginn kann og getur ekki sungið með nema horfa beint á hausinn á hinum. Kristjana Þórey Ólafsdóttir Það var rigning við upphaf þjóðhátíðar á föstudag, en milt veður og mögnuð stemmning í uppsiglingu í tjaldþorpinu. Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.