SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Síða 33

SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Síða 33
31. júlí 2011 33 greind sem samfélagsforvörn. Eftir að hafa verið innan stjórnkerf- isins í átta ár er ég sannfærður um að ávallt er hægt að gera betur. Þess vegna er erfitt að vita af yfirlýsingunni sem var samþykkt án þess að markvisst væri unnið meðhana. Við erum að vinna sam- kvæmt sömu eða svipuðum markmiðum og við höfum lengi verið að vinna og þokumst lítt nær þeim. Eftir stendur þversögnin um að örorka af völdum geðraskana aukist á sama tíma og úrræðum fjölgi og lyfjanotkun aukist.“ Til hvers að gera samþykktir „Að mínu viti væri staðan betri ef unnið væri samkvæmt heild- arsýn í þessum málum líkt og þeirri sem birtist í sáttmálanum. Hugmyndafræðin á bak við það var mjög víðtæk og náði til ólíkra þátta á borð við hlutverk heilsugæslunnar, þörf fyrir hæft starfs- fólk, fjárþörf og fordóma. Eins og komið hefur fram að undanförnu er það upplifun fjölmargra sem starfa í grasrótarstarfinu að ekkert hafi breyst. Því miður er það þannig aðgerðir eru of margar og of flóknar. Áætlanir eru gerðar á mismunandi stöðum innan stjórnkerfisins og án tenginga við fjárveitingar. Afleiðingin er ósamræmi, of hátt flækjustig í litlu landi og skortur á eftirfylgni og framkvæmdum. Almennt má þó segja að stefnumarkandi skjalið Ísland 2020 veki vonir.“ Skýr markmið Héðinn segir að þörf sé á stefnu, markmiðssetningu og aðgerðalista. „Þá er grunnlína dregin um stöðuna sem er uppi og ákveðið hvert skal stefnt og hvaða leiðir á að fara. Setja þarf hlutlæg markmið sem hægt er að mæla hvernig tekst að ná. Ef þessi atriði liggja skýrt fyrir næst árangur í stefnumótun. Fjármagn til aðgerða er náttúrlega for- sendan fyrir aðgerðum í þessu eins og öðru. Hér gildir að gera minna en gera það vel. Við höfum of oft sett okkur markmið í viðtengingarhætti sem miða að því gera bót á hinu og þessu en aldrei er farið eftir því. Alltof mörg teymi eru aðvinna að sama markmiðinu og hlut- verk þeirra skarast.“ Þverfagleg markmið Þegar Héðinn vann innan heilbrigð- isráðuneytisins átti hann frumkvæði að því að kalla saman 13 manna þverfag- legt, óformlegt geðráð. Afrakstur þeirr- ar vinnu var sjö grundvallarmarkmið sem byggjast á Helsinki-sáttmálanum og geðheilbrigðissamningi ESB en með íslenskumáherslum. Þau eru: 1. Efling geðheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar. 2. Efling geðræktar og vitund um mikilvægi góðrar geðheilsu 3. Aðlögun sérhæfðrar geðþjónustu innan stofnana að samfélags- nálgun 4. Vinna á fordómum, mismunun og félagslegri einangrun 5. Bataferli og valdefling (varðarréttindi og þjónustu til sjúklinga) 6. Bæta geðheilbrigði jaðarhópa og viðkvæmra lífsskeiða (t.d. fang- ar og innflytjendur) 7. Trygging fjárveitinga á grundvelli viðurkenndra þarfa Ef markmiðunum ásamt undirmarkmiðum yrði markvisst fylgt eftir vill Héðinn meina að hægt væri aðsnúa þróuninni við. „Geð- heilbrigðisþjónustan snýst of mikið um að bregðast við vanda- málum en hægt væri að stýra vandanum mun betur og þar af leið- andi draga úr honum ef heildarsýnin væri skýrari og samvinnan meiri.“ H éðinn Unnsteinsson er sérfræðingur á sviði stefnumót- unar með sérhæfingu í geðheilbrigðismálum. Hann hef- ur tekið virkan þátt í vinnu innan málaflokksins bæði hér heima, þar sem hann átti frumkvæði að Geðrækt- arverkefninu og hafði umsjón með framkvæmd þess, en einnig er- lendis sem sérfræðingur hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO- EURO). Þar tók hann m.a. þátt í að skapa Helsinki-sáttmálann sem íslensk stjórnvöld skrifuðu undir á ráðstefnu árið 2005. Héðinn segir sáttmálann skiptast í tvo hluta; yfirlýsingu og aðgerðaráætlun sem 53 ríki skrifuðu undir. „Hugmyndin við gerð sáttmálans var sú að notendur, aðstandendur kæmu auk geðheilbrigðisyfirvalda og fræðimanna að gerð skjals þar sem grundvallarhugmyndir og áherslur í geðheilbrigðismálum fengjust viðurkenndar. Úr því urðu tólf grundvallaratriði sem voru hryggjarstykki beggja skjalanna. Að- ildarlöndum WHO-EURO var uppálagt að hafa þau til hliðsjónar er kæmi að mótun stefnu geðheilbrigðismála. Jón Kristjánsson, þáver- andi heilbrigðisráðherra, skrifaði undir sáttmálann og aðgerðaráætl- unina. Sáttmálinn er ekki lagalega bindandi og því er ekkert sem skyldar ríkin til að fara eftir honum. Það næsta sem gerðist var að þessi plögg voru þýdd, síðan þá hefur því miður engin formleg vinna farið í að fylgja áætluninni eftir.“ Væri geðráð lausnin? Eftir stendur að enginn ber ábyrgð á því að fylgja þessum 12 áherslum Helsinki-sáttmálans eftir út í kerfið. Hugmyndir Héðins ganga út á að sett væri á laggirnar geðráð sem hefði yfirsýn yfir þennan stóra málaflokk. Þannig væri hægt að fylgjast með því hvort ólík mál sköruðust og ábyrg heildarsýn fengist á geðheil- brigðismál. „Fyrir þessu eru fyrirmyndir t.d. í Kanada, Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. Þetta myndi tryggja að allir limirnir dönsuðu eftir sama höfði. Landlæknisembættið, Lýðheilsustöð, Heilsugæslan og stofnanir á borð við spítala eru öll að vinna í þessum málum en að mínu viti vantar yfirsýn sem gæti sparað háar fjárhæðir. Í þessum eins og öðrum málaflokkum háir aðskilnaður á milli málaflokka og kerfa okkur þar sem engin heildarstefna er til staðar. Á sínum tíma voru miklar vonir bundnar við Helsinki-sáttmálann og bæði skjöl- in eru að flestra dómi mjög góð. Eftir að hafa unnið að geðrækt-arverkefninu sem var samstarf opinberra aðila og einkaaðila, framkvæmt undir merkjum frjálsra félagasamtaka hér um árið veit ég að hægt er að fá fólk úr ólík-um geirum til að vinna saman á þennan hátt. Eins og staðan er núna vinnur þetta fólk ekki nægilega vel saman.“ Straumhvörf „Á árunum 2005-2006 voru þó stigin stór skref í málefnum geðfatl- aðra. Það var gert þegar 1 milljarður var tekinn af því fé sem fékkst fyrir sölu Símans og á móti komu 500 milljónir úr framkvæmdasjóði fatlaðra. Þessir peningar voru settir í Straumhvarfa-verkefnið sem miðaði að því að koma fólki út af stofnunum og í studda búsetu. Að- gerðin var algerlega að frumkvæði Árna Magnússonar, þáverandi fé- lagsmálaráðherra, og Ragnhildar Arnljótsdóttur ráðuneytisstjóra. Samkvæmt stefnu í málefnum geðfatlaðra hefði í raun átt að fylgja þessu betur eftir með því að efla jafnframt virkni, endurhæfingu og menntun. En það að koma 136 ein- staklingum að nýju út í samfélagið var mikill áfangi. Ekki hefur verið unnið frekar að mál- inu og nú bíða 17 einstaklingar inni á Kleppi eftir búsetuúrræðum þar sem frekari fjárveitingar hafa ekki fengist til að fylgja þessu eftir. Á sama tíma fluttist málaflokkurinn yfir til sveitarfélaganna sem er jákvætt en flækti málið.“ Þörfin eykst Héðinn hefur, eins og þeir sem hefur verið áður rætt við í greinflokknum, miklar áhyggjur af þeim farvegi sem málaflokkurinn er í. Ekki síst vegna þess hvernig útlitið er í at- vinnumálum. „Í ljósi efnahagsástandsins og atvinnuleysis og þegar höfð er hliðsjón af finnsku reynslunni er alveg ljóst að ungu fólki sem á við geðraskanir að glíma mun fjölga. Eftir því sem líður á kreppuna bendir allt til að fólk sem er á jaðr- inum nú muni margt fá einhverskonar greiningu og jafnvel enda á örorku af völdum vanvirkni. Finnar sáu t.d. tvöföldun í örorku af völdum geðraskana hjá ungmennum nokkrum árum eftir að kreppunni þar lauk.“ Við erum alltaf að slökkva elda Héðinn er sammála því að atvinnuuppbygging ætti að vera í for- gangi hjá yfirvöldum. Samt sem áður segir hann að stefna sem miðar að því að vinna fram í tímann ekki síður en að bregðast við þeim vandamálum sem hrjá okkur nú sé nauðsynleg. „Við þurfum að sinna heilsueflingu og forvörnum ekki síður en meðferð og end- urhæfingu. Atvinnuuppbygging gæti í þessum skilningi verið skil- Vantar yfirsýn í málaflokk geðheilbrigðis Héðinn Unnsteinsson hefur unnið innan málaflokksins. Hann átti hug- myndina að geðorðunum 10 og frumkvæðið að Geðræktarverkefninu. Þá starfaði Héðinn sem sérfræðingur í stefnumótun geðheilbrigð- ismála hjá Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Morgunblaðið/Ómar ’ Landlæknisembættið, Lýð- heilsustöð, Heilsugæslan og stofnanir á borð við spítala eru öll að vinna í þessum málum en að mínu viti vantar yfirsýn sem gæti sparað háar fjárhæðir. Í þessum eins og öðrum málaflokk- um háir aðskilnaður á milli mála- flokka og kerfa okkur þar sem engin heildarstefna er. Morgunblaðið/Kristinn Síðastliðinn áratug hefur orðið vakning í jákvæðri sálfræði. Ný- lega var stofnað Félag um já- kvæða sálfræði. Hrefna Guð- mundsdóttir félagssálfræðingur, formaður þess, segir ekki síður mikilvægt að skoða heilbrigði en óheilbrigði. „Jákvæð sálfræði lítur á mannlega styrkleika sem ættu að hjálpa okkur að nýta kosti til að takast á við veikleika. Hingað til hefur áherslan að miklu leyti verið lögð á lyf og segja má að ákveðið úrræðaleysi hafi ríkt. Það er því góð viðbót að skoða hvað einkennir líf þeirra sem eru ham- ingjusamir eða farsælir og hvað skapar vellíðan. Rannsóknir hafa verið gerðar á samfélögum þar sem hamingja mælist vel. Nið- urstöðurnar benda til þess að lýð- ræði, gagnsæi, aðgengi að upplýs- ingum og menntun ásamt jafnrétti séu stærstu áhrifaþættir í ham- ingju þjóða. Grundvallarþarfir hafa vissulega mikið að segja en um- fram það skipta þættir á borð við félagsleg tengsl og virkni mestu máli. Hér á Íslandi eru þessi tengsl yfirleitt góð sem skýrir góða útkomu okkar í rann- sóknum.“ Jákvæð sálfræði

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.