SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Síða 38
38 31. júlí 2011
Fjöldi sorgmæddra aðdáenda safnaðist saman
fyrir utan heimili Amy Winehouse í Camden
hverfinu í Norður London á laugardaginn var.
S
öngstíl smávöxnu söngkonunnar með
stóru röddina hefur verið líkt við þær
Ninu Simone og Sarah Vaughan. Tónlist
hennar má lýsa sem eins konar blús-
poppdjassblöndu sem Amy ljær alveg sérstakan
tón með einkennandi tregafullri rödd. Söngkonan
gaf út tvær plötur en ekkert nýtt efni hafði borist
frá henni síðan platan Back to Black kom út árið
2006. Tónlistarfréttir af söngkonunni hafa því
verið litlar en þeim mun meira barst af slæmum
fregnum af einkalífi hennar. Amy varð þekkt fyrir
eiturlyfjaneyslu og misnotkun áfengis. Sumir vilja
kenna fyrrverandi eiginmanni hennar, vandræða-
gemsanum Blake Fielder-Civil, að nokkru leyti
um það að neyslan fór úr böndunum. Undir það
síðasta var Amy farin að halla sér sérlega mikið að
flöskunni og hætti nýverið við tónleikaferð sína
eftir að hafa verið of drukkin til að syngja á tón-
leikum í Serbíu. Ófáar myndir eru til af henni að fá
sér sopa á tónleikum og segja má að á kaldhæðn-
islegan hátt hafi seinna nafn söngkonunnar,
Winehouse, átt vel við hana.
Það má draga í efa að Amy hafi alltaf sýnt fjöl-
miðlum og aðdáendum sitt rétta andlit. Þó glittir
augljóslega í vanlíðan hennar eftir sambandsslitin
við Fielder-Civil á plötunni Back to Black. Platan
er eiginlega einn allsherjar svanasöngur til
Amy Winehouse, litli söngfuglinn
með stóru röddina, syngur ekki
meir. Ótímabær dauðdagi hennar
þykir sjónarsviptir fyrir breska
tónlistarheiminn.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Söng-
fuglinn
kveður
A
lmannagjá á Þingvöllum var lokað fyrir bílaumferð þann
1. nóvember 1967. Málið hafði þá verið í deiglu um nokk-
urt skeið en sumum þótti goðgá að akvegur lægi um helg-
asta reit þjóðgarðsins. „Friða þarf hinn forna þingstað
mun betur en gert er,“ sagði Bjarni Benediktsson á Alþingi í nóv-
ember 1966. Lýsti hann því þar yfir að bílvegur um Almannagjá væri
líkastur því sem Grikkir hefðu akveg um Akropolis. „Þetta eru hrein
helgispjöll og ótrúlegt að þetta skuli hafa haldist. Þessu til viðbótar
kemur, að allir sem kunnugir eru á Þingvöllum sjá að það er bein lífs-
hætta að fara um veginn sérstaklega í stórum bílum, er jörðin skelfur
undir en klettar hanga yfir.“
Núverandi Þingvallavegur sem liggur norður fyrir Almannagjá,
hvar komið er niður á Vellina þar sem þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins
stendur nú, var lagður árið 1966. Það var hins vegar ekki fyrr en á
haustdögum árið eftir sem frágangi við þann veg var að fullu lokið og
fyrst þá gat þjóðgarðsvörðurinn Eiríkur J. Eiríksson lokað gjánni með
keðjum sem strengdar voru fyrir, sín á hvorum enda hennar.Lokað Eiríkur J. Eiríksson þjóðgarðsvörður lokar veginum um Almannagjá í nóvemberbyrjun 1967.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Myndasafnið 2. nóvember 1967
Akvegurinn
um Akropolis
Frægð og furður
Amy var töffari og reyndi ekkert að fela sig þó hún liti ekki sem best út.
Hér yfirgefur hún Snaresbrook Crown Court í London árið 2008 eftir að
hafa verið viðstödd yfirheyrslur yfir sínum fyrrverandi Blake Fielder-Civil.
Reuters
Einhverjum fannst vel við hæfi að
skilja eftir tómar vínflöskur til
minningar um Amy Winehouse.
Amy blessuninni fannst sopinn
góður og hallaði sér undir lokin
óþarflega mikið að flöskunni.