SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Page 45

SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Page 45
31. júlí 2011 45 Verið velkomin LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar KONA / FEMME, LOUISE BOURGEOIS 27.5. -11.9. 2011 SUNNUDAGINN 31. júlí kl. 14 FJÖLSKYLDUSMIÐJAN Mamma könguló, unnið verður út frá myndheimi Louise Burgeois. KJARVAL, Úr fórum Jóns Þorsteinssonar og Eyrúnar Guðmundsdóttur 27.5. -11.9. 2011 SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara. SÚPUBARINN, 2. hæð Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar um þróun íslenskrar myndlistar. „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“ Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Eitthvað í þá áttina, sýning um kortagerð, skrásetningu og staðsetningu. Síðasta sýningarhelgi 13. og 14. ágúst. Sýningarstjórar eru með leiðsögn sunnudaginn 14. ágúst kl. 15:00 Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Húsasafn Þjóðminjasafnsins: Keldur á Rangárvöllum. Opið alla daga 9:00-17:00 Víðimýrarkirkja í Skagafirði. Opið alla daga 9:00-18:00 Fjölbreyttar sýningar: Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Pétur Thomsen: Ásfjall Kurt Dejmo: Ljósmyndir úr Íslandsheimsókn 1955 Farandsýningin: Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna Guðvelkomnir, góðir vinir! Útskorin íslensk horn Stoppað í fat – Útskornir kistlar Glæsileg safnbúð og Kaffitár Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið alla daga kl. 10-17 Myndin af Þingvöllum Sýningarstjóri: Einar Garibaldi Eiríksson Fjölbreytt verk frá 1782-2011, yfir 50 höfundar Kaffistofa – Leskró – Barnakró OPIÐ: alla daga. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði Hugvit Einar Þorsteinn Ásgeirsson stendur til 14. ágúst Verk úr safneign stendur til 25. september Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis 15. maí – 15. sept. Sumarsýningin Fundað í Fjölni Fjölbreyttar sýningar í báðum söfnum Opið alla daga kl. 11-18 www.husid.com Sími 483 1504 Ljósmyndasýningin HÚN, 17. júlí - 20. ágúst. Rómantískar handgerðar nektarmyndir eftir Jónu Þorvaldsdóttur listljósmyndara. OPIÐ: virka daga kl. 11 - 18, laugardaga kl. 11 - 16, sunnudaga kl. 13 - 16 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.gallerigersemi.is Sími 552 6060 Borgarnesi Lesbók Straumar og stefnur í hamfararann- sóknum, fræðibækur í opinberri stjórn- sýslu og sveitarstjórnarmál hafa verið efst á baugi á liðnum árum og því er „verð að lesa“-listinn minn langur. Kvenhöfundar eru þema sumarfrísins 2011 og sótti ég efni bæði í bókasafn VSÓ Ráðgjafar og hillur Önnu Ólafar vinkonu minnar. Fyrst las ég Ljósu eftir Kristínu Steinsdóttur, átak- anlega frásögn sterkrar íslenskrar konu sem barðist við geðsjúkdóm. Kajsa Ingem- arsson er vinsæll sænskur höfundur og las ég bæði Sítrónur og saffran og Allt á floti og læt þær tvær duga. Borða biðja elska eftir Elizabeth Gilbert hef ég lengi ætlað að lesa og fékk hún mig til að hugsa um gang lífsins og mikilvægi þess að lifa lífinu lif- andi. Það voru þó bækurnar hennar Kristínar Mörju Baldursdóttur um sögu Karitasar, Karitas án titils og Óreiða á striga, sem höfðu mest áhrif á mig. Sagan spannar ævi Karitasar frá seinni hluta nítjándu aldar og fram á miðja tuttugustu. Amma mín Herdís var jafnaldra hennar og þar sem ég hef verið að skoða ævi ömmu minnar voru áhrifin örugglega meiri. Áratugum saman var Karitas í fjarbúð með fallega skipstjóranum sem hún hitti í síldinni á Siglufirði og eignaðist með hon- um börn, sem hún var þó ekki mikið fyrir. Lýsingar á viðbrögðum við sjálfstæðisbar- áttu kvenna voru margar og oft grát- broslegar og er óhætt að þakka formæðr- unum baráttuna. En ég hugsaði oft hvað enn er langt í land í þeim efnum. Þessi saga er um lífsbaráttu íslenskrar al- þýðu og örlög einrænnar listakonu sem fór sínar eigin leiðir í listsköpun sinni hér heima og erlendis. Karitas var litin horn- auga hér heima fyrir að falla ekki inn í normið eins og margar aðrar listakonur sem skáru sig úr á þessum tíma og hlutu ekki viðurkenningu í lifandi lífi. Ég held að það sé Karitas í okkur öllum. Lesarinn Herdís Sigurjónsdóttir umhverfis- og auðlindafræðingur Það er Karitas í okkur öllum Kristín Marja Baldursdóttir er höfundur verk- anna Karitas án titils og Óreiða á striga. Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson Ramadan-há- tíðin hefst ell- efu dögum fyrr í ár en í fyrra og það er 1. ágúst. Á næsta ári mun hún síðan hefjast ellefu dögum fyrr en í ár. Þetta er níundi mán- uðurinn á dagatali múslima og á meðan hátíðinni stendur borða sannir múslimar ekkert á meðan sólin er á lofti. Ramadan-hátíðin kennir múslimum þolinmæði og auðmýkt gagnvart guði sín- um. Það var á Ramadan sem Allah gaf spámanninum Mú- hammeð fyrstu vers Kóranins. Það er því óvenjumikið lesið í kóraninum. Hann selst því eins og heitar lummur út um allan hinn múslimska heim um þessar mundir. Hér eru nokkr- ar myndir frá fjölmennasta múslimalandi í heimi: Indó- nesíu. Kóraninn selst eins og heitar lummur Hér er kona að telja nýprentuð eintök af Kór- aninum. Starfsmaður hjá prentsmiðju ber út eintök af Kóraninum, en hún er staðsett nálægt Sunan Ampel moskunni í Surabaya. Reuters Hér er maður í prentsmiðjunni að skoða pappírinn í upplagi af Kór- aninum í Surabaya í Indónesíu. Samkvæmt eiganda prentsmiðj- unnar, Suyanto, þá tvöfaldast vanalega eftirspurnin eftir Kór- aninum þegar nálgast hátíðina og þeir prenta 20 þúsund eintök í staðinn fyrir 10 þúsund vanalega.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.