SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Page 8
8 9. október 2011
Pólland hefur staðið efnahags-
þrengingarnar í heiminum betur af
sér en flest ríki. Í Póllandi hefur
verið hagvöxtur á meðan önnur
ríki Evrópusambandsins hafa
glímt við samdrátt í efnahagslíf-
inu.
Donald Tusk hefur verið for-
sætisráðherra landsins frá 2007
og haldi hann velli verður það í
fyrsta skipti, sem sitjandi for-
sætisráðherra gerir það í kosning-
unum í Póllandi frá því að járn-
tjaldið féll.
Tusk segir að hann þurfi áfram-
haldandi umboð frá kjósendum til
að ljúka því verki, sem hann hafi
hafið.
Þegar Tusk komst til valda
hófst hann handa við að bæta
samskiptin við Evrópusambandið.
Hann hefur hins vegar sagt að
hann hafi hagsmuni Póllands í fyr-
irrúmi og gagnrýnt björgunar-
aðgerðir á evrusvæðinu. Hann
hefur ekki viljað setja dagsetn-
ingu á það hvenær Pólverjar hygg-
ist taka upp evruna.
Standa vel í kreppunni
Pólskur verkamaður við vinnu.
Reuters
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
mánudaginn 10. október, kl. 18
í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
Jóhannes
S.Kjarval
Á uppboðinu verður gott úrval
verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra
verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd laugardag 11–17, sunnudag 12–17 og mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
P
ólverjar ganga að kjörborðinu í dag,
sunnudag. Sitjandi samsteypustjórn
Donalds Tusks forsætisráðherra hefur
forustu samkvæmt skoðanakönn-
unum, en ljóst þykir að mjótt verði á munum
og ekki sýnt að stjórnin nái meirihluta á þingi
þrátt fyrir forskotið.
Helsti andstæðingur Tusks er Jaroslaw Kac-
zynski. Bróðir hans, Lech Kaczynski, fórst í
flugslysi 10. apríl 2010. Hann var að koma til
lendingar í Smolensk í Rússlandi ásamt Mariu
konu sinni og 94 forustumönnum í pólsku
þjóðlífi, stjórnmálamönnum, embættismönnum
og kirkjuleiðtogum, sem allir fórust með hon-
um.
Flugslysið var mikill harmleikur fyrir Pól-
verja. Bræðurnir Lech og Jaroslaw voru ein-
eggja, en þótt erfitt væri að greina á milli þeirra
voru þeir ólíkir í háttum. Lech var fjöl-
skyldumaður, en Jaroslaw einfari, sem bjó hjá
mömmu sinni. Jaroslaw hefur verið lýst sem
hugmyndafræðingnum, en Lech hafi séð um að
setjast í embættin. Tvíburarnir þóttu skarpir í
gagnrýni sinni, en sérsinna og var litið á þá sem
utangarðsmenn í pólitík á árunum eftir hrun
járntjaldsins. Eftir aldamót fór þeim hins vegar
að vaxa ásmegin og árið 2005 uppskáru þeir,
sigruðu fyrst í þingkosningum og síðan í for-
setakosningum. Lech varð forseti og Jaroslaw
forsætisráðherra árið eftir.
Eftir slysið bauð Jaroslaw Kaczynski sig fram
til forseta. Hann komst í aðra umferð og tapaði
þá naumlega með 47% atkvæða. Nú leiðir hann
flokk sinn, sem heitir Réttur og réttlæti, og
virðist ætla að ná á milli 20 og 30% atkvæða.
Stjórnarliðarnir kunna að hafa forskot, en það
hefur skroppið saman á undanförnum vikum.
Kaczynski hefur beint spjótum sínum að
Þjóðverjum í kosningabaráttunni. Í nýrri bók
gefur hann til kynna að ekki hafi allt verið með
felldu við það hvernig Angela Merkel kanslari
komst til valda. Hann varar við stórveldisbrölti
hennar. Kaczynski segir að vestrænir nágrannar
Póllands hafi spillt og keypt pólsku yfirstéttina
og heldur því fram að þýskar fjárfestingar í
vesturhluta Póllands stefni sjálfstæði landsins í
voða.
Í vor skammaðist Kaczynski út í þýska
minnihlutahópinn í Slesíu og sagði að hann
væri útsendari nágrannaríkis, sem vildi endur-
skoða söguna.
Þegar Tusk sagði eftir flugslysið að bæta ætti
samskiptin við Rússa sagði Kaczynski að nú
væru hann og Vladimír Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, búnir að semja um að senda sig til
Síberíu. Síðar var sagt að þetta hefði átt að vera
brandari.
Í júní dró hann í efa að bróðir sinn lægi í
raun í líkkistunni í Varsjá. Rússarnir hefðu rað-
að líkamspörtum úr flugslysinu af handahófi í
kisturnar.
Í vikunni sagði Kaczynski að Merkel ætlaði að
knésetja Pólland í samstarfi við Pútín og á
föstudag hélt hann því fram að aðstoð við
Grikkland væri aðeins ætlað að bjarga þýskum
og frönskum bönkum, sem hefðu lánað Grikkj-
um peninga.
Tusk segir að sigur Kaczynskis hefði í för með
sér að samskipti Póllands við grannríkin myndu
versna að nýju. „Stjórn undir forustu Jaroslaws
Kaczynskis myndi ýta undir ágreining undir
kjörorðinu allir gegn öllum. Hann sagði að Kac-
zynski beitti „óhreinum meðulum“ til að
skemma sambandið við Þýskaland og bætti við:
„Það er mjög sorglegt og áhyggjuefni.“
Kaczynski vex ás-
megin í Póllandi
Forskot stjórnar Tusks skrepp-
ur saman á lokametrunum
Jaroslaw Kaczynski talar á blaðamannafundi í Varsjá. Hann vonast til
að komast til valda í kosningunum í Póllandi í dag.
Reuters
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, heilsar
stuðningsmönnum sínum í kosningabaráttunni.
Reuters
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Pólland var eina landið í Evrópu-
sambandinu þar sem mældist
hagvöxtur árið 2009. Hagvöxt-
urinn það árið var 1,7% og 3,8%
í fyrra. Pólverjar hafa nú forsæti
í Evrópusambandinu og á fundi í
gær sagði Donald Tusk, for-
sætisráðherra Póllands, að nú
væru nemendurnir, nýliðarnir í
ESB, farnir að vinna heimavinn-
una sína betur en kennararnir.
Slá nú kenn-
urunum við