SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Side 10

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Side 10
10 9. október 2011 Þ að verður seint sagt að heimskan ríði við einteyming, þegar núverandi stjórnvöld eiga í hlut. Nýjasta dæmið af mörgum heimskupörum ríkisstjórnar Íslands beinlínis æpir á landsmenn, sem fæstir eiga orð yfir því að nú sé með viðhöfn búið að taka síðasta áfanga Hellisheiðarvirkjunar, Sleggjuna, í notkun og þar með auka framboð á raforku til at- vinnuuppbyggingar hér á landi, en að engin not séu fyrir rafork- una, vegna þess að Steingrímur J. Sigfússon og hans flokkur, VG, hafa komið í veg fyrir að eitt einasta áform um uppbyggingu og aukna atvinnusköpun yrði að veruleika. Heimska og afglöp lýsa þessu hátterni best. Jóhanna Sigurðardóttir hefur í ræðum sínum lofað atvinnu fyrir þúsundir á þúsund ofan, en efndir hafa engar reynst. Heimska og afglöp lýsa hennar hátterni einnig best. Það liggur fyrir að raforka sem kostar marga milljarða króna á ári er nú ónotuð í raf- orkukerfi okkar landsmanna, en ráðamenn standa ráðalausir og hafa engar lausnir á taktein- um, aðrar en þær, að þeir vilja öðruvísi atvinnuuppbyggingu. Raforkan sem til er í landinu og ekki er nýtt myndi duga til þess að knýja áfram fyrsta áfanga álvers Norðuráls í Helguvík og því væri hægt að setja fram- kvæmdir í Helguvík á fullt á nýj- an leik. En stjórnvöld telja að sjálfsögðu betra að orkan sé óseld og ónýtt, því þau hafa svo „göf- ugar hugsjónir“ gegn auknum áliðnaði í landinu! Ætla mætti að stjórnvöld hefðu tvö mottó að leiðarljósi: Skítt með „pöpulinn“! Skítt með atvinnulausa! Það eru því engar líkur á að við sjáum framkvæmdir á fullum dampi í Helguvík í bráð. Eins og kunnugt er tókust samningar um það á milli Norðuráls og HS Orku, sem þá var að mestu í eigu sveitarfélaga á Suð- urnesjum, að HS Orka leiddi vinnu við orkuöflun, sem tryggði nýju álveri Norðuráls í Helguvík næga orku. Svo gerist það, að sveitarfélögin á Suðurnesjum selja ráðandi hlut í HS Orku í hendur á fjárglæframönnum og um það bil fallítt útrásarvíkingum og Geysir Green Energy eignast ráðandi hlut. Það ástand varði stutt, því HS Orka endaði í fanginu á bönkunum, sem eftir verulegt japl, jaml og fuður, seldu ráðandi hlut í HS Orku til kanadísks fjár- glæframanns, sem var ekki næstum jafn stöndugur og hann þótt- ist vera, Ross Beaty, eigandi Magma, sem heitir í dag Alterra Po- wer. Þessi karl var aldrei að hugsa um atvinnuuppbyggingu og skynsamlega nýtingu raforku í þágu okkar Íslendinga, þegar hann ruddist inn á sjónarsviðið. Hann var auðvitað fyrst og síðast að hugsa um að maka krókinn og blóðmjólka út úr fyrirtækinu allar þær greiðslur sem honum væri stætt á að mjólka og græða feitt á heimsku og afglöpum Íslendinga. Þetta gat Ross karlinn m.a. vegna þess að í leynimakki með öðr- um og ekki minni karli, sjálfum Steingrími J. Sigfússyni, fjár- málaráðherra og formanni VG, varð til sameiginleg stefna þessara tveggja karla: Álver Norðuráls í Helguvík skyldi aldrei taka til starfa. Skítt með þegar gerðan fjárfestingarsamning á milli rík- isstjórnar Íslands og Norðuráls! Katrín Júlíusdóttir, orku- og iðnaðaráðherra, virtist í orði fremur jákvæð í garð atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum og einnig á Bakka í Norðurþingi. En það var bara í orði, ekki á borði. Hún hafði engin bein til þess að standa uppi í hárinu á niðurrifs- fólki á borð við Steingrím J. og Svandísi Svavarsdóttur. Eftir sitja þeir í súpunni, sem gerðu í góðri trú samninga og hófu framkvæmdir sem hafa þegar kostað tugi milljarða króna og verða þar að auki að punga út milljörðum króna á ári fyrir raforku frá Sleggjunni, sem þeir hafa engin not fyrir. Eftir sitja sveitarstjórn- armenn á Suðurnesjum, sem seldu HS Orku, án þess að tryggja að fyrirtækið stæði við gerða samninga, þótt í höndum nýrra eigenda væri. Eftir sitja þúsundir atvinnulausra einstaklinga, sem átta sig æ betur á því að það stóð aldrei til að rífa Ísland upp úr því ástandi stöðnunar sem hér ríkir – ekki hjá þeim sem nú sitja við stjórn- völinn á þjóðarskútunni. Af heimsku og afglöpum Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ross Beaty Steingrímur J. ’ Álver Norður- áls í Helguvík skyldi aldrei taka til starfa. Skítt með þegar gerðan fjárfestingarsamning á milli ríkisstjórnar Íslands og Norðuráls! 7:10 Klukkan hringir. Finn strax að ég hefði betur farið fyrr að sofa en ég er ein af þessum næturgyðjum sem finnst ljúft að vaka inn í nóttina. Stilli klukk- una á 10 mínútur í viðbót. 7:20 Fer á fætur. Þessa stund á ég fyrir mig til að hugleiða og tengja mig fyrir daginn. 7:35 Vek dóttur mína. Elín- dís er lítil í sér svo ég tek hana upp í rúm, strýk á henni kollinn og spjalla við hana. Góðri stundu síðar er loksins farið á fætur og tónlist Cesaria Evora ómar í græjunum á meðan verið er að sinna morgunverkunum. 9:00 Sú litla komin á leik- skóla. Hún grætur sárt þegar ég kveð hana og það rífur mömmuhjartað. Í aðlöguninni fannst henni gaman en þá var mamma með. Nú hefur raun- veruleikinn tekið við: mamma verður ekki með á leikskól- anum. Þessi aðskilnaður tekur á. 9:15 Er ég mætt upp á Land- spítala. Það á að sprauta í háls- vöðva svo þeir snögglamist í smátíma. Þetta á að laga hellu sem ég fæ stundum fyrir eyrun, en mér skilst á lækninum að ég bíti of mikið á jaxlinn. Maður ætlar auðvitað alltaf að vera svo déskoti duglegur. 9:20 Sprautan virkar strax. Ég get ekki kyngt og fæ hræði- lega innilokunartilfinningu. Svo finn ég að tungan er hálflömuð og uppgötva að ég get hvorki sagt ’l’ né ’r’. Maðurinn minn ætlar að skutla mér heim og við göngum sömu leið út af spít- alanum og ég fylgdi pabba mín- um fyrir nokkrum mánuðum. Ég rúllaði honum af spítalanum í hjólastól því hann gat lítið stigið í lappirnar og var alveg búinn að missa málið. Samt var hann með fulla hugsun eins og ég nú. Ég finn hvernig tárin byrja að streyma niður kinnarnar þegar ég geng í áttina að bílnum. Það rifjast upp fyrir mér hvernig lömunin hans pabba byrjaði í talfærunum, hvernig hann hætti að geta sagt ’l’ og ’r’ og varð að lokum með öllu óskiljanlegur. Ég man eftir síðustu kvöld- máltíðinni þegar hann hætti að geta kyngt og síðasta kossinum sem ég fékk áður en hann hætti að geta sett varirnar saman. MND hét sjúkdómurinn sem pabbi fékk og lömunin byrjaði ofan frá. Nú fékk ég tækifæri til að upplifa í klukkustund hvern- ig honum leið þegar þetta allt hófst. Skyndilega áttaði ég mig á gjöfinni sem lífið var að færa mér þennan dag. 9:40 Er ég komin heim. Ég er þakklát fyrir að mín upplifun varir bara í klukkustund og skyndilega fer ég að hlæja og gantast. Þetta er kannski eina tækifærið í lífi mínu til að tala með lamaða tungu, vonandi. Ég segi nafn mitt og það kemur al- veg fáránlega út, enda hefur það bæði ’l’ og ’r’. Svo hlæ ég og maðurinn minn skilur ekkert af því sem ég er að reyna að segja. „Giskaðu“ segi ég og hann skil- ur það ekki einu sinni. Og þá er mér mikið skemmt. Hann hlær líka að vitleysunni í mér og þá man ég hvað pabbi hló þegar hann var að reyna að tala við okkur yfir matarborðið í síðasta skiptið. Við skildum ekki neitt. Hann reyndi og reyndi þar til við gátum ekki annað en bara hlegið. Hláturinn er stysta bilið á milli tveggja persóna og því dýrmætari en nokkur orð. 11:00 Er ég loks tilbúin í slaginn. Ég fæ senda kápu frá teiknaranum mínum fyrir nýju bókina mína „Íslensku húsdýrin og Trölli“. Ég skoða kápuna í krók og kima, og kem með at- hugasemdir. Hann er frábær teiknari hann Jón og við höfum oft unnið saman. 12:00 Ákveð að sleppa hot yoga þennan daginn. Algjör synd, en það er margt annað sem bíður mín. Tek vítamín og fæ mér að borða. 12:40 Fæ ég póst frá frönsk- um ljósmyndara sem ég þekki ekki neitt. Hann er að biðja mig að skrifa í bók eftir sig. Ég skoða myndirnar hans sem eru mjög flottar og spái aðeins í það verk- efni. 13:00 Ég fæ mér kaffi latte, hringi nokkur símtöl og klára tölvupóst. 13:40 Heyri ég í syni mínum en hann er búinn að vera á hvolfi síðustu vikur því hann er að forrita tölvuleik fyrir Plain Vanilla og þeir eiga að skila af sér á næstu dögum. Ég ræði við hann hvaða möguleika ég gæti kynnt fyrir framleiðanda sem er að spá í að fá mig til að gera tölvuleik. 14:30 Fer ég í stúdíóið og á þar skemmtilegan fund með út- setjara. Hann ætlar að útsetja fyrir mig lag sem ég hef samið. Við ræðum um áferð, hljóðfæri, takt o.fl. Ég mun flytja þetta lag á hátíð í Noregi í nóvember. Mér skilst að það mæti nokkur þús- und manns á hátíðina svo það er eins gott að standa sig. Ég reyni að bíta ekki á jaxlinn við til- hugsunina ;) 16:00 Sæki ég Elíndísi og við förum að ná í yndislega tík sem vinkona mín þarf aðstoð við. Mig langar að vísu að gefa henni nýtt nafn (tíkinni, ekki vinkon- unni þ.e.a.s.) og velti upp nokkrum hugmyndum. Svo förum við Elíndís í göngutúr niður að sjó með hundinn. 17:30 Förum við mæðgurnar heim og höfum það kósí. 20:00 Stelpan er sofnuð. 20:15 Fer ég ásamt mann- inum mínum út að borða með erlendum gesti. 23:00 Kem heim. Sé að ég er komin með endanlega kápu frá teiknaranum. Renni yfir bókina í síðasta skipti áður en hún verður send til útgefanda. Krossa fingur að litirnir komi vel út í prentun og „Íslensku húsdýrin og Trölli“ veiti les- endum innblástur í framtíðinni. Ég klappa hundinum, litla hús- dýrinu sem vantar nýtt nafn. 01:15 Bólið. Er þakklát fyrir gjafir lífsins og ævintýri dagsins! „Er ein af þessum næturgyðjum“ Dagur í lífi Bergljótar Arnalds rithöfundar

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.