SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Síða 11

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Síða 11
9. október 2011 11 Skar og skarkali | 9 Þ að er ekki langt síðan stjörnu- ris Barrets Olivers var rifjað upp í sundbíói í Laugardals- laug. Nú kvá eflaust margir og hugsa með sér: Barret Oliver? Hver í ósköpunum er það? Flestir sem komnir eru yfir þrítugt muna þó eftir litla sæta stráknum Bastian, sem sveif um á hvíta hundinum í sígildu kvikmyndinni Sög- unni endalausu frá níunda áratugnum. Hann bræddi hjörtu þeirra sem á horfðu og ungar stúlkur stofnuðu aðdáenda- klúbba hér og hvar um veröldina. Það var ósjaldan auglýst eftir plakötum með Barret Oliver í barnablöðunum Æskunni og ABC á sínum tíma. Þó að stjarna hans hafi skinið skærast í Sögunni endalausu lék hann í fleiri kvikmyndum á borð við Cocoon og D.A.R.Y.L. Þegar Barret Oliver komst á ung- lingsár sagði hann skilið við leiklistina og gekk til liðs við vísindakirkjuna. Hann heillaðist ekki af sviðsljósinu og hefur verið tregur að veita fjölmiðlum viðtöl eftir að hann komst á fullorðinsár og haldið sig mikið til hlés. Hann söðl- aði um þó að hann hafi ekki sagt skilið við listina og fyrir sköpunarþörf sína fékk hann útrás í ljósmyndun. Hann hefur haldið fjölda ljósmyndasýninga og meðal annars kennt ljósmyndun í Los Angeles. Í iðngrein sinni hefur hann einna helst lagt áherslu á tækni frum- kvöðlanna og útlit 19. aldar ljósmynda. Bók hans, A History of the Woodbury- type, fjallar meðal annars um þess kon- ar ljósmyndun, en hún kom út árið 2007. Einu tengsl Barrets við kvik- myndir nú á síðustu árum eru þau að verk hans birtust í myndinni Cold Mountain frá árinu 2003 en að öðru leyti hefur hann sagt skilið við kvik- myndaiðnaðinn, sviðsljósið og aðdá- endur sína að fullu. Hinir sönnu aðdá- endur gefast þó ekki upp og vonast enn eftir að fá að sjá Barret Oliver aftur á hvíta tjaldinu og halda úti aðdáendasíðu á netinu. signy@mbl.is Dagdraumar barna á níunda áratugnum snérust margir hverjir um að geta flogið um heim- inn á gæludýri sínu líkt og Barret Oliver gerði í hluverki Bastian í Sögunni endalausu. Barret Oliver? Barret Oliver hefur látið sig hverfa úr heimi kvikmyndanna en aðdáendur hans hafa ekki gleymt honum. Hvað varð um … Þorgrímur Kári Snævarr

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.