SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Qupperneq 12
12 9. október 2011
Ekki verður þverfótað fyrir þrívíddarsjón-
varpstækjum sem stendur og framboð
hefur aukist á efni fyrir slík apparöt.
Skerpa og birtuskil skipta miklu í þrí-
víddinni og eru upp á sitt besta í raf-
gastækjum eins og Panasonic
TXP50VT30.
Miðvikudagur
Óttar M. Norðfjörð
Fólk er orðið svo bil-
að. Í gær var farsími
kynntur sem kann að
TALA og það teljast
vonbrigði.
Margeir St. Ing-
ólfsson Smelltu á
„like“ ef þú vilt láta
hafa þig að fífli. Og
ekki gleyma að
„share-a“ þessum status á veggn-
um þínum þannig að allir vinir þínir
fái staðfestingu á kjánaskapnum í
þér. Kvitt!
Fimmtudagur
Atli Bollason Fokk. Steve Jobs er
látinn. Þetta snertir mig á einhvern
undarlegan hátt.
Föstudagur
Bragi Valdimar
Skúlason situr á
bleikum náttfötum
með öll líkamshár
bleikt, bleikan sombreró, fætur í
klórbaði, bleika flamingóa á skjá-
borðinu, nagar harðbleikju með
bleikum glassúr og sötrar ljósrautt
búbbluvín – á morgun verð ég svo
aftur sami drullusokkurinn og áður.
Fésbók
vikunnar flett
Rafgas (plasma) eða LCD er spurn-
ingin, því þó velflestir séu með LCD
tæki þá gefa rafgastækin alltaf
betri mynd. Hvort á að velja fer aft-
ur á móti yfirleitt ekki bara eftir
myndgæðum. Fyrir heimabíó eru raf-
gastækin betri, myndin betri, birtu-
skil betri og sjónarhornið betra.
Þau hafa þó líka sína ókosti; eyða
meira rafmagni, eru þyngri og yf-
irleitt dýrari.
Sem stendur er rétt að mæla
með rafgastæki fyrir þá sem eru
mjög áhugasamir um kvikmyndir og
eins íþróttir eins og fótbolta þar
sem hraðinn er oft mikill, mikið að
gera á skjánum í einu. Hvað fram-
tíðina varðar þá spái ég því að
stutt sé í að LED LCD-tæki, eins og
til að mynda Panasonic tækið hér
fyrir ofan, fari að skáka rafgastækj-
um. Þau nota LED lýsingu, ljós-
díóður, í stað þeirrar baklýsingar
sem almennt er notuð í LCD tækj-
um og fyrir vikið nota þau talsvert
minni straum, munar jafnvel allt að
þriðjungi, og birtuskil eru líka mun
meiri í slíkum tækjum – svart er
svart til að mynda. Einnig verður
hægt að hafa tækin enn þynnri en
hingað til hefur þekkst og dæmi um
sjónvarpstæki sem eru ekki nema
þrír sentimetrar að þykkt.
Rafgas eða LCD?
Sjónvarpstækni
á krossgötum
Þetta Panasonic tæki er mikið að
vöxtum, 50" tæki og því eins gott að
gera ráð fyrir þriggja til fjögurra metra
fjarlægð frá skjá að áhorfanda. Með
tækinu fylgja tvenn þrívíddargler-
augu. Þrívíddartækni Panasonic kall-
ast Vreal 3D, en ekki að það skipti
neinu höfuðmáli.
Í tækinu er þráðlaus USB sendir, inn-
byggður gervihnattamóttakari og
kortalesari, en tækið getur birt JPEG-
myndir og spilað myndskeið á ýmsu
sniði og tónlist á MP3-sniði. Það get-
ur breytt tvívíðri mynd í þrívídd, en
ekki fannst mér það skila neinu af
viti; betra er að leyfa tvívíddinni að
vera í tvívídd og draga bara fram gler-
augun þegar það á við.
Skerpa er +5.000.000:1 og svartími
0.001 msek. Hljóðkerfið, 3x10w Nicam
Stereó 2.1 Surround, hljómaði vel þar
sem ég prófaði tækið, en ef maður hefur
efni á slíku sjónvarpi hefur maður líka
efni á almennilegu heimabíói. það er
nokkuð þungt, eins og rafgastæki al-
mennt; 38,5 kg
Öll venjuleg tengi og nokkur til: eitt USB
tengi fyrir Wi-Fi/HDD upptöku, tvö USB
tengi fyrir Wi-Fi/HDD upptöku og/eða
lyklaborð, eitt Scart-tengi, 4 HDMI og
Component Tengi CI rauf, SVHS, CVBS,
DNLA, Optical og PC tengi. Svo er vit-
anlega tengi fyrir heyrnartól.
Rafgas í
þrívídd
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is