SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 16

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 16
16 9. október 2011 H lýir straumar berast inn í Hádegismóa með gestinum þetta hádegið. Karen Ingv- arsson er komin í hús og bíður mín bros- andi í sófanum í anddyrinu. Við höfum ekki hist í annan tíma en eftir nokkrar mínútur líður mér samt eins og ég hafi þekkt þessa 88 ára gömlu konu alla ævi. Hún er þeirrar gerðar. Viðmótið gæti brætt heilu jöklana og blikið í augunum ber vitni um þroska og gleði manneskju sem lifað hefur langan en ánægjulegan dag. Ekki spillir hljómur raddarinnar heldur fyrir, Karen talar íslensku með dansandi dönskum blæ. Frásagnargáfan er eftir því. Karen fæddist í Reykjavík á nýársdag 1923, dóttir hjónanna Ragnheiðar Sigurðardóttur og Hilberts Götze. Faðir hennar var danskur en starfaði hér á landi sem smiður, þegar fundum þeirra móður Kar- enar bar saman. Karen átti einn eldri bróður, sem er látinn, og tvær yngri systur. Önnur þeirra er á lífi og býr í Danmörku. Þegar Karen var þriggja ára flutti hún til Kaup- mannahafnar ásamt foreldrum sínum og bróður. Skömmu síðar kom hún raunar um tíma aftur heim með móður sinni. „Mamma var með svo mikla heimþrá að hún kom heim með mig. Bróðir minn varð eftir í Danmörku hjá pabba. Eftir nokkra mán- uði hélt mamma þó utan á ný,“ segir Karen. Bæði klósett og baðkar Eftir það ólst hún upp í Kaupmannahöfn og kveðst hafa átt góða æsku, þrátt fyrir að kostur væri naum- ur í kreppunni sem gekk yfir heiminn. „Fátækt var mikil en við höfðum það þokkalegt. Bjuggum til að mynda í einu af fyrstu fjölbýlishúsunum sem var bæði með sérklósett og baðkar. Sumstaðar var bara eitt klósett fyrir heilu stigagangana,“ segir Karen. Ekki batnaði ástandið í seinni heimsstyrjöldinni, sem skall á haustið 1939, en sem kunnugt er hertóku Þjóðverjar Danmörku. Fyrsta minning Karenar frá stríðinu var þegar hún sá þýska flugvél á sveimi yfir borginni. „Ég man ennþá hvað ég varð ofboðslega hrædd og hljóp eins og fætur toguðu heim til mömmu. Það var engin leið að átta sig á því hvað þessar flugvélar myndu gera.“ Átján ára gömul gekk Karen í dönsku and- spyrnuhreyfinguna og starfaði með henni allt til stríðsloka. Það var hættuspil en frændi hennar, Palle Götze, sem var á svipuðum aldri, var tekinn höndum af Gestapo og sendur í fangabúðir í Þýskalandi. „Það var hræðilegt áfall fyrir okkur öll.“ Palle lifði fangavistina af en kom til baka gjör- breyttur maður, sýktur af berklum og bar ekki sitt barr eftir það. Hann lést langt fyrir aldur fram. „Aumingja Palle beið þess aldrei bætur að hafa verið í þessum skelfilegu fangabúðum.“ Nágrannarnir voru nasistar Andrúmsloftið var þrúgandi í Kaupmannahöfn á stríðsárunum og Karen segir tortryggni hafa verið mikla, engum hafi verið treystandi. „Í stríðslok kom í ljós að fólkið á efri hæðinni í húsinu okkar var nas- istar. Eftir að þau voru handtekin máttum við ekki einu sinni tala við þau. Þetta var mjög sorglegt enda hafði ég leikið mér við dótturina á heimilinu sem stelpa. Það var engin leið að gera sér grein fyrir því hverjir voru hliðhollir nasistum og hverjir ekki.“ Matur var af skornum skammti á stríðsárunum. „Við lifðum aðallega á grænmeti, sem bændur leyfðu okkur að taka upp. Mamma gerði allskonar rétti úr gulrótum og kartöflum og ég fæ ennþá vatn í munn- inn þegar ég hugsa um kartöfluréttina hennar. Kjöt fengum við bara á jólum.“ Lítið var um tóbak og Karen rifjar upp að fólk hafi gert tilraun til að reykja allt sem brann, ull og hvað- eina. Fíknin lætur ekki að sér hæða. Kaffiskortur var að sama skapi mikill og Karen gleymir aldrei kaffiboðinu sem haldið var á heimili hennar eftir að kaffisending kom frá Íslandi í stríðs- lok. „Við fengum líka súkkulaði,“ segir hún og ljóm- ar við tilhugsunina. Karen segir gríðarlega gleði hafa brotist út í Dan- mörku þegar hernáminu lauk. „Lengi vel óttaðist fólk að þessu skelfilega stríði myndi aldrei ljúka og það var mikill léttir þegar Danir urðu frjáls þjóð á ný,“ segir hún og bætir við að innrásin í Normandí hafi verið vendipunkturinn. Eftir það hafi fólk gert sér grein fyrir því að taflið væri að snúast við og Þjóðverjar væru ekki ósigrandi. Móðirin „voða íslensk“ Móðir Karenar var alla tíð „voða íslensk“ og segir hún Íslendinga hafa verið tíðari gesti á æskuheimili sínu en Dani. Manninum sínum, Ingvari Ingvarssyni, kynntist Karen í íslenskum róðrarklúbbi í Kaup- mannahöfn árið 1943. „Við fórum að spjalla saman og fljótlega bauð Ingvar mér í Tívolí. Það var fyrsta stefnumótið okkar.“ Spurð hvort þar með hafi þau verið orðin par hristir Karen höfuðið. „Ertu frá þér, það gerðist ekki fyrr en mörgum mánuðum síðar,“ segir hún og glottir. Tilhugalífið var ekki einfalt á stríðsárunum en harðbannað var að vera utan dyra að kvöldlagi í Kaupmannahöfn. Spurð hvort móðir hennar hafi ekki verið ánægð með ráðahaginn færist bjart bros yfir andlit Karenar. „Þú getur rétt ímyndað þér, þetta var það besta sem átti sér stað í hennar lífi!“ Ingvar kom upphaflega til Kaupmannahafnar árið 1938 til að leggja stund á nám í raftækni við tækni- skóla borgarinnar. „Ingvar var mikill rafmagns- maður,“ segir Karen. Þegar stríðið braust út vildu foreldrar Ingvars að vonum fá hann heim en ungi maðurinn hafnaði því, vildi ljúka náminu. Fyrir vikið Með blik í auga Karen Ingvarsson fæddist í Reykjavík fyrir 88 árum. Ung flutti hún til Danmerkur, þar sem hún gekk til liðs við andspyrnu- hreyfinguna í heimsstyrjöldinni síðari, en sneri aftur til Íslands eftir að hafa gifst Ingvari Ingvarssyni, sem m.a. kenndi við Vél- skólann. Síðar lá leið þeirra hjóna til Bandaríkjanna. Tengsli Karenar við Ísland hafa þó aldrei rofnað. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Karen Ingvarsson fyrir utan Hamrahlíð 3 í Reykjavík, húsið sem þau Ingvar Ingvarsson eiginmaður hennar byggðu.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.