SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Page 17

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Page 17
9. október 2011 17 sá hann ekki fjölskyldu sína í heil sjö ár. Námsárin voru enginn dans á rósum og Karen segir Ingvar hafa reynt að framfleyta sér með ýmsum hætti með skólanum. Um tíma vann hann til að mynda sem brauðberi á morgnana en á þeim tíma tíðkaðist að færa fólki brauð heim að dyrum. Menn stóðu saman í harðærinu og Karen minnist þess að Ingvar hafi á tímabili fengið að búa endurgjaldslaust á drengjaheimili í borginni. Verksmiðjan sprengd Sjálfa dreymdi Karen um að læra hjúkrunarfræði en stríðið gerði þann draum að engu. Hún helgaði and- spyrnuhreyfingunni alla sína krafta uns friður var kominn á. Um skeið vann Karen í fataverksmiðju en einn morguninn þegar hún mætti til vinnu var búið að sprengja hana í loft upp. Starfinu var sjálfhætt. Eftir að stríðinu lauk bjuggu Karen og Ingvar fyrst um sinn heima hjá foreldrum hennar. Þau gengu í heilagt hjónaband í Kaupmannahöfn 16. júní 1946 og fóru í brúðkaupsferð til Íslands. Það var mikið æv- intýri en hjónin ungu flugu yfir hafið með Liberator- sprengjuflugvél sem Flugfélag Íslands hafði til um- ráða fyrir millilandaflugið fyrst eftir stríðið. Ekki var seinna vænna að gera plön fyrir framtíð- ina og Karen segir Ingvar hafa spurt sig beint út hvað hana langaði að gera. „Mig langar að fara til Íslands með þér,“ svaraði hún að bragði. Ekki stóð á Ingvari og vorið 1947 fluttu þau til Reykjavíkur. Spurð hvernig upplifun það hafi verið að flytja til Íslands svarar Karen: „Það var sjokk. Það er ekki hægt að lýsa því á annan veg. Á þessum tíma var allt mun frumstæðara á Íslandi en í Danmörku og það var erfitt að laga sig að aðstæðum til að byrja með.“ Karen var ófrísk af fyrra barni þeirra Ingvars á þessum tíma, Sussi, og erfiðlega gekk að útvega hús- næði. „Fyrst um sinn bjuggum við hjá foreldrum Ingvars, í tveggja herbergja íbúð. Það segir sig sjálft að ekki er auðvelt að vera inni á öðru fólki ófrískur og ekki bætti úr skák að pabbi Ingvars glímdi við veikindi. Okkur stóð lítil kjallaraíbúð til boða með þeim skilmálum að við greiddum leiguna þrjú ár fram í tímann. Þá peninga höfðum við ekki, Ingvar nýkominn heim úr námi. Það varð okkur hins vegar til happs að frændi Ingvars gat lánað okkur peninga fyrir leigunni. Það var til mikilla bóta að vera út af fyrir sig enda þótt rýmið væri ekki mikið.“ Siglt á Lagarfoss Við heimkomuna fékk Ingvar vinnu hjá Raforku- málaskrifstofunni fyrir atbeina Jakobs Gíslasonar raf- orkumálastjóra. Rafvæðing landsins var í algleymingi á þessum tíma og segir Karen Ingvar hafa haft yndi af starfinu. Framfarir á tæknisviðinu hafi alltaf verið honum hugleiknar. Síðar fór Ingvar að kenna við Vélskólann. Eftir tíu ára búsetu á Íslandi héldu Karen og Ingvar til Chicago í Bandaríkjunum, þar sem hann lagði um Morgunblaðið/Eggert ’ Í stríðslok kom í ljós að fólkið á efri hæðinni í hús- inu okkar var nasistar. Eft- ir að þau voru handtekin máttum við ekki einu sinni tala við þau. Þetta var mjög sorglegt enda hafði ég leikið mér við dótturina á heimilinu sem stelpa. Það var engin leið að gera sér grein fyrir því hverjir voru hliðhollir nas- istum og hverjir ekki.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.