SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Síða 18

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Síða 18
18 9. október 2011 tveggja ára skeið stund á framhaldsnám í raf- tæknifræðum. Heimferðin með Lagarfossi árið 1959 var eftirminnileg en fljótlega eftir að lagt var úr höfn í Halifax lenti Lagarfoss í árekstri við þýskt skip. „Við vorum í káetunni okkar og brá óskaplega við höggið. Sussi dóttir okkar datt fram úr kojunni og meiddi sig. Það greip mikil hræðsla um sig og ég man sérstaklega hvað skipverjarnir urðu hræddir. Það var ekki traustvekjandi fyrir okkur farþegana.“ Fljótlega kom í ljós að Lagarfoss væri haffær þrátt fyrir að leki hefði komið að skipinu og ekkert að vanbúnaði að sigla heim til Íslands. „Sú sigling gekk áfallalaust,“ segir Karen. Fréttir af atburðum af þessu tagi bárust seint og illa milli landa á þessum tíma. Fyrstu fréttir sem bár- ust til Danmerkur voru misvísandi og Karen segir móður sína hafa talið fjölskylduna af. „Hún var ekki mönnum sinnandi en til allrar hamingju var þetta fljótt leiðrétt og hún fullvissuð um að ekkert amaði að okkur. Þetta var skelfileg lífsreynsla fyrir aum- ingja mömmu.“ Bandaríkin heilluðu Eftir heimkomuna 1959 byrjaði Ingvar aftur að kenna í Vélskólanum og þau Karen hófu að byggja sér hús í Hamrahlíð 3. „Það var dýrt að byggja og við vorum við það að gefast upp og flytja til Bandaríkjanna en Ingvari voru farin að berast tilboð um kennslustöður þar. Jessen, skólastjóri Vélskólans, vildi hins vegar ekki fyrir nokkurn mun missa Ingvar og hjálpaði okkur fyrir vikið með peninga til að við gætum hald- ið áfram að byggja. Þeim stuðningi gleymi ég aldrei.“ Bandaríkin freistuðu þó áfram og síðla árs 1960 ákvað Ingvar að þekkjast boð um að taka að sér kennslu við háskólann í Schenectady í New York- ríki. Hann fór utan á undan en Karen kom í kjölfarið með Sussi en þá var hún orðin ófrísk af annarri dótt- ur, Nönnu, sem kom í heiminn 1961. „Upphaflega ætluðum við bara að vera í tvö ár úti en líkaði vel og ákváðum að framlengja dvölina,“ segir Karen. Íslendingar gleymdu ekki Ingvari og árið 1963 hringdi Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra og bað hann að koma heim og taka við Tækniskólanum, sem verið var að setja á laggirnar. Ingvar varð við því. Fyrsta árið stýrði Ingvar skólanum frá Bandaríkj- unum en árið 1964 flutti fjölskyldan heim. Verkefnið stóð hins vegar ekki undir væntingum. „Okkur var lofað öllu mögulegu en því miður var minna um efndir. Eftir eitt ár gáfumst við því upp og fluttum aftur til Schenectady en Ingvar hafði fengið leyfi frá háskólanum.“ Karen vill ekki gera mikið úr þessu en hlær ennþá að kjaftasögu sem gekk ljósum logum um Reykjavík eftir að Ingvar hafði sagt upp störfum við Tækniskólann. „Hún var á þann veg að hann ætti ameríska konu sem vildi ólm komast heim.“ „Over my dead body!“ Það spilaði inn í ákvörðun hjónanna að Sussi vildi ekki búa á Íslandi. „Hún sagðist vera til í að vera hér þrjár vikur á ári, ekki lengur. Seinna þegar við pabbi hennar fórum að tala um að byggja okkur sumarbústað á Íslandi kom svipur á Sussi sem sagði: Over my dead body,“ rifjar Karen upp og hlær dátt. „Sussi talar hins vegar ennþá íslensku, tíu ára var hún altalandi á þrjú mál, íslensku, dönsku og ensku. Saman tölum við mæðgurnar dönsku.“ Fjölskyldunni líkaði strax vel í Schenectady. „Það var yndislegt að búa þar og við höfðum það gott. Á móti kemur að háskólasamfélagið er auðvitað svolítið verndað, við sáum fljótt að margir bjuggu við lakari kjör úti í þjóðfélag- inu.“ Sem raftæknifræðingur var Ingvar með fyrstu mönnum sem kynntust merkilegri vél vestra – tölvunni. „Ég man hvað hann var spenntur þegar hann byrjaði að vinna við tölvur. Hann Karen og Ingvar ásamt móður hans við komuna í brúðkaupsferðina til Íslands 1946. Heimili Karenar og Ingvars í Clifton Park, Bandaríkjunum. Ingvar og Karen ásamt systrum hennar tveimur og eldri dóttur sinni, Sussi. ’ Ég keyri ennþá, raunar er það með því skemmtilegra sem ég geri. Mér finnst ég eitt- hvað svo létt þegar ég er komin af stað í bílnum. Líður eins og ég sé fimmtug aftur.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.