SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Síða 21

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Síða 21
9. október 2011 21 Lögreglukonan og félagi hennar stóðu á stiga- ganginum á meðan meirihluti gesta yfirgaf sam- kvæmið og voru allir samkvæmisgestir kurteisir í þeirra garð. „Að því loknu kvöddum við húsráð- anda, þökkuðum henni fyrir og yfirgáfum stiga- ganginn. Þegar við vorum komin niður í anddyri hittum við hóp manna og voru þeir beðnir um að vera ekki með hávaða fyrir utan húsnæðið. Einn mannanna sagði þá alla vera að bíða eftir leigu- bifreið. Við kvöddum mennina og gengum í átt að lögreglubifreiðinni.“ Þá tók atburðarásin óvænta stefnu. „Þegar við vorum komin að bifreiðinni og við það að opna dyrnar sitt hvorum megin, kom einn maðurinn úr hópnum gangandi í átt að félaga mínum. Fé- lagi minn sá manninn ekki en hann kom aftan að honum, greip í herðarnar á félaganum og kippti honum aftur. Félaga mínum brá mjög við þetta og hann féll aftur fyrir sig. Manninum var kynnt að hann væri handtekinn þar sem hann hafði ráðist að lögreglumanni að tilefnislausu.“ Tekin hálstaki Þegar verið var að færa manninn í handjárn komu félagar hans til þess að losa hann frá lög- reglu. Félagar mannsins voru sjö talsins og upp- hófust handalögmál þar sem verið var að stía lögreglumönnunum frá þeim handtekna. „Maðurinn sem upphaflega átti að handtaka vék mér aldrei úr augsýn og áður en ég vissi af var allur hópurinn kominn inn á stigaganginn. Ég hélt manninum að vegg inni á stigaganginum og ætlaði að halda honum þar þangað til aðstoð bærist. Miðað við aðstæður sá ég að ég myndi ekki ná að koma manninum ein í handjárn.“ Tíminn leið og hver mínúta var eins og heil ei- lífð. „Ég var farin að þreytast. Félagi minn var þá hvergi sjáanlegur. Maðurinn reyndi að bíta mig í hendurnar og ég var ekki með hanska. Ég reyndi að verja á mér hendurnar. En skyndilega gerðist eitthvað. Áður en ég vissi af var hinn handtekni búinn að taka mig hálstaki. Ég trúði ekki því sem var að gerast. Ég þurfti að hugsa fljótt svo ég næði andanum. Ég þrýsti hökunni niður til að ná að anda og greip um höndina á manninum sem þrýsti um hálsinn á mér. Í hinni hendinni hélt ég enn á handjárnunum. Ég sló handjárnunum aftur fyrir mig, fyrir ofan höfuðið á mér. Það var það eina sem ég gat gert í von um að maðurinn myndi sleppa takinu. Ég vissi ekki hvar höggið myndi enda. Ég sló handjárnunum í andlitið á mann- inum. Hann sleppti þá hálstakinu en greip í stað- inn um hárið á mér. Ég hafði misst jafnvægið og þarna hékk ég með allan minn líkamsþunga á hárinu einu saman. Mér fannst eins og höf- uðleðrið væri að rifna frá höfuðkúpunni. Mig verkjaði svakalega. Höggin dundu því næst á andlitinu á mér. Fyrst frá hægri hlið og svo frá vinstri hlið. Höggin voru líklega fimm eða sex talsins og ég vankaðist við högg númer tvö en höggin voru mjög þung og beint í gagnaugun. Það eina sem ég hugsaði meðan ég hékk þarna bjargarlaus á hárinu var: Haltu þér vakandi!“ Einhverjir velta eflaust fyrir sér hvers vegna hún notaði hvorki varnarúðann né kylfuna. „Skýringin var einfaldlega sú að ég gat ekki notað þann búnað vegna þess að ég hef bara tvær hend- ur og önnur hélt manninum og í hinni hélt ég á handjárnunum. Ég vildi ekki láta handjárnin frá mér vegna hættu á að þeim yrði stolið og þau notuð á mig sjálfa eða félagann.“ Sá félagann alblóðugan Henni var skyndilega sleppt og féll í gólfið. Mað- urinn lét sig hverfa en allir félagar hans voru þá farnir af svæðinu. „Það var ekki fyrr en ég stóð upp og gekk að útidyrahurðinni og sá félaga minn þar fyrir utan alblóðugan að ég áttaði mig á því sem virkilega hafði gerst. Á meðan ég var í lífs- hættu á fyrstu hæð, var hann í lífshættu í kjall- aranum. Mennirnir sem þarna voru á móti okkur voru átta talsins. Við vorum tvö!“ Þau óskuðu eftir aðstoð frá öðrum lög- reglumönnum auk þess að notast við neyð- arhnapp á talstöðinni. „Ósk okkar komst ekki skilmerkilega til skila og leið og beið þar til aðstoð barst. Vökull nágranni hringdi í 112 og sagði lög- reglumenn vera í vandræðum og að þeir þyrftu aðstoð strax.“ Þess má geta að árásarmennirnir höfðu stolið talstöðinni af félaga lögreglukonunnar. Aðstoðin barst þegar allt var yfirstaðið. „Rekja má það til skorts á mannafla hjá lögreglu. Síðustu ár hefur mikill samdráttur verið í fjárveitingum til löggæslu. Skortur á lögreglumönnum er ógn við starfsöryggi þeirra lögreglumanna sem eru starfandi. Við vorum tvö að sinna eftirliti og út- köllum á því stóra svæði sem áður hefur verið tilgreint. Næsta tiltæka lögreglutæki var í miðbæ Reykjavíkur,“ segir lögreglukonan alvarleg í bragði. Árásarmennirnir náðust og hlutu allir fangels- isdóma fyrir þátt sinn í málinu. Lögreglukonan fékk áfallahjálp strax eftir árásina og var óvinnufær í kjölfarið. Hún þarf enn að takast á við andlega og líkamlega fylgikvilla árásarinnar. Ekki trekkja launin Hún kveðst enn ekki hafa svar við áleitinni spurn- ingu sonar síns. Starfið valdi hún vegna ánægj- unnar sem hún hefur af því að aðstoða aðra. „Ég er þjálfuð í því að vera til taks þegar aðrir geta það ekki og til þess að hugsa rökrétt við erfiðar aðstæður.“ Ekki eru það launin sem trekkja. „Í dag eru grunnlaun mín 231.447 kr. eftir átta ár í starfi. Útborguð laun fara sjaldan yfir 240 þús krónur á mánuði. Þessi laun fæ ég með því að starfa á um átta næturvöktum í mánuði, tveimur löngum vinnuhelgum í mánuði og aukavinnu. Ekki er það heldur vinnutíminn sem ég sækist í þar sem ég starfa á kvöldin, nóttunni og á hátíðisdögum þegar sonur minn er í fríi. Ekki er það vinnuað- staðan sem ég bý við, þar sem ég veit ekki hve- nær mér berst aðstoð í tæka tíð. En þar sem starf lögreglumannsins hefur ekki eingöngu áhrif á hann sjálfan, heldur einnig hans nánustu, munu hvorki ég né sonur minn nokkurn tíma gleyma þessu örlagaríka útkalli. Líkamleg og andleg heilsa urðu fyrir miklum skaða og markaði þetta útkall djúp spor í okkar hversdagslega líf.“ Hún velur lokaorðin af kostgæfni: „Ég er í einu erfiðasta starfi sem hægt er að hugsa sér. Ég er lögreglumaður og er í lífshættu í vinnunni á hverjum degi.“ Lögreglumenn standa í ströngu í mótmælum á Austurvelli. Starfið hefur áhrif á mun fleiri en bara lögreglumanninn. Morgunblaðið/Júlíus ’ Á meðan ég var í lífshættu á fyrstu hæð, var hann í lífshættu í kjallaran- um. Mennirnir sem þarna voru á móti okkur voru átta tals- ins. Við vorum tvö!“ eftir Claude Lévi-Strauss, föður mannfræðinnar SÍGILT MEISTARA- VERK Eitt af tímamótaverkum 20. aldar í stórkostlegri þýðingu Péturs Gunnarssonar

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.