SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Page 23
9. október 2011 23
S
tarf lögreglu á Íslandi er enginn dans á rósum, álagið er mikið og hættur leynast
víða. Lýsing lögreglukonu í Reykjavík í Sunnudagsmogganum í dag á fólskulegri
líkamsárás sem hún og félagi hennar urðu fyrir við skyldustörf fyrir þremur ár-
um er svakaleg. Átta karlmenn réðust þá á þau eftir að samkvæmi í heimahúsi
hafði verið stöðvað vegna hávaða. Grípum aðeins niður í frásögn konunnar af glímu hennar
við einn árásarmannanna:
„Ég var farin að þreytast. Félagi minn var þá hvergi sjáanlegur. Maðurinn reyndi að bíta
mig í hendurnar og ég var ekki með hanska. Ég reyndi að verja á mér hendurnar. En
skyndilega gerðist eitthvað. Áður en ég vissi af var hinn handtekni búinn að taka mig háls-
taki. Ég trúði ekki því sem var að gerast. Ég þurfti að hugsa fljótt svo ég næði andanum. Ég
þrýsti hökunni niður til að ná að anda og greip um höndina á manninum sem þrýsti um
hálsinn á mér. Í hinni hendinni hélt ég enn á handjárnunum. Ég sló handjárnunum aftur
fyrir mig, fyrir ofan höfuðið á mér. Það var það eina sem ég gat gert í von um að maðurinn
myndi sleppa takinu. Ég vissi ekki hvar höggið myndi enda. Ég sló handjárnunum í andlitið
á manninum. Hann sleppti þá hálstakinu en greip í staðinn um hárið á mér.“
Það er ótrúlegt til þess að vita að svona lagað geti gerst á Íslandi. En það er veruleiki.
Virðing fólks fyrir lögreglunni virðist á hröðu undanhaldi og erfitt að rengja lögreglukon-
una þegar hún fullyrðir: „Ég er lögreglumaður og í lífshættu í vinnunni á hverjum degi.“
Er þetta virkilega rétti tíminn til að skera niður fjárframlög til lögreglunnar?
Upphafi evrunnar var fagnað með flugeldum og hrossabrestum. Myntbandalagið var enn
eitt skrefið á leið til aukins samstarfs innan Evrópu. Stríðskynslóðirnar litu svo á að hin
sameiginlega mynt væri liður í að fyrirbyggja að nokkurn tímann brytist aftur út stríð á
meginlandi Evrópu. Atburðir undanfarinna mánaða hafa sýnt að evran er ekki sú himna-
sending, sem ætlað var. Í upphafi voru sett ströng skilyrði fyrir þátttöku í myntbandalag-
inu, en þegar nær dró upptöku evrunnar og ljóst var að aðildarríkjunum myndi ekki takast
að uppfylla þau var slegið af kröfunum.
Í úttekt í þýska tímaritinu Der Spiegel er því lýst hvernig brestir myntbandalagsins voru í
raun ljósir frá upphafi. Þar er evrunni líkt við tifandi tímasprengju og hún sögð hættulegasti
gjaldmiðill heims. Tilhneiging ríkir til að skella skuldinni á Grikki. Þeir hagræddu vissulega
hagtölum sínum af mikilli hugkvæmni til að virðast standa betur að vígi og þegar þeir hefðu
átt að reyna að taka til í ríkisfjármálunum tóku þeir einfaldlega ný lán. En þeir voru ekki
einir um að nýta sér ódýrt lánsfé.
Andstaðan við evruna var mest í Þýskalandi. Þýskur almenningur óttaðist að þurfa að
borga með hinum evruríkjunum. Stjórnmálamennirnir lofuðu að svo yrði ekki. Þess vegna
var klásúla um það að einstökum evruríkjum yrði ekki komið til hjálpar. Nú er ljóst að það
munu reynast staðlausir stafir og það er ekki eina evruloforðið, sem farið hefur fyrir lítið.
Grikkland er aðeins örlítill partur af hagkerfi evrusvæðisins, en skuldahali Grikkja teygir
sig inn í banka og fjármálastofnanir. Ef Grikkir geta ekki borgað sogast þær inn í kreppus-
velginn. Engin leið er að segja hvað það mun kosta skattborgara evrusvæðisins að bjarga
sameiginlegu myntinni eða hvort hún mun lifa af. Nú hefur sýnt sig að evran dugar ekki
nema á sólskinsdögum. Þegar á móti blæs verður hún að fótakefli.
Myntbandalagið sem brást
„Sammála. Í einu og öllu.“
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, um ályktun miðstjórnar ASÍ um þá stefnu sem
liggur til grundvallar fjárlagafrumvarpinu.
„Við getum ekki haldið áfram að
lifa eins og enginn sé morgundag-
urinn.“
Kofi Annan, fyrrv. framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna og friðarverðlaunahafi
Nóbels.
„Ég hef enga stórmennsku-
drauma. Mig langar ekki aftur
í þetta líf. Það er ekki þess
virði.“
Jón Ásgeir Jóhannesson í samtali við
DV.
„Ráðning forstjóra
Bankasýslu ríkisins
er hneyksli.“
Helgi Hjörvar, formaður
efnahags og viðskipta-
nefndar Alþingis.
„Það sem einkennir
ræðu hennar er að
hún byrjar sumar setningar mjög
auðveldlega en annars staðar dregur
hún andann og stundum ótt og títt
eins og hún sé að drukkna í sundi.“
Björn Vernharðsson sálfræðingur greindi stefnu-
ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir DV.
„Mamma, mamma, það eru
komin jól!“
Fjögurra ára stúlka á Akureyri þegar hún
leit út á miðvikudagsmorgun og sá al-
hvíta jörð.
„Þingmenn á spena fjár-
málafyrirtækja sitja enn á
þingi og skuldir eins þing-
manns Sjálfstæðisflokks-
ins frá því fyrir hrun,
sem ekki verða
greiddar, duga fyrir
árslaunum verka-
manns í rúmlega
fimm hundruð ár.
Blindan á eigið
vanhæfi er sláandi.“
Þór Saari, þingmaður Hreyf-
ingarinnar.
Ummæli vikunnar
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Stofnað 1913
Útgefandi: Óskar Magnússon
Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal
falli við prentunina. Stundum getur það verið
ósögð réttlæting fyrir ákvörðun viðkomandi
seðlabanka, eins og Kínverjar hafa bent á í tilviki
Bandaríkjanna, sem noti aðferðina til að lækka
raunskuldbindingar sínar gagnvart eigendum
krafna í dollurum. En í niðursveiflu og verð-
hjöðnun getur seðlaprentun og innspýting átt full-
an rétt á sér. Þannig háttaði til í Bretlandi árið
2008. Nú er þar hins vegar 5% verðbólga og for-
sendur aðrar. Ótti Breta við stöðu eigin banka-
kerfis og efnahagslegrar óáranar á evrusvæðinu
hlýtur því að vera gríðarlegur fyrst þeir grípa þetta
úrræði við slíkar aðstæður. Bandaríski seðlabank-
inn hefur vissulega leikið sama leik, þótt aðferðin
við að koma peningum inn í efnahagslífið sé önnur
en sú breska.
Seðlabanki Evrópu er fyrir löngu orðinn gjald-
þrota, ef notað væri sama viðmið og óvitarnir nota
í íslenskri umræðu. Hann hefur reyndar þver-
brotið allar sínar reglur og heimildir svo sem
kunnugt er, sem ekki var gert hér á landi, þegar
leitast var við að gæta þess að bankakerfið íslenska
hryndi ekki vegna lausafjárskorts í heimamynt. Sú
tilraun tókst. En það dugði ekki til því bankarnir
höfðu skuldsett sig svo ótæpilega í erlendri mynt
og erlendis voru þeim allar dyr lokaðar. Eftir fall
bankanna kom í ljós hið ótrúlega að bankarnir
höfðu verið rændir innan frá í bókstaflegum skiln-
ingi orðsins. Hlutur endurskoðendafyrirtækjanna
hefur enn ekki verið rannsakaður og ekki trúlegt
að það verði gert af neinu viti úr því sem komið er.
Hinir trúuðustu efast
Tímaritið Der Spiegel hefur lengst af verið mjög
hallt undir „evrópusamstarfið“ og evruna. En nú
ræða blaðmenn blaðsins opinskátt og skil-
merkilega um með hvað hætti væri hægt að leysa
myntsamstarfið upp, þannig að sem minnst tjón
myndi hljótast af. Blaðamennirnir hefðu getað
sparað sér slíka umfjöllun ef þeir hefðu aðeins rætt
við þá efnahagslegu snillinga sem hafa dýpri skiln-
ing á evrunni en aðrir í þessari veröld. En það er
kannski von, því meira að segja sænsku nób-
elsnefndinni sást yfir það tækifæri sem hún hafði í
þessari óvenjulegu stöðu.
Morgunblaðið/RAX
nýtan dag