SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Qupperneq 25

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Qupperneq 25
9. október 2011 25 hugamálið varð að ævistarfi. Edgren segist raunar skráð sig í herinn vegna vilyrðis um inngöngu í ljós- ndaskóla, en þegar á reyndi komst hann ekki að. „Ég ekki sérlega ánægður með herinn þá!“ rifjar hann upp mtali við Morgunblaðið. vað um það; hann átti forláta Speed Graphic- ndavél og mætti með hana á skipsfjöl í New York er a skyldi til Íslands. Foringi á vettvangi spurði hvort n ætlaði að taka þessa stóru græju með sér og Edgren aði hátt og skýrt: Yes, sir! kömmu áður var hermaðurinn Edgren reyndar úti á rahafi en þegar Japanar réðust á Pearl Harbour á Havaí skipi hans þegar í stað snúið til hafnar í San Fransisco jótlega eftir að hlý Kyrrahafsgolan lék um vanga Ed- ns var hann sendur hingað norður á hjara veraldar. voru vissulega mikil viðbrigði, segir hann. „Okkur st auðvitað kalt en ekki síst skrýtið að hér væri bjart n sólarhringinn yfir sumarið. Þá fóru strákarnir oft í hafnabolta að næturlagi og þótti gaman!“ Ekki var formlegur ljósmyndari í hópi hermanna á Ís- landi fyrst í stað en Edgren fór víða með vélina, myndaði starfsbræður sína og ekki síður mannlífið, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Hann kom sér upp myrkra- kompu í Waterloo-kampi til þess að framkalla filmur. Eftir Íslandsdvölina starfaði Edgren í Bretlandi, þar sem hann varð opinber herljósmyndari, síðar í Frakklandi og víðar. Þegar stríðinu lauk var Edgren í París og einn þeirra fyrstu sem klifruðu upp turn Notre Dame þegar kirkju- klukkunum var hringt fyrsta sinni eftir margra ára hlé. Ógleymanleg stund, segir hann. Ljósmyndir Edgrens af vígvellinum voru birtar í tíma- ritinu Life og víðar og fyrstu árin eftir stríð rak hann ljós- myndastofu í San Fransisco. „Ég tók mikið af tískumynd- um á þeim tíma en varð óskaplega leiður á því eftir nokkur ár. Vildi miklu fremur upplifa fjörið sem fylgdi blaðaljósmyndun og sé ekki eftir því.“ Hann vann m.a. fyrir dagblöð og fréttastofurnar Asso- ciated Press og United Press International. Filmur Edgrens frá Íslandi lágu óhreyfðar í safni hans áratugum saman, en sænsk frænka – kona sem starfaði lengi við útgáfu – hvatti hann fyrir nokkrum árum til þess að koma þeim fyrir almeningssjónir. „Hún taldi mér trú um að þarna gætu legið mikil verðmæti í augum Íslend- inga. Ekki síst þar sem ég átti svo margar myndir af fólki og ég er viss um að Íslendingar hafa miklu meira gaman af þeim en myndum sem ég tók af landslaginu, þótt það sé fallegt.“ Sænska frænkan hratt verkefninu af stað en lést fyrir tveimur árum. Nú hefur draumur hennar ræst. „Ég er mjög ánægður en sé þó eftir því að bókin skuli ekki hafa komið út mörgum árum fyrr því margir á myndunum eru farnir. En betra seint en aldrei; einhverjir krakkarnir á myndunum þekkja sig vonandi og jafnvel skyldmenni eða aðra,“ segir Edgren. ð eftir pabba, er textinn undir þessari mynd í bókinni. Horft á heiminn ofan af girðingu. Íslenskar stúlkur – sem Edgren segir að hafi verið afar fallegar – tilbúnar í sundsprett. Þessi mynd prýðir kápu bókarinnar. Mjólkin sótt.stórir og einn minni. Skyldi einhver þekkja þá? að á horni Túngötu og Ægisgötu í Vesturbænum í Reykjavík. Á Herjólfsgötu í Hafnarfirði.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.