SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Síða 28

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Síða 28
28 9. október 2011 gera þeim kleift að vinna upp forskotið á svipstundu. „Evran var eins konar paradís“ Engu að síður voru vonir bundnar við að með tilkomu evrunnar myndi efnahagslífið á evrusvæðinu blómstra. Bankar, lífeyr- issjóðir og aðrir fjárfestar alls staðar að opna sjóði sína. Grikkir nutu góðs af því. Þeim stendur til boða ódýrt fé á miklu lægri vöxtum, en þeir hefðu fengið fyrir evruna. „Evran var eins konar paradís,“ sagði Papantoniou, þáverandi fjármálaráðherra Grikklands. Löndin í Suður-Evrópu hættu að reyna að taka til í ríkisfjármálunum og peningar flæddu frá norðri til suðurs.Grikkir tóku lán eins og þeir ættu lífið að leysa í skjóli lánstrausts, sem þeir hefðu aldrei haft án evrunnar. Vextirnir eru aðeins litlu hærri en Þjóð- verjar þurftu að borga af ríkisskuldabréf- um. Vorið 2003 eru vextir af grískum rík- isskuldabréfum aðeins 0,09 prósentustigum hærri en af sambærilegum þýskum bréfum. Samkvæmt því töldu markaðirnir á þeim tíma að Grikkland, sem byggði efnahag sinn á framleiðslu jógúrts og ólífuolíu, siglingum og ferðamanna- eyjum, væri jafn lánshæft og Þýskaland, eitt helsta iðnríki heims og heimsmeistari í útflutningi, eins og Der Spiegel orðar það. Ástæðan var sú að menn trúðu því aldrei í raun að staðið yrði við ákvæðið um að ríkj- um evrusvæðisins yrði ekki komið til bjargar lentu þau í vandræðum. Kæruleys- isleg umgengni við reglur og skuldbind- ingar Maastricht-sáttmálans þóttu til marks um það að ákvæðin, sem lutu að myntbandalaginu, bæri að taka hæfilega alvarlega. Ekki bætir úr skák þegar Þjóð- verjar og Frakkar víkja sér undan refsingu vegna fjárlagahallans. Sýni fyrirmyndirnar ekki aga, hver á þá að gera það? Árið 2004 kemst hægri stjórn til valda á Grikklandi. Hún greinir frá því að frá árinu 2000 hafi stjórn sósíalista látið Eurostat hafa rangar hagtölur. Evrópusambandið hrósar Grikkjum fyrir hreinskilnina og gef- ur þeim frest til 2006 til leiðréttingar. Hin nýja stjórn er hins vegar enginn eftirbátur fyrri stjórnar í hagræðingu talna. Útgjöld til varnarmála eru til dæmis skráð á pönt- unar- en ekki greiðsludag og koma því ekki fram í bókhaldinu. Tölur eru færðar til og frá eftir þörfum þannig fjárlagahallinn virðist aldrei fara yfir þrjá af hundraði. Árið 2004 gefur Eurostat út skýrslu þar sem fjallað er um árin 1997 til 1999 og 2004. Þar kemur fram að í útreikningum Grikkja megi finna þrjár meginveilur. Útgjöld til varnarmála séu skráð eftir hentugleika, út- gjöld til félagsmála séu ávallt metin lægri en raun sé og skatttekjur ofmetnar. Skuldirnar hlaðast upp Á evrusvæðinu hlaða ríkin upp skuldum. Þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bendir á vandann heldur samkvæmið einfaldlega áfram eins og ekkert hafi í skorist. Aðeins Þjóðverjar bregðast við og knýja fram um- bætur við hávær mótmæli. Hin löndin halda áfram að taka lán og slá vandanum á frest. Fyrir vikið eykst samkeppnishæfni Þjóðverja enn gagnvart hinum löndunum á evrusvæðinu og þeir uppskera gagnrýni fyrir að þrýsta félögum sínum upp að vegg. Neysla Grikkja byggðist á ódýrum lán- um, sem þeir notuðu til að kaupa þýsk heimilistæki og bíla. Engar umbætur áttu sér stað. Ekkert er gert til að draga úr skuldum og minnka viðskiptahallann. Spilling, niðurgreiðslusvik og óverð- skulduð forréttindi eru eitur í efnahagslíf- inu. Frumkvöðlar í Grikklandi rekast á hindranir við hvert fótmál. Í Der Spiegel er lýsing á iðnaðarsvæði í Komotini þar sem stendur verksmiðja við verksmiðju, allt virðist glænýtt og nánast engin starfsemi. Viðmælandi Der Spiegel segir að aldrei hafi verið ætlunin að hefja starfsemi í þessum byggingum. Verktakarnir hafi einfaldlega fengið ódýr lán hjá grískum stjórnvöldum og Evrópusambandinu til þess eins að reisa byggingarnar. Meira hafi ekki staðið til. Grikkland í ruslflokk 27. apríl 2010 gerðist það í fyrsta skipti í sögu evrunnar að land á evrusvæðinu var fellt í ruslflokk í áhættumati. Standard & Poor’s settu þá grísk ríkisskuldabréf í flokkinn BB+ þarsem fyrir voru Aserbaíd- sjan og Egyptaland, svo dæmi séu tekin. Marko Mrsnik, sérfræðingur hjá matsfyr- irtækinu, var höfundur greiningarinnar. Hann hafði fylgst með Grikklandi í nokkur ár og smám saman lækkað matseinkunn landsins. Þegar Standard & Poor’s lækkaði einkunn Grikkja niður í A- má segja að hrunið hafi hafist. Við það féllu hlutabréf á markaði í Grikklandi og Grikkir urðu að bjóða hærri vexti af ríkisskuldabréfum ef þeir vildu að einhver tæki áhættuna af að kaupa þau. Í grísku samfélagi ríkir mikil tortryggni í garð ríkisins. Í Grikklandi eru næstlægstu skattar allra evruríkjanna. Skatttekjurnar eru um 30% af þjóðarframleiðslu. Talið er að umfang svarta markaðarins sé um fjórðungur af opinbera efnahagslífinu og nemi veltan 59 milljörðum á ári. „Hægt er að hrista höfuðið yfir öllu þessu, yfir Grikkjum og þrjósku þeirra og afdalamennsku, hvernig þeir stunda við- skipti með hætti, sem er íbúum Mið- og Norður-Evrópu mjög framandi,“ segir í Der Spiegel. „En nær væri að furða sig á pólitíkinni og gerendum hennar í Evrópu, hvernig horft var í aðra átt og stað- reyndum ýtt til hliðar og afneitað svo ár- um skipti.“ Blaðið kemst að þeirri niðurstöðu að höfundar evrunnar og arftakar þeirra hafi tapað veðmálinu um evruna. „Þeir lögðu þjóðartekjur landanna tólf undir í þeirri von að markaðirnir tækju ekki eftir því hvað hinn fagri, nýi gjaldmiðill væri við- kvæmur. Og þá bresti, sem forvígismenn evrunnar skildu eftir í regluverkinu, not- uðu eftirmenn þeirra á næstu tíu árum til að gera evruna enn veikari fyrir.“ Blaðið bendir á að frá 1997 hafi þjóð- arskuldir evruríkjanna næstum því tvö- faldast þrátt fyrir allar reglur. Þar af hafi þær hækkað um tvær billjónir (2.000.000.000.000) evra eða 30% á undanförnum þremur árum. Ef fjár- málakreppan hefði komið til hefði veð- málið ef til vill tapast seinna, að mati blaðsins, en það hefði tapast. Helstu evruloforðin öll brotin „Helstu evruloforðin fjögur, sem sett eru fram í Maastricht-sáttmálanum, voru öll brotin: böndum var ekki komið á rík- isskuldirnar heldur tvöfölduðust þær, aðeins fimm ríki af 15 eru undir 60% mörkunum, þak var ekki sett á fjárlagahallann, aðeins fjögur ríki eru undir mörkunum, og bannið við björgun einstakra ríkja var brotið því að evrópski seðla- bankinn er ekki lengur sjálfstæður heldur rusl- banki fyrir aðþrengd ríkisskuldabréf.“ Blaðið segir að þetta séu ekki venjulegar van- efndir án afleiðinga eins og hvert annað kosn- ingaloforð, sem ekki sé staðið við: „Þetta eru vanefndir tveggja kynslóða stjórnmálamanna (og -kvenna) sem hafa búið til háskalega losaralega fléttu, sem tvinnar saman seðlabanka þeirra, seðlabanka Evrópu, bankana og fjárfesta.“ Nú reyna ríki Evrópu að bjarga gjaldmiðlinum, sem svo miklar vonir voru bundnar við í upphafi. Enn er ekki útséð um hvernig fer fyrir evrunni og Kenneth Rogoff á fyllilega von á því að kvarnast muni úr myntbandalaginu. Ljóst virðist að Grikkir muni komast í greiðsluþrot og það gæti komið af stað keðjuverkun verði ekkert að gert. Allar aðgerðir hingað til hafa verið of umfangs- litlar til að sannfæra fjármálaheiminn. Hvernig sem fer eru erfiðir tímar framundan og björg- unaraðgerðir munu kosta hundruð milljarða evra, sem munu koma úr vösum óánægðra skattborgara. Der Spiegel kallar evruna peninga- sprengju og á forsíðu blaðsins var evruklukka, sem vantaði nokkrar mínútur í miðnætti, tengd við tímasprengju. Klukkan tifar. Evrunni var hleypt af stokkunum með flugeldum og lúðrablæstri og lít- ið gefið fyrir raddir efasemda, sem sögðu að í myntsamstarfinu væru banvænir brestir. Nú eru veikleikarnir að koma fram. Forustumenn ríkja evrusvæðisins vilja að evran haldi velli, en það mun verða dýr- keypt fyrir skattborgarana að halda gjaldmiðlinum gangandi.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.