SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Síða 31

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Síða 31
9. október 2011 31 brigður og geta gert alla þá hversdagslegu hluti sem okkur finnst yfirleitt svo sjálfsagt að geta gert. Ég ætla að gæta þess að gleyma því aldrei hversu heppin ég er að hafa fengið annað tækifæri. Ég er stöðugt að minna mig á það.“ Segðu mér aðeins frá einkalífinu, þú ert í sambúð með konu. „Við Agnes Erna erum búnar að vera í sambúð í rúm tvö ár. Yndisleg stelpa og frábær söngkona. Við vinnum oft saman, sem mér finnst mjög skemmtilegt, og hentugt að plata hana til að syngja með mér.“ Þú varst í sambúð með karlmanni. „Það er skemmtileg saga því hann er strákurinn sem er upptökustjórinn á nýju plötunni minni, Magnús Öder, og saman útsettum við lögin. Við getum verið ákaflega ólík en þekkjum hvort annað afskaplega vel, erum eiginlega eins og systkini þannig að samstarfið er mjög gott. Hann á mikinn þátt í útkomunni á þessari plötu.“ Hvernig uppgötvar manneskja sem hefur verið í sambúð með karlmanni að hún er lesbía? „Þetta getur verið flókið. Þegar ég var mjög ung fann ég strax að ég heillaðist meira af konum en körlum en ég þorði ekki að viðurkenna það. Ég var samt svo heppin að verða ástfangin af yndislegum strák. Ég á erfitt með að stimpla mig sem eitthvað eitt og get ekki sagt að ég sé eitt- hvað ákveðið. Ég heillast af fólki og það skiptir mig ekki máli hvort viðkomandi er karl eða kona. Ég er bara af- skaplega þakklát fyrir að finna manneskjur sem ég get tengst tilfinningaböndum. Það er dýrmætt.“ Hvað er svo framundan? „Ég er nú að fara að vinna að annarri plötu þar sem textarnir verða á ensku. Sú vinna er að hefjast. Svo verður spennandi að sjá viðtökur við þessari nýju plötu. Ég veit ekkert hvernig fólk mun taka henni en ég er afskaplega stolt af henni. Svo eru útgáfutónleikar, 21. október í Hofi á Akureyri og síðan tónleikar í Reykjavík í nóvember. Ég er einnig að plana tónleikaferð um landið. Það eru spennandi tímar framundan.“ sé viljandi að sækja í það að hafa eitthvað til að láta mér líða illa yfir. Ég er að einbeita mér að því að hætta þessu. Mér gengur bara vel og ég fæ góðar viðtökur. Ég man ekki eftir að neinn hafi verið leiðinlegur við mig. Og svo er líka bara allt í lagi og sjálfsagt ef það eru ekki allir hrifnir af því sem ég geri. Ég er hrædd við höfnun sem ég hef ekki fengið, sem er náttúrlega fáránlegt.“ Hræðilegt tímabil Mér er sagt að áður en þú varðst þekkt tónlistarkona hafirðu þjáðst af alvarlegum veikindum. Hvað gerðist? „Ég fékk heilaæxli fyrir tíu árum, þá nítján ára gömul. Það byrjaði mjög lúmskt, með höfuðverk sem kom alltaf annað slagið. Ég flakkaði á milli lækna en þeir vissu ekki hvað þetta væri, héldu að ég væri með vöðvabólgu eða mígreni. Ég prófaði alls konar lyf en ekkert þeirra virkaði. Það tók tvö ár að komast að því hvað væri að mér. Þá fannst æxli hjá heiladinglinum. Þetta var hræðilegt tíma- bil og ástand mitt fór hríðversnandi. Undir lokin fékk ég höfuðverkjaköst á átta mínútna fresti. Ég var hætt að geta gert nokkuð, borðaði ekki, gat ekki gengið og var hætt að hitta fólk því ég gat ekki lengur talað. Ég lá í rúminu og vildi bara reyna að sofa. Sumir hafa spurt mig hvort ég hafi verið að gefast upp en ég var ekki að gefast upp. Ég gat bara ekkert gert. Enginn sagði við mig: Við getum læknað þetta, það er til lausn. En læknarnir sögðu: Við getum reynt að skera þetta en við getum ekki lofað að höfuðverkurinn hverfi. Ég fór í aðgerð árið 2003 og þegar ég vaknaði eftir hana leið mér eins og mér hefði verið gefið annað tækifæri. Það höfðu verið sett skurðtæki upp í nefið á mér og gruflað í heil- anum og ég var máttfarin en mér hafði ekki liðið svona vel í tvö ár því höfuðverkurinn var farinn. Þessi skelfilegi hryllingur sem hafði fylgt mér allan þennan tíma var horfinn og hefur ekki komið aftur. Ég gat byrjað upp á nýtt og gert allt sem mér sýndist. Af þessu lærði ég hversu dýrmætt það er að vera heil- irleitt allt fullt af fólki og ég veit ekkert hvaðan það kem- ur.“ Ein þekktasta sveitasöngkona Bandaríkjanna, Luc- inda Williams, mun vera aðdáandi þinn. Hvernig kynntist hún tónlist þinni? „Þegar ég var að spila í fyrsta sinn í Bandaríkjunum á litlum bar í Los Angeles kom hún þangað með kærast- anum sínum og kynnti sig fyrir mér eftir tónleikana. Hún var afskaplega hrifin. Henni þótti textarnir djúpir en mér þótti þeir oft frekar einfaldir. Henni þótti lögin líka frá- bær. Hún hefur komið á tónleika þegar ég er að spila í Bandaríkjunum. Einu sinni vildi hún fá mig til að hita upp hjá sér á tónleikum en þá var ég föst á Akureyri og komst ekki. Ég heyri stundum frá henni og ætla að senda henni þessa íslensku plötu.“ Ertu yfirleitt sátt við það sem þú gerir sem söngkona og lagahöfundur? „Eins og svo margir aðrir fer ég stundum í leiðinda- niðurrif. Þá finnst mér það sem ég geri ekki nógu gott og hef áhyggur af því hvað fólki eigi eftir að finnast. En ég bara nenni því niðurrifi ekki lengur því það er eins og ég ’ „Eins og svo margir aðrir fer ég stundum í leiðindaniðurrif. Þá finnst mér það sem ég geri ekki nógu gott og hef áhyggur af því hvað fólki eigi eftir að finnast. En ég bara nenni því niðurrifi ekki lengur því það er eins og ég sé viljandi að sækja í það að hafa eitthvað til að láta mér líða illa yfir. Ég er að einbeita mér að því að hætta þessu.“ Lay Low: „Mér finnst ég vera að fara skrefinu lengra en áður í tónlistarsköpun og ég er að þróa minn stíl.“ Morgunblaðið/Ómar

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.