SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Side 36

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Side 36
36 9. október 2011 A natoly Karpov situr við borðið, en það eru ekki tafl- menn á því, heldur spægi- pylsa og kexkaka á diski og kaffi í bolla. Hann er í morgunverði á Hótel Loftleiðum í upphafi annasams föstudags, framundan heimsókn í grunnskóla og skák við gamlan and- stæðing við skákborðið en samherja í skákpólitík, Friðrik Ólafsson. Karpov varð sextugur fyrr á árinu og er að mestu hættur þátttöku í mótum, en teflir sýningarskákir og beitir sér fyrir eflingu skákíþróttarinnar, meðal annars með því að stofna skákskóla um allan heim. „Ég rek skóla í 32 löndum og 30 hér- uðum í Rússlandi. Þetta er ekkert flókin formúla, við reynum að útvega skólum nauðsynlegan búnað og mælum með skákkennurum.“ Það bara gerðist – Þú byrjaðir sjálfur að tefla fjögurra ára og sýndir strax mikla hæfileika, af hverju höfðaði skák svona sterkt til þín? „Faðir minn tefldi mikið heima, ég fylgdist með og áhuginn kviknaði út frá því. Það bara gerðist,“ segir hann án þess að kunna frekari skýringar. – En hvenær ákvaðstu að leggja skák fyrir þig? „Ég hafði auðvitað hæfileika og það var ljóst frá upphafi. En ég lauk samt háskólanámi í hagfræði, fyrst í Moskvu og svo Leningrad. Og jafnvel þegar ég varð yngsti stórmeistari í heiminum, þá var ég ekki viss um að skák yrði minn aðalstarfi fremur en annað. Ég gerði ekki upp hug minn fyrr en árið 1973 þegar ég öðlaðist áskorendarétt að heimsmeistaratitlinum. En ég var samt alltaf að sýsla í öðru meðfram.“ – Þú hefur auðvitað fylgst náið með heimsmeistaraeinvígi Fischers og Spasskís árið 1972. „Þá hafði ég verið stórmeistari í tvö ár og undirbúningur stóð yfir hjá sov- éska landsliðinu fyrir heimsmeist- aramótið í liðakeppni. Við fylgdumst með skákunum og greindum leikina jafnóðum. Í fyrsta hluta einvígisins tefldi Fischer betur, en svo varð hann þreyttur og Spasskí fékk mörg tækifæri. En hann varð lúinn líka og glutraði þeim úr höndunum. Og útkoman varð sú að Fischer vann með miklum mun. Þegar farið er yfir skákirnar kemur á daginn að yfirburðirnir voru ekki svona miklir. Spasskí vann elleftu skákina og þá var hann enn inni í einvíginu, en svo missti hann sigur í tap í þrettándu skákinni og lék aftur af sér í þeirri fjór- tándu, þar lék hann undarlegan leik, fórnaði peði, náði því ekki aftur og varð að semja jafntefli eftir að hafa haft unna stöðu. Þegar við vorum að greina skákirnar heima í Sovétríkjunum, þá áttuðu Pet- rosjan og Keres sig á því í fyrsta skipti að ég væri mjög sterkur, því ég sýndi þeim meðan á þrettándu skákinni stóð hvernig Spasskí gæti unnið. Þeir urðu mjög undrandi á því að ég fyndi leið- ina.“ Mistök Spasskís – Spasskí kallaði þig einmitt í und- irbúningseinvígi, sem síðan varð að- eins ein skák. Mér skilst þú hafir verið kominn með unnið tafl, en misst það niður í jafntefli. „Já, við tefldum aðeins eina skák, því teymið hans var mjög upptekið af ýms- um öðrum málum. Ég held hann hafi ekki hugað nógu vel að undirbún- ingnum. Hann hélt hann yrði í nógu góðu formi án þess að leggja mikið á sig og það voru mikil mistök, en kannski góð úrslit í fyrri skákum hans gegn Fischer hafi valdið þessu andvaraleysi.“ – Þú ferð að leiði Fischers á morg- un, laugardag. Hver voru ykkar kynni? „Ég hitti hann fjórum sinnum. Í fyrsta skipti er hann var boðinn til Sov- étríkjanna sem nýkrýndur heimsmeist- ari og leit við á skákmóti sem ég tók þátt í. Síðan hittumst við í Japan árið 1976, mánuði síðar á Spáni og loks í Washington árið 1977. En við ræddum möguleika á að tefla einvígi á síðustu árum þegar hann var fluttur til Íslands. Ég bauð honum að tefla, en hann vildi alltaf vera að breyta skákinni. Þegar ég samþykkti að tefla Fischer random chess, þá neitaði hann því og vildi útfæra nýja hugmynd um að hvítur hæfi leikinn án eins peðs. En mér líkaði það ekki.“ – Það hafa verið vonbrigði er hann mætti ekki í einvígið árið 1975. „Skákheimurinn hefði orðið annar og lífið öðruvísi, líka mitt. Það var mikill skaði.“ – Kasparov hefur sagt að þú hefðir átt góða möguleika á sigri og Spasskí að þú hefðir tapað árið 1975, en unnið árið 1978. „Ég held að hann hefði átt betri möguleika árið 1975, en ég hefði und- irbúið mig vel og það hefði orðið hörkueinvígi. Ég held hinsvegar að ég hefði orðið sterkari árið 1978 og jafnvel þegar árið 1976 eða 1977. Þegar ekkert varð af einvíginu við Fischer keppti ég á tveimur stærstu mótum í heiminum árið 1975 og vann þau. Það fyrra var í júní og þar mættu allir sterkustu skák- meistarar heims utan Fischers, en þá var hann líka hættur.“ Arfleifðin olli andúðinni – Það muna allir skákáhugamenn eftir einvígjum þínum við Kasparov. En það er merkilegt, að þið háðuð fimm rimmur og í þeim vannst þú 19 skákir, hann 21 og þið gerðuð 104 jafntefli. Þetta hefur verið hnífjafnt! „Þetta var í járnum. Og fyrsta einvíg- ið breytti skáksögunni. Ég var að vinna einvígið, jafnvel þegar Campomanes stöðvaði það var ég tveim vinningum yfir og auðvitað voru það pólitísk af- skipti. Ein stærstu mistök mín á ferl- inum voru að samþykkja að tefla við Kasparov í Sovétríkjunum, því það var eina ríkið sem gat leyft sér að neita að fylgja settum reglum. Campomanes hefði ekki komist upp með slíka ákvörðun í neinu öðru ríki í heiminum, nema ef vera skyldi Kína.“ – Á Vesturlöndum var samt litið á þig sem fulltrúa Kremlar? „Það var bara arfleifðin, sem ég hafði ekkert um að segja. Eftir einvígi Fisch- ers og Spasskís átti Fischer að tefla við mig og fjölmiðlar á Vesturlöndum voru á hans bandi. Svo glímdi ég við Korts- noj, sem hafði flúið frá Sovétríkjunum og gerst andófsmaður. Þá var það sama uppi á teningnum. Og svo mætti ég Kasparov. Svona var kalda stríðið, en það segir ekkert um mína afstöðu. Í sjálfsævisögu Kasparovs, Child of Change, sem kom út árið 1987, þá skrifaði hann að leiðtogar Sovétríkjanna hefðu verið hliðhollir sér.“ – Hvað olli því? „Mér var alveg sama. En því miður gátu stjórnvöld gripið inn í leikinn.“ – Því var haldið fram að þú hefðir verið orðinn uppgefinn eftir að einvíg- ið hafði staðið yfir í fimm mánuði! „Kasparov var það líka, svo það var ekki ástæðan. Við tefldum lengsta ein- vígið og eyddum í það miklum kröft- um, en ástæðan var önnur fyrir því að gripið var inn í.“ – Íslenskum skákáhugamönnum er ofarlega í huga er þú tefldir gegn Jó- hanni Hjartarsyni í áskorendaeinvígi árið 1989. „Það var spennandi. Jóhann var mjög sterkur á þeim tíma, tefldi vel í áskor- endamótinu tveim árum áður og hafði unnið einvígi við Kortsnoj.“ Veiktist gegn Friðriki – Þú mætir Friðriki Ólafssyni í dag, en þið öttuð síðast kappi í Argentínu árið 1980 og þá hafði hann sigur. „Þetta var slæmt augnablik á mínum ferli, því ég veiktist meðan á skákinni stóð. Ég var kominn með betri stöðu, en hitinn hækkaði jafnt og þétt og áður en yfir lauk var ég kominn með 41 stigs hita. Ég fór með sendiherra Sovétríkj- anna í Buenos Aires í óperuna um kvöldið, þá áttuðu menn sig á hvað ég var veikur og kölluðu á lækni. Daginn eftir var ég viðstaddur loka- athöfnina, ég lít á það sem skyldu skákmanna sem boðið er á skákmót að vera viðstaddir opnunar- og loka- athöfnina. Ég fékk lyf til að lækka hit- ann, en tíu mínútum eftir að athöfnin hófst missti ég röddina og kom ekki upp orði. Anatoly Karpov segir Petrosj- an og Keres hafa áttað sig á styrkleika sínum er hann fann vinningsleik Spasskís í þrettándu einvígisskákinni meðan á henni stóð. Svona var kalda stríðið Anatoly Karpov er einn merkasti skákmeistari sögunnar. Hann varð heimsmeistari árið 1975 þegar Fischer mætti ekki til leiks og hélt titl- inum í áratug. Fræg eru einvígin við Kortsnoj og Kasparov og Íslend- ingar muna einvígið við Jóhann Hjartarson. Karpov hefur helgað sig ýmsum baráttumálum, er góðviljasendiherra UNICEF og í framboði til rússneska þingsins. Pétur Blöndal pebl@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.