SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Qupperneq 37
9. október 2011 37
Þetta breytir því ekki að Friðrik
Ólafsson var mjög góður skákmaður.
Og raunar eru liðin fjörutíu ár frá því
við mættumst fyrst, á minningarmóti
um Aljekín árið 1970 í Moskvu. Það er
skrítið að geta mælt slíka vináttu í fjór-
um áratugum.
Ef við förum enn lengra aftur í tím-
ann, þegar ég var skóladrengur í lítilli
borg í Úral, þá gat verið erfitt að kom-
ast yfir skákbækur. En ég náði að út-
vega mér bók um áskorendamótið í
Bled og Zagreb árið 1959, þar sem Frið-
rik Ólafsson var meðal keppenda, þá
var hann einn sá yngsti. Það var í fyrsta
skipti sem ég heyrði hans getið.
Svo er hann einn af þremur forsetum
FIDE sem hafa tekið starf sitt alvarlega
og verið farsælir. Ég þekkti ekki þann
fyrsta, Rueb, en Folke Rogard, Max
Euwe og Friðrik Ólafsson stóðu allir
fyrir sínu. Eftir það byrjaði ruglið.“
Þá byrjaði ruglið
– Þú reyndir að bæta úr því þegar þú
bauðst þig fram í fyrrahaust.
„Án árangurs,“ segir Karpov með
áherslu og dæsir. „Það sannaði hversu
kerfið er skrýtið. Fólkið sem kýs hefur
engan áhuga á að efla skáklífið eða bæta
skákina. Það er sterkt til orða tekið að
segja að þetta sé frumstætt, en allt
snýst um kosningaloforðin. Ef Afr-
íkuríki stendur til boða að fá tuttugu
taflborð, þá ræður það atkvæðinu, en
ekki hversu áhugaverð stefnumálin eru.
Ég hafði lagt upp með að styrkja
ímynd skákmeistara, ekki bara heims-
meistarans, heldur einnig fremstu
skákmenn hvers ríkis og tengja styrkt-
araðila við þá. Það myndi efla skák-
íþróttina um allan heim, ýta undir
áhuga og gera hverju skáksambandi
auðveldara að afla fjármagns, þannig að
þau gætu sjálf keypt skákborðin tutt-
ugu. En ríkin sem ráða úrslitum þekkja
lítið til skákheimsins og vita ekki hvaða
möguleikar eru fyrir hendi. Þess vegna
vilja þau frekar frá skákborðin á morg-
un, en að ráðast í metnaðarfulla áætlun
til lengri tíma.“
Og Karpov er kominn á skrið.
„Það hefur verið orðrómur uppi um
að FIDE sé ríkt af því að Ilyumzhinov
leggi því til fjármuni. En þegar árs-
reikningar eru skoðaðir, þá er veltan
mjög lítil fyrir alþjóðlegt skáksamband,
aðeins 1,6 milljónir evra og þar er allt
innifalið, húsaleiga, laun og annað. Ég
var hinsvegar með vilyrði frá tveimur
fyrirtækjum sem vildu leggja til eina til
tvær milljónir evra. Það hefði létt róð-
urinn. En ekkert varð af því.
Ein ástæðan fyrir þessu er sú að
sterkustu skákríkin eru ekki samstiga.
Evrópubúar eru sveigjanlegir af því þeir
búa í lýðræðisríkjum og hafa gleymt
hvernig á að berjast fyrir sínum rétti.
Þú myndir átta þig á því sjálfir ef þú
værir viðstaddur FIDE-þingin. Spurðu
bara Jóhann Hjartarson, hann var þar!
Auðvitað stóðu mörg skáksambönd með
mér og þúsundir skákmeistara, en við
gátum aldrei unnið. Ég nefni sem dæmi
að eitt stærsta skáksambandið er í
Ghana, en þar eru aðeins þrjú skáklið
og samtals um 200 skákmenn. Það hef-
ur hinsvegar atkvæði, alveg eins og
Rússland, þar sem eru 300 stórmeist-
arar.“
Í framboði til þingsins
– Þú hefur líka blandað þér í stjórn-
mál!
„Eins og ég sagði áðan, hef ég alltaf
fengist við fjölmargt utan skákheimsins.
Ég hef starfað með alþjóðlegum frið-
arhreyfingum í áratugi og unnið náið
með Sameinuðu þjóðunum, sem leiddi
til þess að ég varð góðviljasendiherra
UNICEF árið 1999. Ég sat á þingi árin
1989-1991 á meðan Gorbatsjev var leið-
togi Sovétríkjanna og er í framboði
núna, en kosningar verða 4. desember.
Þá hef ég beitt mér fyrir umhverf-
ismálum, en núna erum við að kynna
tækninýjungar sem ætlað er að draga úr
mengun í stórborgum. Það er framtíð-
artækni fyrir allan heiminn, sem dregur
úr losun koltvísýrings.“
– Eruð þið Kasparov samstiga í
stjórnmálum?
„Í skák!“ segir Karpov og hlær. „Við
byggjum á sömu hugmyndafræði, að
skákheimurinn þurfi að breytast og það
þurfi að stokka upp kerfið. Það þarf að
styrkja ímynd heimsmeistarans með því
að efla umgjörðina. En þessi flóðbylgja
af nýjum skákmeisturum veldur því að
erfitt er að móta vettvang til að velja
heimsmeistara og nær ómögulegt að
finna styrktaraðila.“
Morgunblaðið/RAX
’
En ég náði að útvega mér bók um áskorendamótið í Bled og Zagreb árið 1959, þar sem Friðrik Ólafs-
son var meðal keppenda, þá var hann einn sá yngsti. Það var í fyrsta skipti sem ég heyrði hans getið.