SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Page 40

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Page 40
40 9. október 2011 Lífsstíll Tískan Flott taska fullkomnar oft heildarútlitið. Svo er líka bara svo gam- an að safna þeim. Þessi hér mínir einna helst á óvenju smart kík- istösku. Ja eða jafnvel litla fötu ef maður lítur á hana snöggt. Þessi er frá Miu Miu og því lík- legast ekki sú ódýrasta á mark- aðnum. Samfléttaðar hendur Ekki gleyma að láta vel að höndum elsk- unnar þinnar. Það er gott bæði að hald- ast þétt í hendur en líka að leyfa hönd- unum að fléttast mjúklega sam- an og strjúka létt yfir hand- arbakið og inn í lófann. Að leiðast gerir okkur nánari og er frábær leið til að viðhalda neist- anum í hversdagsleikanum. Leikföngin menga Á Bretlands- eyjum er hent meira en 44 milljónum af barna- leikföngum sem eru í lagi á hverju ári. Mörg þeirra eru gerð úr pólývinýlklóríði sem los- ar frá sér eiturgufur á sorphaug- unum. Því er betra að þvo leik- föngin og hugsa vel um þau svo þau endist lengur. Uppeldi fyrir umhverfið Susannah Marriott Salka J ákvæðni er allt sem þarf er stundum sagt. Stundum getur vissulega verið nokkuð djúpt á jákvæðninni hjá manni. En hún leynist samt þarna einhvers staðar. Sama hvort við þurfum að grafa mjög langt eftir henni eða rétt lyfta ofan af henni einhverju þungu drasli. Eftir að hafa setið á fyrirlestri um heilsu og sjálfs- traust fór ég að velta þessu dálítið fyrir mér. Já- kvæðni er til marks um sjálfstraust, að trúa því og treysta að maður geti fundið ásættanlega lausn sama hvað á dynur. Ég held að nokkuð sé til í því að ekkert sé til sem heiti vandamál, aðeins lausnir. Já, þetta hljómar dálítið klisjukennt en einhvern veginn breytist hugsunarháttur manns um leið og maður byrjar að hugsa hlutina öðruvísi. Eins og t.d. á jákvæðan hátt frekar en neikvæðan. Þá er eins og mynstrið í hugsuninni breytist einhvern veginn. Maður nær að velta hugsuninni betur fyrir sér og sjá að líkleg- ast eru ýmsar leiðir að einhverju sem þarf ekki einu sinni að vera vandamál. Við þetta er svo fínt að bæta góðu brosi og slatta af hlátri. Sumt er nefnilega þannig að það er bara best að hlæja að því, frekar en að fara í hnút og verða reið/ur og ómöguleg/ur. Tjáðu þig frekar eins og þú þarft og reyndu svo bara að finna spaugilega hlið á mál- unum. Það eyðir miklu minni orku en að sitja ein- hvers staðar eins og Fýlustrumpur úti í horni með kreppta hnefa. Jákvæðni sparar orku Reynum að temja okkur eins mikla jákvæðni og við get- um. Hugsum í lausnum og gleymum ekki að hlæja. Lífið og tilveran María Ólafsdóttir maria@mbl.is ljósmynd/norden.org Kistan Tattú ja eða húðflúr. Ávanabindandi segja sumir. Þeg- ar þú færð þér eitt þá bara heldurðu áfram að safna. Húðflúr er áhugaverð leið fólks til að skreyta líkama sinn. Sumir vilja koma skilaboðum á framfæri. Aðrir velja sér persónulegt tákn eða mynd. Nokkrir vakna upp við vondan draum með „aparass“ skrifað í kín- verskum táknum á handleggnum. Ég hef stundum velt þessu fyrir mér. Bara að fá mér eitt lítið á lítt áberandi stað. Svo fer ég að hugsa um mig sem ömmu og barnabörnin benda og segja: „Hey amma, ertu með tattú?!“ Er ég svona ferköntuð að láta það stoppa mig? Það væri jú dálítið töff að geta sagt börnunum svona „sjóarasögu“. Ég held að frekar sé ég svona mikill væskill og óttast að hrína eins og stunginn grís af sársauka. Ætla að skoða málið. Af húðflúrum Það sem setur punktinn yfir i-ið á ljúffengri bollaköku er flauelsmjúkt og oft listilega ásp- rautað kremið á toppnum. Hér kemur uppskrift að frískandi kremi með engifer sem getur t.d. verið gott að setja ofan á gulrótarbollakökur. Í kremið þarf 100 ml af mjólk, einn vænan bita af engifer sem skorinn er í fernt, 400 g flórsyk- ur, 125 g smjör og sítrónubörk af hálfri sítrónu. Svo er að leggja engiferið í bleyti í mjólkinni í skál inni í ísskáp í nokkra klukkutíma. Önnur hráefni eru hrærð vel saman og svo er mjólk- inni hellt varlega saman við eftir að búið er að taka engiferbitana úr. Þá er að hræra enn betur þar til blandan er orðin loftkennd. The hummingbird bakery, cupcakes and muffins Tarek Malouf Girnilegt engiferkrem Kvöld eitt í vikunni vakti ég nokkuð lengi fram eftir við að elda heilan kjúkling samkvæmt kúnstarinnar reglum. Nei, ég er ekki byrjuð að troða í mig á nóttunni, nema vængjunum, þeir voru bara svo girnilegir. Ég var bara að nota tímann vel og eyddi því notalegri kvöldstund með kjúlla sem bullaði og mallaðist í ofninum. Það er nefnilega tilvalið að nota kaldan kjúkling í hina og þessa rétti og hagkvæmt að kaupa hann í heilu. Kjúklinginn er t.d. gott að nota í samloku með grófu brauði, sýrð- um rjóma og sinnepi og káli. Svo er líka hægt að búa sér til vefjur og rúlla kjúklingnum upp með hverju því sem manni finnst girnilegt. Það er t.d. hægt að búa sér til Sesarsalats vefjur og fylla þær með kjúlla, brauðmolum og tilheyrandi sósu. Eða gera eitthvað dálítið sterkara og nota chillísósu og góðan hvítmygluost með kjúklingnum. Hugmyndirnar eru eiginlega of margar. Ég hugsa að ég verði að elda í það minnsta tvo kjúklinga í viðbót til að geta prófað allan hugmyndalistann. Kjúlli í ýmsum útfærslum

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.