Monitor - 07.04.2011, Blaðsíða 13
13
lyklað
lu-bíl
ru á ferð og flugi á sjónvarpsskjánum
kkin sín. Próteinstykkin sín.
FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Monitor
axlirnar. Við reynum að kaupa okkur aðsniðin föt og þá hittir það þannig að mittið er grannt
og svo verður þetta svolítið þykkt að ofan.
Arnar, ertu skyldur Hugh Grant?
A Já, já, við erum náskyldir. (hlær)
Í Er ekki Cary Grant líka skyldur þér?
A Jú, Amy Grant, Avram Grant og Osama Bin Grant eru öll skyld okkur líka. (hlær)
Í Þetta er svolítið stórt ættartré.
Þið eruð byrjaðir með sjónvarpsþáttinn Arnar og Ívar á ferð og flugi. Hvernig fæddist
þessi hugmynd?
Í Arnar kom með þessa hugmynd til mín og mér fannst þetta algjör fásinna. Við hefðum
ekkert í sjónvarp að gera og værum ekki sjónvarpsmenn. Eftir að hafa rætt þetta aðeins
betur þá féllst ég nú á að gera þetta því ég leit á þetta sem góða lífsreynslu og ef
einhver myndi fást til þess að sýna þetta, hvað þá ef einhver hefði gaman
af því að horfa á þetta, þá væri markmiðinu náð. Við fórum sem
tveir vinir að hafa gaman og gera vonandi skemmtilegt
efni í leiðinni.
Þið fóruð til fimm borga, Berlín, New York,
Barcelona, London og Kaupmannahafnar. Hvar
var skemmtilegast að vera?
A Það voru toppar í hverri borg, en heilt yfir
held ég að New York hafi verið skemmtileg-
ust. Þetta er svo stórt og mikið.
Í En það er ekki hægt að mynda hvar
sem er. Þeir voru til dæmis mjög strangir
á þessu í New York. Svo var okkur hent út
úr bakaríi í Kaupmannahöfn. Stundum
vorum við að mynda í óþökk þeirra sem
þar voru, það þykir ekkert sjálfsagt mál að
filma hvar sem er.
Voru tollararnir á Keflavíkurflugvelli
ekkert orðnir ágengir undir restina?
Í Við fórum svo ört fram og til baka
að við vorum yfirleitt ekki með neinn
farangur að ráði. En þeir voru farnir að
heilsa okkur ansi kumpánlega.
A En við vorum aldrei stoppaðir.
Hvar voru fallegustu konurnar?
Í Þær voru allavega í besta forminu í
Danmörku.
A Við vorum líka svolítið að velta
fyrir okkur heilsufarinu í hverri borg
fyrir sig. Við skoðuðum skyndibitann og
hvernig hann er misjafn í hverju landi.
Þetta segir nú nokkuð mikla sögu um bæði
kvenfólk og karlmenn í hvernig formi þau
eru.
Í Og dönsku stelpurnar eru nú ekki ólíkar
þeim íslensku. Kannski þess vegna sem okkur
fannst þær fallegastar.
Hvar var versti maturinn?
A Ætli hann hafi ekki verið í London?
Í Það mun koma sérstaklega í ljós í London-þættin-
um að Arnar var ekki mjög hrifinn af Kebabinu í London.
Hann skyrpti því út úr sér.
Sögur herma að Ívar sé einn grófasti íþróttamaður sögunnar og það sé
nærri ómögulegt að spila við hann knattspyrnu. Er þetta satt?
Í Ég fer að halda að þetta sé komið frá einhverjum hér innanhúss sem
mætti mér á fjölmiðlamótinu í knattspyrnu. Þessar sögur eru stórlega
ýktar. Ég hef róast mjög mikið og fæ varla spjald á heilu sumri. Þetta eru
gamlar sögur sem lifa kannski of góðu lífi ennþá.
Segðu okkur nú Arnar frá einhverju eftirminnilegu atriði úr ræktinni.
Kemur það aldrei fyrir að menn missi það hreinlega í brækurnar?
A Jú, það hefur nú skeð.
Í Hefurðu séð það gerast?
A Já, já. Ég hef orðið vitni að því. En ekki hjá mér að vísu.
viðtalið