Monitor - 19.05.2011, Síða 19
19FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011 Monitor
Skapandi og skemmtileg störf í
tæknigreinum framtíðarinnar
Kynntu þér nám í málmiðngreinum
í fjölbrauta- og iðnskólum
TÆKIFÆRI Í MÁLMTÆKNI
Kíktu á framboðið www.idan.is/nam-og-storf
Menntaðu þig til eftirsóttra tæknistarfa
Prófaði kynlíf
með karlmanni
Steven Tyler gaf nýverið út end-
urminningar sínar í bókinni Does
The Noise In My Head Bother
You? og hafa
ótrúlegar sögur
af lífi hans vakið
ótrúlega mikla
athygli. Atvik
sem áttu sér
stað á litríkum
tónleika-
ferðalögum
Aerosmith hafa
glatt lesendur bókarinnar mikið og
fullyrðingar Tyler um að hann hafi
hafnað því að vera aðalsöngvarinn
í Led Zeppelin virðast næstum
eins og hreinn skáldskapur en
Tyler opnar sig um bókstaflega allt
í bókinni. ABC fréttastofan sagði í
vikunni frá kafla í bókinni þar sem
Tyler segir frá kynlífsreynslu sinni
með öðrum karlmanni. „Kynlíf með
karlmönnum gerir ekkert fyrir mig,“
segir Tyler í bókinni vinsælu og
heldur áfram með yfirlýsingarnar.
„Ég prófaði það einu sinni á mínum
yngri árum en ég fílaði það bara
ekki.“ Skrautleg ævi Tyler virðist
vera ótæmandi brunnur ævintýra
en í henni viðurkennir hann einnig
að hafa eytt rúmum 20 milljónum
dala sem jafngilda rúmum tveimur
milljörðum íslenskra króna í eiturlyf
um ævina.
Gaf forsetan-
um óvart gítar
Kólumbíska söngkonan Shakira
segir einn af sex gítörum sem hún
áritaði á tónleikum í Venezúela fyrir
stuttu hafa farið til forsetans Hugo
Chavez. Hann
sendi söngkon-
unni þakkarbréf
fyrir rauða gítar-
inn um helgina
en hann hélt að
gítarinn væri
sérstök gjöf frá
henni. Shakira
furðaði sig á
bréfinu enda hafði hún áritað sex
gítara í einu og hafði ekki hugmynd
um að einn þeirra væri á leiðinni til
sjálfs forseta Venezúela. Talsmenn
söngkonunnar segja hana vona að
gjöfin hafi hvatt til samstöðu milli
íbúa Kólumbíu og Venezúela. Shak-
ira er um þessar mundir á tónleika-
ferðalagi milli þess sem hún knúsar
kærastann Gerard Pique sem leikur
með knattspyrnuliði Barcelona.
Snoop Dogg
vill öðruvísi
X-Factor
Rapparinn Snoop Dogg hefur aug-
lýst eftir framleiðendum til að koma
nýjum sjónvarpsþætti sínum á
laggirnar. Snoop
Dogg hyggst
gera raunveru-
leikaþátt í anda
X-Factor nema
þessi myndi
vera „beint af
götunum“ eins
og hann orðar
það. Rapparinn
hélt blaðamannafund á strippstað
í London í vikunni þar sem hann
sagðist vilja gera svalari götuútgáfu
af X-Factor þáttunum sem hafa náð
geysimiklum vinsældum í Bretlandi.
„X-Factor þættirnir eru frábærir
en ég þarf að gera þátt sem kemur
beint af götunum,“ sagði Snoop
Dogg á fundinum. „Mig langar til að
finna einhvern með hráa hæfileika
sem hafa ekki verið fegraðir fyrir
sjónvarp. Þeir framleiðendur sem
hafa áhuga á hugmyndinni mega
hringja í mig sem fyrst,“ óskaði
rapparinn eftir á ráðstefnunni. Hann
bætti einnig við að ef þátturinn yrði
gerður myndu einungis fátækir og
náttúrulega hæfileikaríkir keppend-
ur fá að taka þátt í honum.
Sjarmörinn Matthew Morrison hefur slegið í gegn að
undanförnu í sjónvarpsþáttunum Glee þar sem hann
syngur og dansar eins og enginn sé morgundagurinn.
Hann hefur ákveðið að reyna fyrir sér sem tónlistar-
maður og fær gullið tækifæri til að láta ljós sitt skína
í sumar. Morrison hefur nefnilega verið ráðinn til að
koma fram með strákahljómsveitunum Backstreet
Boys og New Kids On The Block á einu allsherjar
tónleikaferðalagi um Bandaríkin. Hljómsveitirnar
tvær komu fyrst fram saman í júní í fyrra við mikinn
fögnuð aðdáenda þeirra og nú hefur verið ákveðið að
sykurbossinn Matthew Morrison muni einnig trylla óðar
táningsstúlkur á tónleikum í sumar. „Þetta er tækifæri
sem ég get ekki sleppt,“ sagði Morrison hæstánægður
um ráðninguna. „Ég kann svo vel að meta aðdáendur
mína og ég ætla ekki að bregðast þeim í sumar,“ sagði
hann og bætti við að tónleikarnir yrðu heljarinnar
sýning sem enginn alvöru aðdándi popptónlistar mætti
missa af.
Gengur til liðs við
strákahljómsveitir
MATTHEW MORRISON
LEIKUR WILL
SCHUESTER Í GLEE