Monitor - 08.09.2011, Qupperneq 3
3
MONITOR@MONITOR.IS Ritstjóri: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Einar Lövdahl Gunnlaugsson (einar@monitor.is) Sigyn Jónsdóttir (sigyn@monitor.is)
Auglýsingar: Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.is) Forsíða: Golli (golli@mbl.is) Grafík: Elín Esther (ee@mbl.is)
Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvaldsson Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569 1136
FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011 Monitor
Feitast í blaðinu
Stórborgin New
York hefur verið
helsti áhrifavaldur
Brynju Péturs
í dansinum.
Sigurjón Kjartans
hefur aldrei litið á
sig sem skemmti-
kraft né
þungarokkara.
Meðlimir hljóm-
sveitarinnar 1860
voru teknir í svaka
spurninga-
keppni.
12
Vanilla Ice átti
kengúru að nafni
Bucky sem gæludýr
og er græn-
metisæta. 18
Monitor tók út
dauðdagana í
Hollywood sem
hafa orðið
ódauðlegir. 16
Ætli hinir íslensku Bieber-tvíburar láti
sjá sig í göngunni á laugardaginn?
Efst í huga Monitor
4
Í SPILARANN
Íslandsvinirnir úr hljómsveitinni
Bombay Bicycle Club sendu nýverið
frá sér nýja plötu, A Different Kind
of Fix, sem er
jafnframt
þeirra
þriðja
plata.
Óhætt
er að
segja að
platan sé
einstaklega
góður gripur
sem á heima í safni allra smekk-
manna.
Í GLASIÐ
Þegar mann
langar
einfaldlega að
gera vel við
bragðlaukana
er fátt betra en
að hella upp í
sig svellköldum
safa frá Berry
Company. Safarnir fást í
öllum helstu matvöruverslunum og
er rauða útgáfan þar fremst á meðal
jafningja.
UM HÁLSINN
þegar sumarlegu sólskinsdagarnir
eru farnir að syngja sitt síðasta og
nöpru haustvindarnir farnir að láta
á sér kræla er afar
mikilvægt að
vefja góðum
trefli
utan um
hálsinn
til að
halda
kvefi og
hálsbólgu
í skefjum.
Monitor
mælir með
fyrst&fremst
Leðurblakan
í stað planksins?
Eins og við vitum flest að þá gangahér yfir einhvers konar æði með
reglulegu millibili. Monitor gerði
einmitt úttekt á því fyrir einhverjum
vikum og rifjaði upp Poxið, NBA
myndirnar, Yo-yo æðið og fleira. Það
hefur ekki farið framhjá neinum
að plankið hefur riðið feitum hesti
á þessu ári og fólk á öllum aldri er
tilbúið að leggjast á flatan magann
í tíma og ótíma. Monitor hugleiddi
einmitt að gera úttekt á því á sínum
tíma en vegna ágreinings blaða-
manns og framleiðslustjóra varð
ekkert úr því.
Það sem er þó efst í huga blaða-manns um þessar mundir er að
koma af stað nýju æði hér á landi;
leðurblökunni. Hugmyndin er alls
ekki ósvipuð plankinu því hér þarf
að koma sér í ákveðna stöðu og taka
mynd af herlegheitunum. Eins og
sést á meðfylgjandi mynd , sem
tekin var á æfingu þann 25. ágúst,
þá getur leðurblakan þó verið ansi
hættuleg sérstaklega ef einhverjir
ofurhugar ætla að framkvæma þetta
í hæstu hæðum.
Bleikt.is birti í vikunni myndbandaf strákum ytra sem stunduðu
svokallað Batmanning. Þar eru
fæturnir alveg beinir en leðurblak-
an er ekki eins krefjandi því þar má
beygja fæturna yfir hlutinn sem
kemur til með að halda viðkom-
andi á lofti. Ristjóri er þó alfarið
hættur sjálfur að taka leðurblök-
una en hvetur þó lesendur til að
láta á það reyna. Annars óskar
Monitor ykkur alls hins besta. jrj
Simmi Vill
Stundum oska
eg tess ad eg
se jafn gafadur
og sumir halda
ad teir seu!
5. september kl. 15:38
Bubbi Mort-
hens Haustið
er æska
vetrarins.
6. september
kl. 22:01
Vikan á...
Berndsen &
The Young
Boys Bubbi
verður með okk-
ur á Airwaves
í Úlfapels, þetta verður one
time thing. Fæ ég like á það
eða hvað!!!!
7. september kl. 12:49
„Við höfðum séð frá eins göngum í Noregi og
Danmörku sem krakkar þar hafa haldið og sem
sagt tekið upp svipmyndir frá þeim á myndband
og tekið ljósmyndir sem þeir klipptu svo flott
myndband úr. Myndbandið sendu þau síðan til
Justin Bieber á Twitter og hann sá það þar og
okkur skilst að hann hafi síðan komið til þessara
landa eftir að hann sá þessi myndbönd,“ segir
Aníta Rós sem er ein af stelpuhópnum sem
stendur fyrir Bieber Parade á Íslandi sem fram fer
á laugardaginn. Þær hyggjast leika sama leik og
krakkarnir í Skandinavíu, en hvernig varð þessi
hópur sem stendur fyrir göngunni til? „Ein af
stelpunum er vinkona mín frá fyrri tíð en þessi
hópur varð til þegar ein stelpan stofnaði hóp á
Facebook fyrir Bieber-aðdáendur og í kjölfarið
kynntumst við allar stelpurnar í hópnum.“ Hún
segist hafa fylgst með uppáhaldinu í þónokkurn
tíma. „Ég og vinkona mín fundum Justin Bieber á
YouTube áður en hann varð frægur en við byrjuð-
um að fylgjast meira með honum einmitt þegar
hann byrjaði að vera svona rosalega frægur.“
Bieber í Höllina, herinn burt!
Byrjað var að auglýsa gönguna fyrir þónokkru
síðan og þegar þetta er ritað hafa um 3.300
manns gefið til kynna að þeir hyggist mæta.
„Gangan fer þannig fram að við ætlum að byrja á
Hlemmi og labba þaðan niður á Ingólfstorg. Allir
eru hvattir til að mæta í einhverju fjólubláu, af
því að það er uppáhaldsliturinn hans Justin, eða í
einhverjum öðrum Justin Bieber-fatnaði, og helst
með skilti eins og í kröfugöngum. Að sama skapi
hvetjum við alla til að koma með myndavélar til
að auðvelda okkur að búa til myndbandið sem
verður sent til Justin,“ segir hún og bætir við að
stemningin fyrir göngunni sé góð. „Við vonum
bara að sem flestir mæti. Það eru náttúrlega
margir búnir að segjast ætla að mæta á Facebook
en eru bara að grínast með þetta. Við þekkjum
samt alveg mikið af stelpum sem ætla að koma,
reyndar stráka líka, og að sjálfsögðu eru allir
velkomnir.“ En ef Justin Bieber kæmi loks til
landsins og tæki kærustu sína með, hana Selena
Gomez, myndu þær sem standa fyrir göngunni
taka henni opnum örmum? „Já, hún er samt
svolítið umdeild, bæði innan hópsins og almennt
á meðal Bieber-aðdáenda. Það eru flestir sáttir við
hana, því Justin er hamingjusamur með henni,
en það eru nokkrir sem gjörsamlega þola hana
ekki.“
Hópur ungra stelpna stendur fyrir göngu um helgina niðri í miðbæ í því skyni
að hvetja Justin Bieber til að koma til landsins og halda tónleika á Íslandi.
Aníta Rós Þorsteinsdóttir sagði Monitor nánar frá þessari hressu kröfugöngu.
Ganga alla leið
EINA BIEBER-VARNINGINN SEM ÞÆR
VANTAR ERU MIÐAR Á TÓNLEIKA
Vala Grand
Wow hvad
kennarinn minn
er fallegur gam-
an ad fylgjast
med hann uppá töplu skrifa
eitthvad (nice background)
ahahahahahaha
7. september kl. 10:53
6
Gengið verður af stað kl. 16:00 á laugardaginn.
fyrir Bieber
Mynd/Ernir
LOVÍSA, ANÍTA, ÞÓRA OG AUÐUR,
Á MYNDINA VANTAR GUÐRÚNU
Björn Bragi
Arnarsson
Ísland er með
100% sigur-
hlutfall og hefur
ekki fengið á sig mark með
Hannes Þór Halldórsson á
milli stanganna. Alltof flottur í
kvöld. He ain’t heavy, he’s my
brother! 6. september kl. 20:53