Monitor - 08.09.2011, Blaðsíða 18
18 Monitor FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011
LITRÍKI
VANILLUÍSINN
Í upphafi tíunda áratugarins braust fram tónlistarmaður sem
olli vissum straumhvörfum í rappi. Monitor rifjaði upp sögu
rapparans Vanilla Ice og rannsakaði hvað hann fæst við í dag.
Fyrir rúmum tuttugu árum braust fram tónlistarmaður
sem í augum margra var viss brautryðjandi í rappi en er
í dag álitinn af mörgum svokallað „eins smells undur“.
Hann er titlaður sem fyrsti frægi hvíti rapparinn og átti
fyrsta rapplagið sem komst á topp Billboard-listans, Ice
Ice Baby.
Uppnefndur vegna hörundslitarins
Vanilla Ice fæddist í Dallas, Texas árið 1967. Hann
öðlaðist sviðsnafnið Vanilla Ice upphaflega frá félögum
sínum í breikdanshópi sem hann var meðlimur í á
unglingsárunum. Vanillu-skírskotunin var upphaflega
uppnefni þar sem hann var eini hvíti
meðlimur hópsins. Ásamt
því að dansa byrjaði
hann að „free-style“
rappa í einkasam-
kvæmum en vakti
fyrst athygli í þeirri
listgrein þegar hann
var manaður upp á
svið á skemmtistað
í Dallas. Hjólin á
tónlistarferli fóru
þá að snúast,
en þangað til
hafði hann
eytt meira
púðri í mótorkross með ágætisárangri. Breikdanshópur-
inn var nefndur V.I.P. eða Vanilla Ice Posse og varð hluti af
atriði rapparans. Í kjölfarið fékk rapparinn plötusamning
hjá lítilli útgáfu og gaf út smáskífu sem innihélt lagið
Ice Ice Baby á B-hliðinni. Það reyndist lagið sem kom
rapparanum á kortið. Sagan segir að eftir velgengni
lagsins hafi rappútgáfustórlax að nafni Suge Knight mætt
á hótelherbergi Vanilla Ice og hótað því að henda honum
af svölum herbergisins, sem var á fimmtándu hæð, ef
hann afsalaði ekki höfundarrétti lagsins í hendur Knight
sem hann og gerði.
Kvikmyndastjarna með skáldaða ævisögu
Smellurinn Ice Ice Baby var endurútgefinn á breið-
skífunni To the Extreme sem kom út árið 1990 og seldist
í um það bil fimmtán milljónum eintaka. Vanilla
Ice varð því ein heitasta poppstjarnan í heimi
stórstjarnanna. Hann túraði um heiminn,
skartaði flottustu hárgreiðslunni, rakaði
línur í augabrúnirnar sínar og var á listum
glanstímarita yfir fallegustu karlmenn heims.
Ef til vill náði hann hápunkti töffarans þegar
hann varð kærasti Madonnu til átta mánaða
en sjálfur hefur hann sagt að aðkoma hans
að bíómyndinni Teenage Mutant Ninja Turtles
2, þar sem hann söng aðallag myndarinnar og
lék í einu atriði, hafi verið eitt það svalasta sem
hann hefur gert. Kvikmyndaferill Vanilla náði þó
hápunkti og lágpunkti í senn þegar myndin Cool
as Ice var framleidd með hann í aðalhlutverki.
Til að gera langa sögu stutta er myndin með 8%
í einkunn á Rotten Tomatoes og rapparinn hlaut
Hindberjaverðlaun fyrir vikið. Um tíma var Van-
illa Ice orðinn slík peningamaskína að plötu-
fyrirtækið lét skrifa skáldaða ævisögu með
dramatískum endurminningum sem
þeir hugðust gefa út gegn vilja hans,
einfaldlega til að þéna peninga.
Frægðarsólin lækkar
Það reyndist Vanilla Ice
þrautin þyngri að viðhalda
vinsældum sínum en önnur
plata hans, tónleikaplatan
Extremely Live, hlaut hroðalega dóma þótt hún hafi selst
ágætlega. Sjálfur hefur rapparinn sagt að hann hafi átt
í stríði við plötufyrirtækið sem reyndi að skapa honum
ákveðna ímynd sem honum líkaði ekki. Vegna þessa
stríðs fór hann að missa einbeitinguna og heillaðist af
rastafari-trúarbrögðunum og kannabisreykingum. Þótt
hann hafi gefið út aðra hljóðversplötu fékk hún litlar
viðtökur og frægðarsól hans tók að lækka. Hann dróst út í
harðari dópneyslu og brotlenti harkalega árið 1994 þegar
reyndi að taka eigið líf.
Bölsýnisspádómurinn um Bieber
Næstu ár Vanilla Ice fóru í það að ná áttum eftir sjálfs-
vígstilraunina og tók hann sér því pásu frá tónlistinni
og einbeitti sér að mótorkrossi og „jet ski“-íþróttinni. Í
seinni tíð sneri hann aftur og hefur gefið út plötur með
dekkri rapptónlist sem minnir um margt á grunge-rokk
en nýjasta og sjötta hljóðversplata hans kom út fyrr á
þessu ári. Hann hefur einnig verið duglegur í raunveru-
leikasjónvarpi, svo sem þáttunum The Vanilla Ice Project
þar sem goðið útbrunna gerir upp gömul hús en þættirn-
ir eru enn í framleiðslu. Á næsta ári kemur út kvikmynd
ÍSINN MEÐ EITRAÐAR
AUGABRÚNIR
Hafðu það aðeins betra
Námsmönnum í Námsvild bjóðast námsstyrkir,
bókastyrkir, fríar debetkortafærslur og margt fleira.
Handhöfum stúdentakortsins bjóðast einnig ýmis
sértilboð og afslættir svo þeir hafi það aðeins betra.
Kynntu þér Námsvild í næsta útibúi
eða á www.isb.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
1
1
-
0
8
3
9