Monitor - 08.09.2011, Page 8
VINSÆLAST
Latex leggins með
blúndu. Þær eru í raun
eins og stuttbuxur að
ofan. Þessar buxur
eru búnar að vera
lang vinsælastar hjá
mér hér heim og úti
í Noregi.
8 Monitor FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011
stíllinn
Edda Bóasdóttir hefur hannað föt síðan hún
var tólf ára en þá saumaði hún föt á vinkonur
sínar fyrir skólaböllin. Síðan þá hefur verið mik-
ið með puttana í hönnun
og fatagerð og vann meðal
annars í London fyrir hið
þekkta fatamerki DKNY.
Fyrir einu og hálfu ári flutti hún til Noregs og
hefur verið að vinna að nýju fatalínunni sinni
síðan þá.
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum í fimm
orðum? Mitt á milli rokks & glamúrs
Hvar sækir þú innblásturinn fyrir þína hönn-
un? Innblásturinn kemur ótrúlega mikið heima
hjá mér og í hausnum á mér. Ég er kannski að
hanna eina flík og þá fæðast hugmyndir að fleiri
flíkum.
Hversu mörg skópör átt þú? Ég held ég muni
aldrei leggja í það að telja þá. Ég á einhverja tugi
af skóm enda er þetta einhvers konar árátta hjá
mér.
Hvaða snyrtivöru gætir þú ekki
verið án? Sjampó og hárnæring
er eitthvað sem ég get ekki verið án. Það þarf
ekkert að vera neitt sérstakt merki en það þarf
að lykta vel.
Ef þú yrðir að fá þér tattú í dag, hvað myndir þú
fá þér og hvar? Ég er komin með nokkuð mörg
en ætli ég myndi ekki klára bakið á mér.
Ef þú myndir fá 3 milljónir fyrir að búa til
leðurbuxur en þyrftir sjálf að drepa krókódíl til
að útvega efni í flíka myndir þú gera það? Nei,
ég væri nefnilega ekki tilbúin að fórna krókód-
ílnum.
Edda Bóasdóttir er þrítugur hönnuður sem er
búsett í Osló. Hún mun sýna nýju línuna sína
á Iceland Fashion Week í kvöld. Stíllinn fékk
að kíkja á nokkrar glænýjar flíkur.
fatahönnuðurinn
SKVÍSUBOLUR
Þetta er svartur kjóll úr glans-teyju-
efni með hlébarðaborða í miðju.
Algjör skvísubolur.
Ekki tilbúin að
fórna krókódíl
PÆJUKJÓLL
Þetta er vængjakjóll með
glansefni og gegnsæju
snákaefni. Smá rokk og ról.
JAKKINN
Þessi stutti jakki er úr loðefni og á
honum er smá glansefni. Hann er
fjólublár og hægt er að setja
þumla í gat á erminni.
Hann hentar við
mörg tilefni.
Á KÖGUR STUNDU
Hér er síður hálfgegnsær bolur
með kögri í hálsmáli. Hann passar
mjög vel við leggingsbuxurnar í
nýju línunni minni.
MYNDALEGGINGS
Leggingsbuxur úr glansefni
með myndum á af Mono Lisu
og fleiru. Þær eru úr svörtu
Jersey efni.
VÆNGIRNIR
Þetta eru ermavængir með pallíettum.
Þessar ermar eru tilvaldar yfir kjóla.
SNÁKA-
LEGGINGS
Leggingsbuxur úr
latexi og gegnsæu
snákaefni. Þessar
eru flottar við stutta
boli eða kjóla.
Myndir/Golli