Monitor - 08.09.2011, Page 10
10 Monitor FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011
Þú varst að vinna á Fabrikkunni. Ertu hætt þar? Ég er lærður þjónn
og vann sem slík frá því ég var 17 ára svo það var fínt að breyta
aðeins til. Mér finnst gott að vinna á daginn í World Class með
fyrirsætustörfunum.
Hvenær byrjaðir þú í fyrirsætustörfum? Ég byrjaði sem fyrirsæta
þegar ég var 12 ára en mín fyrsta tískusýning var þegar ég var 13 ára
þegar ég sýndi fermingartískuna fyrir Gallerí Sautján í Kringlunni.
Hefur þú fengið mörg verkefni síðan þá? Já, ég hef verið heppin með
það að ég hef fengið ýmis skemmtileg störf í hendurnar. Ég fór til
dæmis til Karabíska hafsins í fyrra og vann þar í heilan mánuð við
fyrirsætustörf hjá þekktum hönnuði. Svo er þetta annað árið í röð
sem ég tek þátt í Iceland Fashion Week.
Hvernig var upplifunin þegar þú tókst þátt í fyrra? Vá, þetta var
svo skemmtilegt. Ég var að sýna fyrir Steinunni Ketilsdóttur á fyrstu
sýningunni og hópurinn var svo góður. Við vorum allar brosandi og
stemningin var geðveik. Annan daginn var ég svo að sýna flíkur frá
Pola frá Mexíkó eða „Mehíkó“. Á þriðja kvöldinu sýndum við svo fyrir
Catalin Botazatu frá Rúmeníu en hún er einmitt að koma aftur í ár.
Hvert stefnir þú? Draumurinn er að fara út á næsta ári og reyna fyrir
mér hjá stóru merkjunum í Mílanó á Ítalíu, Armani, Dolce&Gabbana
og öllum þeim.
Eitthvað að lokum? Ég er mjög spennt fyrir Iceland Fashion Week og
við ætlum að toppa síðasta ár.
ICELAND FASHION WEEK
CLEOPETRA
Fyrstu sex: 181289
Nafn: Tinna Cleopetra Jónsdóttir
Starf: World Class og fyrirsætustörf
SANDRA
Fyrstu sex: 160486
Nafn: Sandra Sigurjónsdóttir
Starf: Hárgreiðslunemi
Iceland Fashion Week verður haldin um helgina.
Meðal þeirra sem verða í eldlínunni eru þær Sandra
Sigurjónsdóttir og Tinna Cleopetra Jónsdóttir þegar
þær taka þátt í tískusýningu á Spot í kvöld.
Ætlum að
toppa síðasta ár
Hvað er að gerast um helgina? Á morgun hefst Iceland Fashion
Week. Ég er að fara að taka þátt í tískusýningu sem fer fram á Spot
í Kópavogi. Þar munum við sýna föt sem Edda Bóasdóttir hefur
hannað. Ég er mjög spennt.
Eru ekki erlendar fyrirsætur á leiðinni? Jú, 14 rúmenskar fyrirsætur
eru að koma til landsins. Þær eru að taka þátt í Rumanian Next Top
Model-þáttunum úti. Það verður gaman að fá að sýna með þeim.
Ætlar þú að reyna að eignast rúmenska pennavinkonu? Já, það er
mín heitasta ósk.
Ertu mikið í fyrirsætustörfum? Já, það koma verkefni af og til. Ég
reyni að taka þátt í því sem mér finnst spennandi. Ég hef mjög gaman
af þessu.
Er ekki toppurinn að fá að taka þátt í Iceland Fashion Week? Þetta
er rosalega flott og það er liggur við rifist um að fá að taka þátt í
þessu. Fyrir íslenska tískumarkaðinn þá er þetta mjög stór viðburður.
Hvernig líkar þér í hárgreiðslunni? Mér líkar rosalega vel. Ég er að
útskrifast um jólin. Þetta er búið að vera langt nám en skemmtilegt.
Mig langar einmitt að reyna að vera að greiða stelpunum á Iceland
Fashion Week á næsta ári.
Hvað er skemmtilegast í hárinu? Er það strípur eða permanent? Það
er skemmtilegast að greiða fyrir sýningar og myndatökur. Það er svo
mikil vinna að setja permanent, mikil þolinmæðisvinna. Það getur
verið þreytandi að setja allar þessar litlu rúllur í hárið svo maður þarf
að vera mjög þolinmóður.
Ertu búin að æfa einhverja „pósu“ sem þú ætlar að nota á tísku-
pallinum? Ætli ég reyni ekki bara að detta með stæl (hlær).
Á pallinn með
rúmenskum
ofurfyrirsætum
M
yn
di
r/
G
ol
li