Monitor - 08.09.2011, Blaðsíða 17
17FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011 Monitor
LÍKLEGASTIR
TIL SLÁTRUNAR
Sumir Hollywood-leikarar hafa
oftar dáið í kvikmyndum en
aðrir. Hér eru nokkrir sem eru
líklegir til að leika persónur
sem láta lífið.
John Travolta (6 sinnum)
Bruce Willis (5 sinnum)
Gary Oldman (5 sinnum)
Sean Bean (5 sinnum)
Christopher Lee (4 sinnum)
Boromir
(Sean Bean)
Kvikmynd: The Fellowship Of The Ring (2001)
Dauðdagi: Þrjár örvar
Forystuorki hitti Boromir með ör
sinni í bringuna en það dugði ekki
til. Boromir lét fyrstu örina ekki á
sig fá og drap nokkra orka í viðbót
áður en annarri ör var skotið í brjóst
hans. Í þetta skiptið féll hann á kné
en ákvað þó að berjast áfram. Þriðja
örin gerði svo útslagið og Boromir
lést í örmum
Aragorn sem
hann viður-
kenndi loks
að væri hinn
sanni kon-
ungur í einum
dramatískasta
dauðdaga
kvikmyndasög-
unnar. ALLT ER ÞEGAR
ÞRENNT ER
Tony Montana
(Al Pacino)
Kvikmynd: Scarface (1983)
Dauðdagi: Skotinn í spað
Glæpaforinginn Tony Montana
bjóst svo sem við að útsendarar
Alejandro Sosa væru á leiðinni en
ákvað þó að fá sér vel af vafasöm-
um efnum fyrir komu þeirra. Þar af
leiðandi var hann í ruglinu þegar
morðingjarnir mættu á svæðið og hagaði sér eins og
óður maður er hann fékk hverja byssukúluna á fætur
annarri í sig.
Múfasa
(James Earl Jones)
Kvikmynd: Lion King (1994).
Dauðdagi: Troðinn undir
Það eina sem
Skari þráir er að
verða konungur
og hann er
tilbúinn að gera
allt til að ná því
markmiði sínu,
meira að segja
drepa sinn eigin
bróður. Atriðið
þar sem Skari
svíkur Múfasa og
lætur hann falla niður í hjörðina
situr í öllum sem hafa séð það, bæði
börnum og fullorðnum.
Lawrence
(Antonio David Lyons)
Kvikmynd: American History X (1998)
Dauðdagi: Gangstéttarbrún
Eitt hrottalegasta morð kvik-
myndasögunnar er án efa þegar
nýnasistinn Derek Vinyard ákveður
að refsa þjófinum Lawrence, lætur
hann bíta í gangstéttarbrún og
sparkar því næst í höfuð hans. Ekki
er við hæfi að lýsa þessum ógeð-
fellda dauðdaga nánar og verða forvitnir lesendur því
að horfa á myndina ef þeir treysta sér til.
Bill
(David Carradine)
Kvikmynd: Kill Bill: Volume 2 (2004)
Dauðdagi: Fimm punkta hjartsprengjandi lófatækni
Huldupersónan Bill birtist loks í
seinni myndinni um hefndaræði
Kiddo og hún ætlar sér að sjálf-
sögðu að myrða hann. Kiddo notar
sérstaka tækni sem hún lærði hjá
sameiginlegum sensei hennar og
Bill til að lífláta hann. Skrefin fimm að dauðanum eru
dramatísk og dauðdagi Bill því með þeim frumlegri.
BILL: „ÞÚ KOMST VIÐ
HJARTAÐ Í MÉR“
KÓKAÍNÆVINTÝRI TONY
HLAUT AÐ ENDA ILLA
BRÆÐUR MUNU BERJAST
ÞESSI MYND ER EKKI
FYRIR VIÐKVÆMA