Monitor - 20.04.2011, Blaðsíða 12

Monitor - 20.04.2011, Blaðsíða 12
12 Monitor MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2011 Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@monitor.is stíllinn Þessi fjólublái Marc Jacobs kjóll hefur gripið athygli Önnu og Önnu. Hárgreiðslan hjá Anne Hathaway er mjög flott og hún er sæt í kjólnum. Hins vegar er hún búin að stytta sinn kjól eitthvað og hann kominn fyrir ofan hné. Fyrir vikið verður kjóllinn meira blöðrulegur og ekki eins fallegur í laginu. Anna Paquin er í fallegri skóm og tekur sig mun betur út í kjólnum. Söng- og leikkonan Ashley Tisdale og Leona Lewis sem syngur um brostin hjörtu deila hérna pallíettukjól. Það verður að segjast að kjóllinn fer líkamsbyggingu Ashley betur en hún er í vægast sagt ljótum skóm. Leona hefði mátt sleppa armböndunum þar sem kjóllinn er svo ýktur að það þarf ekki svo marga fylgihluti. Þær eru í raun hvorugar að slá í gegn. Það er sorglegt að sjá andlitið á Courteney Cox a.k.a. Monicu úr Friends. Sú er búin að láta sprauta allsvakalega í sig. Hún mun þó alltaf eiga hjartastað hjá okkur, brjáluðum Friends- aðdáendunum. Hérna er hún í sama Marc Jacobs kjól og Anne Hathaway. Þær eru ótrú- lega svipaðar í kjólnum fyrir utan hálsmenið hennar Cox, sem gerir mikið fyrir hana. Leikkonan Lauren Conrad er sæt í þessum krúttlega tvílita kjól og skórnir hennar, opnir í tána, smellpassa við kjólinn. Hárið er dregið til hliðar í laust tagl og fer það henni vel. Kardashian-systirin Khloe er sæt og fín en svolítið budduleg í honum og skórnir hennar eru síðri. Lauren er sigurvegari í Stjörnustríði að þessu sinni. Stjörnustríð Þó að veðrið virðist vera að rugla með mann þessa dagana er ekkert annað í stöðunni en setja sig í stellingar fyrir sumarið. Stíllinn mælir með hinu og þessu sem er heitt um þessar mundir og möst að eiga fyrir sumarið. HEITAST FLOTTAST& FRIIS & COMPANY SKÓR 24.990 ÞESSIR MINNA SVOLÍTIÐ Á FLOTTU ACNE SKÓNA TOPSHOP ARMBAND MEÐ GÖDDUM 4.990 ARMBAND 4.490 EYRNALOKKAR 2.990 DJARFT OG FALLEGT SKART ER NAUÐSYNLEGT MAKE UP STORE AUGNSKUGGI 3.290 FERSKJULITIR OG FJÓLUBLÁR VERÐA MIKIÐ Í SUMAR HÁRNÝ HÁRGREIÐSLUSTOFA SILKIPERLUR LÍTILL (15 STK.) 2.780 STÓR (50 STK.) 6.240 ÞESSAR PERLUR GERA HÁRIÐ ÞITT BÓKSTAFLEGA AÐ SILKI. ALGJÖRT MÖST AÐ EIGA! SAUTJÁN SOKKABUXUR 2.990 ÞESSAR URÐU SVO VINSÆLAR AÐ ÞÆR SELDUST UPP. EN EKKI ÖRVÆNTA, ÞÆR KOMA AFTUR! – FYLGSTU ÞVÍ MEÐ COBRA SOKKABUXUR 2.390 ÞESSAR ERU ÞYKKAR OG FÍNAR OG PASSA VIÐ HVAÐ SEM ER FRIIS & COMPANY BUXUR 9.990 SVONA SKRÆPÓTTAR BUXUR ERU EIGINLEGA ÓMISSANDI Í FATASKÁPINN – EKTA SVONA „HENDINGUR“ TOPSHOP SOKKAR 999 ÞAÐ ER FALLEGT AÐ VERA Í SÆTUM SOKKUM Í HÆLASKÓM FRIIS & COMPANY BOLUR 14.990 FLAUELSHÁLSMEN 7.490 ÞESSI FLOTTI BOLUR ER SÍÐUR, VÍÐUR OG ÓTRÚLEGA ÞÆGILEGUR! HÁLSMENIÐ KRYDDAR UPP Á HVAÐA FLÍK SEM ER LYFJA RAKAGEFANDI MEIK 6.021 ÞYKKUR VARASALVALITUR 4.013 BAUGAFELARI 4.034 HÉR ER UM AÐ RÆÐA UNDRA–BAUGAFELARA. NÝI VARASALVINN FRÁ CLINIQUE FÆST MEÐ ALLSKONAR LITUM. VIRKILEGA MJÚKUR OG GÓÐUR. MEIKIÐ ER ÞEKJANDI OG GEFUR HÚÐINNI GÓÐAN RAKA Í LEIÐINNI MAKE UP STORE STEINEFNAPÚÐUR 7.690 PÚÐRIÐ FRÁ MAKE UP STORE ER LÉTT OG AÐLAGAST HÚÐINNI -ALGJÖR SNILLD SAUTJÁN SKÓR 14.990 SÆTIR OG ÞÆGILEGIR SUMARSKÓR SAUTJÁN SÓLGLERAUGU 1.990 HIPPALEG OG TÖFF SÓLGLERAUGU FYRIR SUMARIÐ MAKE UP STORE NAGLALAKK 2.690 GRÆNA LAKKIÐ HEFUR ROKIÐ ÚT EINS OG HEITAR LUMMUR. FERSKJULITURINN ER LÍKA AÐ KOMA STERKUR INN

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.