Morgunblaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 10
HREYFING OG ÚTIVIST MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010 10 Daglegt líf Fjölmennur Ekki voru nema 5-10 að hlaupa saman fyrir 15 árum, en nú eru 50-60 manns í hlaupahópnum yfir sumartímann. Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Hlaupahópurinn á Sauð-árkróki á sér 15 ára sögu,þótt ekki hafi hann veriðfjölmennur í fyrstu. „Við vorum nokkrir kleyfhugar sem hlup- um reglulega á þessum tíma,“ segir Árni og kveður ekki marga hafa stundað hlaup á Króknum um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. „Smám saman smitaði þetta þó út frá sér til maka og vinnufélaga.“ Frá 1995 hef- ur hópurinn vaxið úr því að geyma 5- 10 félaga upp í núverandi fjölda. Árni sjálfur hefur stundað hlaup reglulega frá 1988 er hann hætti í fót- boltanum. „Ég hef eiginlega aldrei stoppað,“ segir hann. Góður andi er í hlaupahópnum og hafa sumir verið með frá upphafi. „Það eru þó nokkrir sem hafa haldið við mig tryggð og eiginlega líka þol- inmæði.“ Hlupu bara milli ljósastaura Í hlaupahópnum er að finna fólk á öllum aldri og í misgóðu hlaupa- formi. „Flestir af þeim sem eru að hlaupa hvað lengst í dag hlupu bara á milli ljósastaura fyrst í stað,“ segir Árni og kveður gaman að fylgjast með þeim framförum sem fólk tekur. „Það er það sem heldur manni í þessu.“ Elsti meðlimur hlaupahóps- ins er á sjötugsaldri en þeir yngstu í kringum tvítugt. Á hverju sumri bæt- ast svo nýliðar í raðir hlauparanna. Fjölbreytt úrval hlaupaleiða er út úr Sauðárkróki og hleypur fólk frá fimm og upp í 30 km leiðir. „Við höf- um Molduxa, en svo heitir fjallið fyrir ofan okkur og þar eru fínir kinda- slóðar og manngerðar leiðir. Síðan höfum við fjöruna, Hegranesið, Tindastól og Reykjaströnd, auk þess sem við höfum líka verið að hlaupa gamlar þjóðleiðir hér í Skagafirð- inum.“ Þó nokkur hluti hópsins hefur hlaupið maraþon, bæði hér heima og erlendis, og hafa m.a. farið hópar frá Króknum og hlaupið í Barcelona, Búdapest, Amsterdam og New York. „Nokkrir úr hópnum stefna á Berlínarmaraþonið í haust.“ Sauð- krækingar virðast annars vera óvenjuduglegir við að hlaupa mara- þon. „Á Sauðárkróki eru um 30 manns sem hafa hlaupið maraþon, sem er ríflega 1% bæjarbúa. Það hugsa ég að sé einsdæmi,“ segir Árni Yfir 1% íbúa hefur hlaupið maraþon Á Sauðárkróki hlaupa á milli 50 og 60 manns saman á sumrin undir stjórn Árna Stefánssonar íþróttakennara í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki. Áhugamenn um hjólreiðar verða ekki sviknir af heimsókn á vefinn Hjól- reiðafréttir eða cyclingnews.com. Á þessum breska vef er nánast hægt að finna allt milli himins og jarðar um hjólreiðar, s.s. fréttir af úrslitum í hjólreiðakeppnum, ráðgjöf um æfing- ar, dóma um reiðhjól og reið- hjólafatnað, myndbönd af keppnum o.s.frv. Efst á forsíðunni er hægt að velja á milli fjögurra flokka: Götuhjólreiða, fjallahjólreiða, hjólreiða á braut (sem margir kannast við úr sjónvarpinu en keppni fer oftast fram innandyra) og loks Cyclo-cross. Síðastnefndi flokk- urinn er lítt þekktur á Íslandi og í gær fannst ekki greinargóð íslensk þýð- ing á þessari keppnisgrein. Í stuttu máli sagt þá fer keppni í Cyclo-cross fram á einskonar þrautabraut og þurfa keppendur m.a. að stíga af hjól- um sínum og lyfta þeim yfir hindr- anir. Undirlagið getur verið af ýmsu tagi, s.s. skógarstígar, malbik, möl, gras og svo framvegis. Undir liðnum þrek eða „fitness“ má finna spurningar lesenda og svör sérfræðinga við þeim. Hinn 14. apríl spurði einn, að gefnu tilefni, hvort og hvernig mætti komast hjá viðbeins- broti við fall. Svarið er áhugavert. www.cyclingnews.com Detta Hægt er að draga úr líkum á viðbeinsbroti, sjá undir Q&A. Allt um hjólreiðar og meira til Keppni í Kópavogsþríþrautinni hefst við Kópavogslaug á sunnudag klukkan 9.30. Um er að ræða svokallaða sprett- þraut, þ.e. keppendur þurfa að synda 400 metra, hjóla 10 km og hlaupa 2,5 kílómetra. Þeir sem hafa áhuga á að prófa þrí- þraut í fyrsta skipti ættu að hafa þessa keppni í huga, það er nefnilega fleira þríþraut en Járnkallinn. Áhorfendum er bent á að það gæti verið forvitnilegt að fylgjast með keppendum á skiptisvæðinu á Rútstúni þegar þeir skipta úr sundfötum yfir í hjólagallann. Þá eru oft læti. Kópavogsþríþrautin á sunnudagsmorgun Sprettþraut góð fyrir byrjendur Morgunblaðið/Golli Sprettur Miklu skiptir að vera fljótur að skipta. Nánast er fullbókað í Útivistarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar í sumar. Allt er fullt á byrjenda- námskeiðum en nokkur pláss eru laus á framhaldsnámskeið. Brynjar Ásmundsson, einn af um- sjónarmönnum Útivistarskólans, seg- ir að langflestir nemendur starfi með unglingadeildum björgunarsveit- anna. Fyrir nokkru veitti Slysavarna- deild kvenna í Reykjavík skólanum myndarlegan styrk sem er notaður til að greiða niður skólagjöld fyrir þá unglinga sem starfa innan björg- unarsveitanna. Með niðurgreiðslunni kostar fimm daga námskeið á Gufu- skálum á Snæfellsnesi aðeins 17.500 krónur. Í skólanum er m.a. kennd röt- un og ferðamennska og nemendur fá bæði að klifra upp kletta og síga nið- ur. Áhugasöm ungmenni Fullbókað í úti- vistarskólann Viltu heyra meira? G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | S í m i : 5 6 8 6 8 8 0 | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | w w w . h e y r n a r t æ k n i . i s Agil hafa tæknilega sérstöðu umfram önnur heyrnartæki. Í þeim er byltingarkennd örflaga með helmingi hraðari vinnslu en áður hefur þekkst. Agil búa yfir nýrri kynslóð af þráðlausri tækni sem gerir tveim heyrnartækjum kleift að vinna sem eitt og hægt er að tengja þau þráðlaust við aðra hljóðgjafa. Agil er hægt að fá í „mini“ útgáfu sem eru helmingi minni en hefðbundin bak við eyra heyrnartæki og eru einföld og þægileg í notkun. Að heyra vel í umhverfishávaða og klið reynist sumum erfitt og margir heyrnartækjanotendur upplifa það að þurfa að leggja við hlustir til að heyra betur. Agil eru nýjustu heyrnartækin frá Oticon sem voru hönnuð með það í huga að bæta talgreiningu við allar aðstæður og draga þannig úr hlustunarþreytu. Pantaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 og prófaðu Agil Njóttu orkunnar sem fylgir því að heyra betur!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.