Morgunblaðið - 11.05.2010, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.05.2010, Qupperneq 16
‹ SKATTALAGABROT › 81% sekta fyrir skattalagabrot sem voru hærri en 8 milljónir á ár- unum 2000-2006 voru gerð upp með samfélagsþjónustu 44 einstaklingar voru dæmdir til að greiða sekt á tímabilinu júlí 2008 til mars 2010 þar sem sektir voru 9 milljónir króna eða hærri 8,2 mánuðir var meðalbiðtími á boð- unarlista Fangelsismálastofn- unar í fyrra, en hann var 3,7 mánuðir árið 2005 fimmtán dómþolar höfðu um áramót beðið lengur en þrjú ár eftir að hefja afplánun Eru dæmdir í sekt en borga ekki neitt FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is S veinn Arason ríkisendur- skoðandi segir að stjórn- völd þurfi að skoða hvort dómstólar eigi ekki að ákveða hvort menn megi taka út refsingu í samfélagsþjón- ustu, en í dag er það fangelsiskerfið sem ákveður hvort menn fá að taka út refsingu í samfélagsþjónustu. Þeir sem dæmdir eru til sekt- argreiðslu, t.d. vegna skattsvika, taka flestir út sína refsingu í sam- félagsþjónustu. Að mati Ríkisendurskoðunar er hætta á því að fullnusta refsinga hér á landi sé um of farin að ráðast af aðstöðu eða aðstöðuleysi Fangelsis- málastofnunar, í stað alvarleika brota og þeirra varnaðaráhrifa sem refsingum er ætlað að hafa. Undanfarið hefur verið rætt mikið um nauðsyn þess að styrkja rannsóknir sérstaks saksóknara á efnahagsbrotum og sömuleiðis rannsóknir skattayfirvalda á skatta- lagabrotum. Stjórnvöld eru að setja mikla fjármuni í þessi verkefni. Margir hafa bent á að styrkja þurfi dómstólana til að takast á við fjölg- un mála, ekki síst þar sem þetta séu flókin og erfið mál. Það liggur jafn- framt fyrir að fangelsiskerfið ræður ekki við fjölgun fanga. Samkvæmt íslenskum lögum eru refsingar tvenns konar: fésekt og fangelsi. Geti maður sem dæmd- ur er til sektar ekki greitt hana þarf hann að afplána svokallaða vara- refsingu í formi fangelsisvistar. Málið er hins vegar ekki svona ein- falt vegna þess að undanfarin ár hefur þróunin orðið sú að vararefs- ing hárra sekta vegna svokallaðra hvítflibbabrota er nær ávallt af- plánuð með samfélagsþjónustu. Fá ekki nægar upplýsingar Það er langalgengast að þeir sem dæmdir eru í sekt greiði hana ekki. Þetta kemur fram í þeim út- tektum sem Ríkisendurskoðun hef- ur gert á þessum málum. Menn komast því upp með að greiða ekki sektina, en ljúka samt ekki uppgjöri dómsins með því að fara í fangelsi. Sveinn Arason segir að það hafi verið ýmsir erfiðleikar á því að afla upplýsinga um eignir sem dæmdir menn hugsanlega eiga. Síðan sé ekki til húsnæði til að setja menn í fangelsi ef menn borga ekki og því hafi verið gripið til þess ráðs að heimila mönnum að taka refsingu út með samfélagsþjónustu. Ríkisendurskoðun bendir á að eitt meginmarkmið refsinga sé að koma í veg fyrir afbrot, svokölluð varnaðaráhrif. Til að efla varnaðar- áhrif refsinga við skattsvikum hafi Alþingi samþykkt árið 1995 lög sem m.a. leiddu til þess að sektir vegna slíkra brota hækkuðu verulega. Fjórum árum síðar samþykkti Al- þingi önnur lög sem m.a. veittu heimild til að breyta vararefsingu sekta úr fangelsi í svokallaða sam- félagsþjónustu. Ríkisendurskoðun bendir á að opnuð hafi verið leið til að breyta háum sektum í samfélags- þjónustu og þar með í raun að milda refsingar. Hugsanlegt sé að þetta hafi dregið úr þeim varnaðaráhrif- um sem hertum refsingum fyrir skattalagabrot var ætlað að hafa. Ríkisendurskoðun segir að sterkur grunur leiki á um að fyrir hafi komið að menn sem gátu greitt sekt hafi fengið að afplána hana með samfélagsþjónustu. Sveinn seg- ir að búa þurfi svo um hnútana að stjórnvöld geti aflað tæmandi upp- lýsinga um eignir viðkomandi. Slíkt úrræði sé ekki fyrir hendi í dag. Eins þurfi sá möguleiki að vera fyr- ir hendi að hægt sé að kyrrsetja eignir þegar málin eru í rannsókn. Slíkt úrræði hafi verið lögfest þegar grunur leikur á um skattalagabrot, en það komi til greina að beita því í fleiri málum. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Litla-Hraun Þó að þeir sem dæmdir eru til að greiða sekt eigi að fara í fang- elsi sé sektin ekki borguð er það almennt ekki tíðkað hér á landi. 16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tölt er sér-kenni ís-lenska hestsins. Þessi gangur er ein- stæður og tign- arlegur. Núver- andi ríkisstjórn hefur eins og þarfasti þjónninn sinn einkenn- isgang, vandræðaganginn. Hann er töluvert hastari en brokkið og iðulega álappalegur og hætt er við að hnjóta og fer gangurinn bikkjum fremur illa en vel, þótt þær geri sér sjálf- sagt ekki grein fyrir því sjálfar eða sé svo sem sama. Síðastlið- inn sunnudag skellti rík- isstjórnin sér á vandræðagang á „vinnufundi“ í Ráðherrabúa- staðnum. Hún var þar upp á sitt besta og hélt vandræða- ganginum alveg til enda, eins og svo oft áður. Fundurinn var haldinn til að gefa Samfylking- unni tækifæri til að berja á samráðherrum sínum í Vinstri grænum. Það þarf að breyta skipan ráðuneyta og er þá vís- að í stjórnarsáttmála. En það er ekki stjórnarsáttmálinn sem kallar á. Evrópusambandið kallar og það þarf að losna við Jón Bjarnason sem er ekki jafn hraðgengur til vandræða í svikum við kosningaloforð og stefnuskár VG eins og Stein- grímur J. Þingmönnum var sagt þegar þeir samþykktu að- ildarviðræður við ESB, sumir með svo mikið óbragð í munni að þeir sögðu opinberlega frá því að það væru eins konar könnunarviðræður. Ætlunin væri að athuga „hvað við gæt- um fengið“ í aðildarviðræðum við sambandið. Á daginn kom, sem allir vissu nema einfaldir og ekki síst þeir sem blekktu þá, að aðildarviðræður eru ekki könnunarviðræður. Þær eru viðræður rík- isstjórna sem gert hafa upp hug sinn um að ganga inn í ESB, lofast til að sjá um aðlögun þjóðar sinnar á meðan á viðræðunum stendur og ESB kemur á móti með fólk og fjármuni til að sjá um áróð- urinn gagnvart viðkomandi þjóð. „Vinnufundur“ ríkisstjórn- arinnar snerist um það að berja niður andstöðu innan hóps Vinstri grænna og sjá til þess að aðlögunarviðræður Samfylkingarinnar gætu haft sinn gang. Svo ótrúlegt sem það er hafa samfylkingarmenn iðulega krafist þess op- inberlega að einum ráðherra Vinstri grænna væri vikið úr ríkisstjórninni. Sök hans virð- ist einkum vera sú að hann á samleið með miklum meiri- hluta þjóðarinnar og hefur miklar efasemdir um að hags- munum Íslands sé best borgið innan Evrópusambandsins. Og við þá sök bætist að hann vill vera trúr samþykktum síns eigin flokks um sama efni, ótví- ræðum yfirlýsingum hans og kosningaloforðum. Tamn- ingamenn Samfylkingarinnar hafa reynt að koma á hann beislinu, svo megi brjóta hann niður svo hann tileinki sér hið samræmda göngulag rík- isstjórnarinnar, vandræða- ganginn. Sýni hann ekki fram- farir í þá átt krefst Samfylkingin þess að Jón verði leiddur inn í hið pólitíska stórgripasláturhús og þar verði gert út um málið. Ef Steingrímur J. trúir enn, nú í áttugasta sinn, hótunum Jó- hönnu um stjórnarslit, eru úr- slitin ráðin. „Vinnufundur“ til að reyna að gera út um vandræðamál rík- isstjórnarinnar} Samræma göngulag Útlit Morg-unblaðsins hefur tekið mikl- um breytingum í gegnum tíðina. Morgunblaðið er lítið fyrir byltingar og þess vegna eru skrefin sjaldnast stór. Aðalatriðið er að þau séu til bóta. Nú er verið að taka nokkur slík skref. Stutt er síð- an baksíða blaðsins fékk nýjan svip og áherslum var breytt í efnisflokknum Daglegu lífi. Í dag birtist lesendum breytt forsíða og bætt framseting á fréttasíðum blaðsins, sem á að auðvelda lesturinn og koma efninu betur til skila. Þær breytingar munu koma betur í ljós á næstu dögum. Önnur ánægjuleg breyting er kynnt í dag, tveir nýir skopmyndateiknarar, Helgi Sigurðsson og Kristinn Pálsson. Blaðið efndi á dög- unum til keppni um skopmynda- teiknara og var þátttakan mjög góð, enda eftir miklu að slægjast. Þar er ekki átt við verðlaunaféð, heldur miklu frekar það starf að vera skopmyndateiknari á Morg- unblaðinu. Það starf á sér merka sögu. Morgunblaðið fagnar því að hafa fengið til liðs við sig þessa tvo snjöllu teiknara, annan með mikla reynslu, hinn ungan og efnilegan. Báðir eru líklegir til að sýna lesendum brodda og broslegar hliðar. Skrefin sem Morgunblaðið stígur í dag eru því í senn til þess fallin að gera blaðið fróð- legra og skemmtilegra. Breyttar áherslur í útliti og nýir skop- myndateiknarar} Tvær ánægjulegar breytingar Þ að var athyglisvert að lesa viðtal við Úlf Eldjárn tónlistarmann í SunnudagsMogganum nýlega þar sem hann lýsti því hvernig þau úr- ræði sem búin hafa verið til vegna skuldavanda heimilanna henta ekki fyrir venju- legt meðaltekju- og láglaunafólk. Í máli hans kom fram að til að fá ákveðin úrræði þurfa þeir, sem hafa fjölskyldu á framfæri sínu, að stand- ast greiðslumat. Inn í það mat sé tekin fram- færsla fjölskyldu en viðmiðin séu svo há að venjuleg laun láglauna- eða meðaltekjufólks dugi ekki til að standast matið. Niðurstaða Úlfs er að úrræðin henti fyrst og fremst há- tekjufólki, sem hafi miklar skuldir á herðum sér. Í slíkum tilfellum geti verið um tugmilljóna niðurfellingar skulda að ræða. Viðtalið við Úlf er í takt við gremjuna sem kraumar undir niðri vegna þess hve greiðslu- erfiðleikaúrræðin eru fjarri því að vera fullnægjandi fyrir stóra hópa fólks. Einn þessara hópa eru þeir sem stigu varlega til jarðar í skuldsetningu sinni í góðærinu og keyptu sér húsnæði á t.a.m. 60% lánum, í stað 80 – 100% (sem ekki var óalgengt á meðan lánsfé virtist óþrjótandi í þjóðfélaginu). Þetta fólk hefur upplifað eins og aðrir að 60% lánin hafa vaxið til muna á meðan fasteignaverðið hef- ur hríðfallið. Eins og hjá öllum öðrum hefur greiðslubyrði aukist langt fram úr því sem nokkur maður vænti þegar lánin voru tekin. Niðurstaðan er að viðkomandi á lítið sem ekkert í húsnæðinu, þótt upphaflega hafi hann reitt fram 40% af verði þess úr eigin vasa. Gefist hann upp á yfirþyrmandi greiðslubyrðinni og selji eignina situr hann uppi með að tapa öllu sínu sparifé, sem lagt var í eignina í upphafi. Eins og Úlfur benti á í viðtalinu hefur ríkið gengið fram fyrir skjöldu með að tryggja að sparifjáreigendur yrðu ekki fyrir tapi við fall bankanna haustið 2008. M.ö.o. fá fjármagns- eigendur allt sitt, á meðan skuldararnir þurfa að standa skil á stökkbreyttum skuldum að fullu. Um leið fara skattar þeirra m.a. í að tryggja innistæður fjármagnseigendanna. Þetta fólk á erfitt með að finna sig í umræðu sem gengur út á að skuldavandinn felist fyrst og fremst í því að eignir dugi ekki fyrir skuld- um. Sannarlega gerir hann það líka, en ekki síður í því að stór hluti fólks ræður ekki við greiðslubyrði hóflegra lána og sér enga leið út úr þeim vanda aðra en að tapa öllu sínu. Og hverjir eru það sem standa í þeim sporum? Jú – ungt og miðaldra fjölskyldufólk, sem líkt og forfeður sínir gengu með þann draum í brjósti að skapa börnum sínum öruggt athvarf í lífinu, og keyptu húsnæði. Fyrir þetta fólk er ekki valkostur að selja eignina og tapa um leið öllu því, sem átti að vera grunnur að framtíð fjölskyldunnar. Í staðinn blasir við framtíð sem einkennist af botnlausu striti fyrir steypu í óljósri von um að það muni duga. Sú steypa á ekki bara við um veggina sem mynda húsaskjólið, heldur ekki síður fáránleika aðstæðnanna sem við blasa. Og slíkur fáránleiki er ekki boðlegur. ben@mbl.is Bergþóra Njála Guð- mundsdóttir Pistill Stritað fyrir steypu í framtíðinni STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon »

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.