Morgunblaðið - 11.05.2010, Side 28

Morgunblaðið - 11.05.2010, Side 28
 Hljómsveitirnar Króna, Báru- járn og Miri fagna sumrinu og vax- andi frjósemi með sérstöku hófi á Sódómu Reykjavík annað kvöld og ber teiti þessi yfirskriftina Upp- stinningar-partí. Í tilkynningu segir að þessar sveitir eigi frjósama mánuði í vændum, breiðskífur væntanlegar frá öllum þremur. Eftir tónleikana mun DJ Biggi Maus þeyta skífum af miklum eld- móði og hyggst ekki láta af þeim þeytingi fyrr en síðasti gesturinn dansar sig rænulausan. Húsið er opnað kl. 21 og kostar þúsundkall inn. Frjósemi fagnað með upp-stinningar-partíi Hljómsveitin er skírð í höfuðið á Þórði kakala Sighvatssyni sem var höfðingi af ætt Sturlunga á 13. öld. Hann tók þátt í einu sjó- orrustu Íslandssögunnar, Flóa- bardaga, og mannskæðasta bardaganum, Hauganesbar- daga. „Við vorum með lag sem hét Kakali. Lagið var ekki merki- legt en við ákváðum að nota nafnið,“ segir Káki. Hvers vegna? „Hann var svo mikill töffari,“ svarar hann og hlær. Kakali HVAÐAN KEMUR NAFNIÐ? 28 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010  Færeyski söngfuglinn og Ís- landsvinurinn Eivör Pálsdóttir hef- ur blásið til aukatónleika í Íslensku óperunni föstudaginn 28. maí. Miðasala á fyrri tónleika það kvöld hófst föstudaginn sl. og var orðið uppselt á þá tónleika í gær. Því var brugðið á það ráð að halda aðra tónleika sama kvöld, kl. 19. Tón- leikarnir sem seldist upp á verða hins vegar haldnir kl. 22 og því aukatónleikarnir fyrri tónleikar kvöldsins. Eivör mun fagna útgáfu nýrrar plötu á tónleikunum, Larva. Miðasala á tónleikana fer fram á Miði.is og öllum sölustöðum Miði.is. Aðeins 400 miðar eru í boði og ein- göngu er selt í númerið sæti. Eivör heldur auka- tónleika í Óperunni Fólk Evróvisjónnetútvarpsstöðin Eurorásin fór í loftið, eða netið, laugardaginn þarsíðasta. Evró- visjónáhugamaðurinn Gunnar Ásgeirsson gerir út rásina og það á eigin kostnað, greiðir stefgjöld og annað sem þarf að greiða í slíkum rekstri. Fyrir jól rak hann útvarpsstöðina Jólastjörnuna með félögum sínum en á henni voru eingöngu jólalög leikin. En hvað kom til að hann setti á laggirnar Eurorásina? „Í janúar sl. langaði mig að fara að bralla eitt- hvað, ég hef mikinn áhuga á útvarpi og sagði við fé- laga minn að við ættum að skella okkur í að gera Eurovision-útvarpsstöð,“ segir Gunnar. Félaginn hafði hins vegar öðrum hnöppum að hneppa og því varð úr að Gunnar sá um að koma stöðinni á kopp- inn. Söngkonan Íris Hólm hafði svo samband við Gunnar og vildi taka þátt í verkefninu, en hún er með kvöldþátt á stöðinni. Auk þess að leika Evr- óvisjónlög færa Gunnar og Íris hlustendum margs konar Evróvisjónfróðleik. Gunnar segist ætla að reka stöðina út maí, líklega ekki lengur, þar sem hann þarf að standa straum af kostnaði. „Ég nenni ekki að finna auglýsingar á þetta og þetta kostar náttúrlega stefgjöld,“ segir Gunnar, hann sé að gera þetta sér til gamans. „Íris er í þessu í sjálfboðavinnu og ég líka.“ Á Eurorásinni eru leikin öll helstu Evróvisjónlögin frá upphafi keppninnar, íslensk sem erlend. Gunnar segir lík- legt að hann endurtaki leikinn á næsta ári. helgisnaer@mbl.is Gerir út netútvarpsstöð á eigin kostnað ABBA Söng „Waterloo“ í Evróvisjón 1974. www.eurorasin.is  Ísdrottningin Ásdís Rán Gunn- arsdóttir segist hafa fengið fjölda tilboða eftir að fyrsta popplag hennar, „Feel My Body“, komst á öldur ljósvakans. „Ég bjóst svo sem alveg við að lagið mitt mundi vekja mikla athygli en þetta er framar öllum björtustu vonum,“ segir hún á Pressunni. „Ég er búin að fá hundruð e-maila frá aðdáendum lagsins og hinir ýmsu þekktu aðilar hafa slegið á þráðinn til mín með hamingjuóskir,“ segir hún og að það sé „slatti af tilboðum á borð- inu“. Þá fari lagið í dreifingu er- lendis í lok maí með „eldheitu vídeói, auðvitað Ásdís Rán style“. Þá kveðst hún vera að undirbúa sig fyrir kvikmyndahátíðina í Cannes. Tilboð á borðinu og myndband á leiðinni Tónlistarmennirnir Halldór Braga- son og Davíð Þór Jónsson verða fararstjórar í sérstakri blúsferð sem haldið verður í 5. október nk. og stendur til 13. október. Förinni er heitið til Memphis, Clarksdale í Mississippi og Helena í Arkansas og tónleikar sóttir þar með heimskunnum blúsurum og hljómsveitum: BB King, Dr. John & the Lower 911, Taj Mahal og Pine- top Perkins m.a. Þeir Halldór og Davíð Þór ætla ekki að sitja kyrrir meðal áhorf- enda í ferðinni heldur grípa í hljóð- færin þegar færi gefst og blúsa með eins og þeim einum er lagið. Blús- áhugamenn geta bókað sig í ferðina með því að senda tölvupóst á blues@blues.is merkt „blúsferð“ og þarf sendandi að taka fram nafn og símanúmer. Meðlimir í Blúsfélaginu munu hafa sýnt því mikinn áhuga að fara í ferð af þessu tagi og er þegar far- ið að bóka í hana. Gestgjafar blús- ferðamanna eru Íslandsvinurinn Pinetop Perkins, Blues Foundation, blúsfólkið í Clarksdale MS, Helenu og svo Blúsfélag Reykjavíkur. BB King Blúsar fyrir blúsþyrsta blúsáhugamenn. Halldór og Davíð fararstjórar  Blúsferð um Bandaríkin í október Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Þetta er rétt tímasetning fyrir plöt- una. Hún er búin að vera lengi á leið- inni, lögin á henni eru búin að vera í gangi í langan tíma,“ segir Kristján Árni Kristjánsson, eða Káki eins og hann er kallaður, söngvari og gít- arleikari Kakala, um frumburð sveit- arinnar, The Cave, sem kom út í síð- asta mánuði. Kakali var stofnuð árið 2003 af Káka og tvíburabræðrunum Daða og Árna Guðjónssonum en þeir spila á hljómborð, trommur og gítar. Sveitin spilar indírokk að sögn Káka. Hann segir þá þrjá vera aðallagahöf- unda sveitarinnar en nýlega bættust tveir nýir meðlimir í hópinn, Þor- steinn Hermannsson bassaleikari og Guðmundur Stefán Þorvaldsson gít- arleikari. Hann segir áhrifavalda meðlima Kakala vera marga og mis- munandi en Pink Floyd sé ákveðinn samnefnari þeirra. Tekin upp í bílskúr í Vesturbæ Káki segir hljómsveitina ekkert hafa spilað að ráði fyrr en núna þar sem meðlimir hennar hafi skipst á að búa erlendis síðustu ár. „Um hver jól höfum við sagt að núna ætlum við að taka upp plötu. Það var fyrst nú í október sem við gerðum það loksins. Að vissu leyti erum við fegnir að platan kom ekki út fyrr en núna. Við erum búnir að þróast meira síðustu ár og safna lögum í sarpinn,“ segir hann. Strákarnir tóku plötuna að mestu leyti sjálfir upp í bílskúr í Vesturbænum en hlutar voru teknir upp meðal annars í Seattle í Banda- ríkjunum og hjá trommuleikaranum Gulla Briem. Sveitin hefur spilað á nokkrum tónleikum undanfarið, meðal annars á Dillon og Sódómu. Að sögn Káka hyggjast þeir halda útgáfutónleika á Sódómu hinn 3. júní þegar geisla- diskurinn verður tilbúinn en hingað til hefur aðeins verið hægt að nálg- ast plötuna á netinu, til dæmis á Gogoyoko.com. Káki segir reyndar að hann og gítarleikarinn Árni muni búa í Noregi á næstunni. „Við mun- um samt koma reglulega til að spila. Það er lítið mál. Núorðið er að búa í Osló eins og að búa úti á landi.“ Morgunblaðið/Ómar Hljómsveitin Kakali Tvíburabræðurnir Daði og Árni Guðjónssynir og Kristján Árni Kristjánsson skipa hljómsveitina Kakala. Gott að platan kom ekki fyrr  Kakali gefur út sína fyrstu plötu  Útgáfutónleikar haldnir á Sódómu 3. júní

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.