Saga - 2002, Page 124
122
KJARTAN EMIL SIGURÐSSON
miklar kröfur eru gerðar til eigin framlags við íbúðabyggingar."11
Þeir sem ekki hafi góðar tekjur og geti heldur ekki unnið við eig-
in húsbyggingar, hafi enga möguleika á að koma sér upp húsnæði
með því að byggja sjálfir. Sú skipan fjáröflunar, sem fyrir hendi sé,
leiði af sér óeðlilega háa vexti og hraðar og háar afborganir af
íbúðabyggingalánum. Lánveitingar til einstaklinga frá hinum
ýmsu lánveitendum séu illa samræmdar og fari tíðum fram með
hliðsjón af flokkspólitískum skoðunum lántakenda.
Hið síðastnefnda verður að telja athyglisverða niðurstöðu af
hálfu bankastjórans, en slíkar lánveitingar munu hafa verið alsiða
á þessum árum. An beinnar eða óbeinnar íhlutunar ríkisins og
sveitarfélaga sé naumast gerlegt að auka framboð á fjármagni til
íbúðabygginga. Hún sé nauðsynleg, ef koma eigi lánveitingum
fyrir ný íbúðarhús í viðunandi horf.12
Nokkuð dró úr byggingaframkvæmdum í byrjun sjöimda ára-
tugarins, þótt eftirspurn eftir nýjum íbúðum væri fyrir hendi.
Kaupmáttur launa setti þó skorður við meiri íbúðabyggingum og
húsnæðiskaupum. Smæð hinna íslensku byggingarfyrirtækja og
verðbólgan hafi verið helstu orsakir þess, að ekki tókst að full-
nægja eftirspurn. Verkefni Byggingarsjóðs verkamanna var orðin
honum með öllu ofviða13, en í Þjóðhags- og framkvæmdaáætluninni
áðumefndu eru einmitt boðaðar róttækar breytingar á fjárhag
hans.14 Framkvæmdir voru því mjög hægar og sífellt dró úr bygg-
ingu verkamannabústaða, án þess að Alþingi hefðist nokkuð að.15
Verkamannabústaðakerfið gamla hafði ekki fullnægt eftirspurn-
inni um áratugaskeið og reyndar verið lítils megnugt, að flestra
mati, þegar hér er komið sögu. í lögunum var gert ráð fyrir, að
íbúðakaupendur borguðu ekki nema 10-15% kaupverðsins í
11 Bókasafn íbúðalánasjóðs Johan Hoffmann, Skýrsla Johans Hoffmanns, bls.
27.
12 Sama heimild, bls. 2-7, 27.
13 Aðalsteinn Helgason, „íbúðabyggingar á íslandi 1945-1975". Lands-
bókasafn íslands - Háskólabókasafn
14 Sjá þessu til staðfestingar viðtal við Guðmund J. Guðmundsson sem getið
er í kaflanum um júlísamningana 1965. Einnig staðfestist þetta af viðtali
við Sigurð E. Guðmundsson, fyrrv. framkvæmdastjóra Húsnæðisstofn-
unar ríkisins.
15 Aðalsteinn Helgason, „íbúðabyggingar á íslandi 1945-1975". Lands-
bókasafn íslands - Háskólabókasafn.